Eldgos og jarðhræringar Rýma svæðið næst gosstöðvunum vegna gasmengunar og gjóskufalls Björgunarsveitir sem standa vaktina við gosstöðvarnar í Geldingadölum hafa hafist handa við að rýma svæðið allra næst gosstöðvunum, bæði vegna aukinnar gasmengunar og gjóskufalls á svæðinu. Innlent 2.5.2021 16:20 Stóðu orðlaus og horfðu á hraunstrókinn „Ég er enn að ná mér niður, þetta var svo ruglað,“ segir Sólný Pálsdóttir, sem var stödd við eldgosið í Geldingadölum seint í gærkvöldi þegar hraunstrókar stóðu með hléum upp úr virka gígnum á svæðinu. Innlent 2.5.2021 14:24 Endurmeta stærð hættusvæðis: Óvíst hvað veldur auknum hita og gróðurbruna Gríðarlegur hiti er nú við gosstöðvarnar í Geldingadölum. Vart hefur orðið við gróðurelda og rýkur úr jörðu en óvíst er nákvæmlega til hvers megi rekja gróðureldana. Í ljósi breyttrar virkni er verið að endurmeta stærð hættusvæðis við gosstöðvarnar. Innlent 2.5.2021 13:18 Virknin slokknar og rýkur svo upp með stórum kvikustrókum Breyting varð á gosinu í virka gígnum í Geldingadölum skömmu eftir miðnætti. Náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir að um einhvers konar þrýstingsbreytingu sé að ræða sem lýsi sér í því að virknin slokknar niður í tvær mínútur í senn og rýkur síðan upp. Innlent 2.5.2021 10:13 Fluttur af gossvæðinu með sjúkrabíl Tveir voru fluttir af gossvæðinu í Geldingadölum í gærkvöldi og var annar þeirra fluttur á brott með sjúkrabíl. Mikil mengun mældist við gosið og fundu margir fyrir sviða í augum og öndunarfærum. Innlent 1.5.2021 23:51 Stephen King skammar Björn Steinbekk „Vaknaði í morgun og var sagt að Stephen King væri ósáttur við mig. Þær eru langar þessar 15 sekúndur af frægð,“ segir Björn Steinbekk. Lífið 30.4.2021 13:07 Snarpur skjálfti á Hengilssvæðinu fannst vel í höfuðborginni Jarðskjálfti að stærð 3,8 varð á Hengilssvæðinu, um 2,6 kílómetra suðaustur af Eiturhól við Nesjavallaveg, klukkan 11:38. Jarðskjálftinn fannst á höfuðborgarsvæðinu og víðar. Innlent 29.4.2021 12:07 Ótrúlegt myndband af „eld-skýstrokk“ í miðri hrauntjörninni Innlent 28.4.2021 23:35
81 82 83 84 85 86 87 88 89 … 132 ›
Rýma svæðið næst gosstöðvunum vegna gasmengunar og gjóskufalls Björgunarsveitir sem standa vaktina við gosstöðvarnar í Geldingadölum hafa hafist handa við að rýma svæðið allra næst gosstöðvunum, bæði vegna aukinnar gasmengunar og gjóskufalls á svæðinu. Innlent 2.5.2021 16:20
Stóðu orðlaus og horfðu á hraunstrókinn „Ég er enn að ná mér niður, þetta var svo ruglað,“ segir Sólný Pálsdóttir, sem var stödd við eldgosið í Geldingadölum seint í gærkvöldi þegar hraunstrókar stóðu með hléum upp úr virka gígnum á svæðinu. Innlent 2.5.2021 14:24
Endurmeta stærð hættusvæðis: Óvíst hvað veldur auknum hita og gróðurbruna Gríðarlegur hiti er nú við gosstöðvarnar í Geldingadölum. Vart hefur orðið við gróðurelda og rýkur úr jörðu en óvíst er nákvæmlega til hvers megi rekja gróðureldana. Í ljósi breyttrar virkni er verið að endurmeta stærð hættusvæðis við gosstöðvarnar. Innlent 2.5.2021 13:18
Virknin slokknar og rýkur svo upp með stórum kvikustrókum Breyting varð á gosinu í virka gígnum í Geldingadölum skömmu eftir miðnætti. Náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir að um einhvers konar þrýstingsbreytingu sé að ræða sem lýsi sér í því að virknin slokknar niður í tvær mínútur í senn og rýkur síðan upp. Innlent 2.5.2021 10:13
Fluttur af gossvæðinu með sjúkrabíl Tveir voru fluttir af gossvæðinu í Geldingadölum í gærkvöldi og var annar þeirra fluttur á brott með sjúkrabíl. Mikil mengun mældist við gosið og fundu margir fyrir sviða í augum og öndunarfærum. Innlent 1.5.2021 23:51
Stephen King skammar Björn Steinbekk „Vaknaði í morgun og var sagt að Stephen King væri ósáttur við mig. Þær eru langar þessar 15 sekúndur af frægð,“ segir Björn Steinbekk. Lífið 30.4.2021 13:07
Snarpur skjálfti á Hengilssvæðinu fannst vel í höfuðborginni Jarðskjálfti að stærð 3,8 varð á Hengilssvæðinu, um 2,6 kílómetra suðaustur af Eiturhól við Nesjavallaveg, klukkan 11:38. Jarðskjálftinn fannst á höfuðborgarsvæðinu og víðar. Innlent 29.4.2021 12:07
Dróninn bráðnaði í beinni útsendingu Drónaútsendingunni á gossvæðinu við Fagradalsfjalli lauk um klukkan 6:30 í morgun eftir um tólf tíma útsendingu. Útsendingunni lauk með því að einum drónanum var flogið lágt yfir virkasta gíginn þannig að áhorfendur gátu fylgst með kvikunni í miklu návígi, og allt í beinni útsendingu. Dróninn bráðnaði svo að lokum og hrapaði ofan í sjálfan gíginn. Lífið 28.4.2021 07:54
Eldgosið áberandi frá höfuðborgarsvæðinu í kvöld Stór og rauðbjartur gufustrókur frá eldgosinu við Fagradalsfjall sást vel frá höfuðborgarsvæðinu í kvöld líkt og sjá má á þessari mynd sem Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Vísis tók í kvöld. Innlent 26.4.2021 23:13
Tveir snarpir skjálftar fundust á höfuðborgarsvæðinu Tveir jarðskjálftar um og yfir þrír að stærð mældust um fjóra kílómetra norðaustur af Krýsuvík um hádegisbil í dag. Innlent 24.4.2021 13:54
Viðbúið að gas berist yfir byggð á Reykjanesskaga í dag Viðbúið er að gasmengun frá eldstöðvunum við Fagradalsfjall muni leggja yfir byggð á norðvestanverðum Reykjanesskaga í dag. Í nótt snýst vindur fyrst til suðvesturs og síðan norðvesturs og dreifist gasmengun þá til austurs í fyrstu og gæti náð til höfuðborgarsvæðisins í fyrramálið. Innlent 24.4.2021 09:44
Eldgosið í eldlínunni í vinsælasta morgunþætti Bandaríkjanna Sjónvarpsþátturinn „Good Morning America“ hjá sjónvarpsstöðinni ABC News bauð upp á ýtarlega umfjöllun um eldgosið í Fagradalsfjalli í þætti dagsins. Þátturinn er einn allra vinsælasti fréttaþáttur í Bandaríkjunum og hann er langsamlega vinsælasti morgunþátturinn. Innlent 21.4.2021 15:54
Telja að spennubreytingar hafi valdið stóra skjálftanum Vísindamenn telja að stóri skjálftinn sem reið yfir á Reykjanesskaga í gærkvöldi tengist uppsafnaðri spennu sem hafi myndast áður en gos hófst í Fagradalsfjalli þann 19. mars. Innlent 21.4.2021 12:45
„Suðurnes eru heitasti sumardvalastaðurinn á árinu“ Framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum segir aukna bjartsýni á svæðinu. Eldgosið hafi reynst mikil landkynning og verkefni í kringum uppbyggingu í Geldingadölum skapi mörg atvinnutækifæri. Hún telur að Suðurnes verði heitasti sumardvalarstaðurinn í ár. Innlent 21.4.2021 10:43
Þyrla Gæslunnar sótti konu á gosstöðvarnar í nótt Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út í nótt til að sækja konu á gosstöðvarnar í Geldingadölum. Hún hafði orðið viðskila við hóp sem hún var í laust fyrir klukkan ellefu í gærkvöldi. Innlent 21.4.2021 08:08
„Það hafa verið svona smáhrinur á þessu svæði síðustu daga“ „Það voru einhverjir skjálftar þarna á eftir og búnir að vera í nótt en miklu minni; bara svona frekar róleg eftirvirkni,“ segir Salóme Jórunn Bernharðsdóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, um eftirleik „stóra“ skjálftans á Reykjanesskaga í gærkvöldi. Innlent 21.4.2021 06:32
Stærsti jarðskjálfti síðan fjórum dögum fyrir gos Snarpur jarðskjálfti fannst vel á höfuðborgarsvæðinu og víðar á suðvesturhorninu nú skömmu eftir klukkan ellefu í kvöld. Skjálftinn var 4,1 að stærð, að því er fram kemur í tilkynningu frá Veðurstofunni. Innlent 20.4.2021 23:08
Mánaðargamalt gos sem hegðar sér á óvenjulegan hátt Mánuður er í dag liðinn frá því að eldgosið í Fagradalsfjalli hófst. Gosið virðist haga sér á óvenjulegan máta þar sem hraunrennsli síðustu tíu daga hefur verið meira en fyrstu tíu daga gossins. Flest gos hegða sér á hinn veginn, að það dregur úr með tíma. Innlent 19.4.2021 12:20
Von á nýjum tölum um hraunflæðið í dag Vísindamenn á vegum Háskóla Íslands og Náttúrufræðistofnunar flugu yfir gosstöðvarnar í Fagradalsfjalli í gær og gerðu mælingar. Von er á nýjum tölum um hraunflæði, rúmmál og flatarmál síðar í dag. Innlent 19.4.2021 08:06
Ekkert sérstakt ferðaveður að gosstöðvunum í dag Ferðaveður að gosstöðvunum í Geldingadölum er ekkert sérstakt í dag. Spáð er suðvestan tíu til fimmtán metrum á sekúndu fyrir hádegi en bætir nokkuð í vindinn eftir hádegi. Hægist um aftur í kvöld en búast má við éljum í allan dag að því er segir í tilkynningu frá Lögreglustjóranum á Suðurnesjum. Innlent 18.4.2021 10:48
Nýtt gosop opnaðist í gígjaðrinum Nýtt gosop opnaðist á gossvæðinu við Fagradalsfjall á þriðja tímanum í dag. Opið er lítið og opnaðist á milli gíganna sem fyrir eru, á skilgreindu hættusvæði. Innlent 17.4.2021 15:52
Mögnuð tilfinning að taka flugprófið yfir eldgosi „Ég fékk fyrst áhuga á flugi þegar ég var í níunda eða tíunda bekk þegar það kom flugmaður í grunnskólann minn og hélt kynningu um flug,“ segir Birta Óskarsdóttir, nýútskrifaður atvinnuflugmaður. Lífið 17.4.2021 07:31
Sterkar vísbendingar um að eldfjallagasið muni hafa áhrif á heilsu fólks Sterklega má gera ráð fyrir að eldfjallagasið úr Geldingadölum muni leiða til aukinna öndunarfærasjúkdóma, sérstaklega hjá fólki í nálægri byggð. Börn og fólk með undirliggjandi sjúkdóma eru sérstaklega útsett fyrir menguninni. Innlent 16.4.2021 19:00
Laga bílaplanið og gönguleiðina inn í Geldingadali Gönguleiðin inn í Geldingadali liggur undir miklum skemmdum sökum ágangs. Jarðvegsvinna á svæðinu er hafin en gönguleiðin er orðin að drullusvaði á löngum kafla. Þá er einnig unnið að úrbótum á bílastæðinu. Innlent 16.4.2021 19:00
Drónað í beinni Björn Steinbekk og Vísir taka höndum saman um beina útsendingu frá gosinu í Geldingadölum. Samstarf 16.4.2021 16:26
Hraun rennur úr Geldingadölum í Meradali Hraun rennur nú úr Geldingadölum, þar sem eldgosið á Fagradalsfjalli hófst þann 19. mars, til austurs inn í Meradali. Frá þessu er greint á Facebook-síðu Eldfjalla- og náttúruvárhóps Suðurlands. Innlent 16.4.2021 15:47
Hafa gefið út „opnunartíma“ fyrir gosstöðvarnar um helgina Sama fyrirkomulag verður við gosstöðvarnar í dag og um helgina og verið hefur undanfarna daga. Gossvæðið verður vaktað af lögreglu og björgunarsveitum frá kl. 12 á hádegi og fram til miðnættis en svæðinu lokað kl. 21 og rýmt kl. 23. Innlent 16.4.2021 08:18
Hræringarnar búnar að auka orku Svartsengis Umbrotahrinan á Reykjanesskaga hefur fært aukinn kraft í jarðhitakerfi Svartsengis, sem skilar núna meiri gufu til orkuframleiðslu hjá HS Orku. Innlent 15.4.2021 23:10
Grindvíkingar sultuslakir þótt gjósi bak við hólinn Nærri fjögurra vikna eldgos í bakgarði Grindavíkur virðist ekki hafa truflað daglegt líf Grindvíkinga. Það er rétt eins og gosið sé orðið eðlilegur hluti mannlífsins. Innlent 14.4.2021 23:20