Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2020
2 3 4 5 6 7 8 9 10 … 69 ›
Upptaka af símtali Giuliani og ráðgjafa Úkraínuforseta komin í leitirnar CNN hefur upptökur undir höndum þar sem Rudy Giuliani, lögmaður Donald Trump Bandaríkjarforseta, þrýstir á stjórnvöld í Úkraínu að rannsaka tilhæfulausar ásakanir á hendur Joe Biden í aðdraganda forsetakosninganna í Bandaríkjunum. Erlent 8.6.2021 08:00
Trump reiður yfir litlum vinsældum og lokar bloggsíðunni Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur lokað bloggsíðu sinni sem hann opnaði í síðasta mánuði. Hann er sagður hafa verið fúll yfir litlum vinsældum bloggsíðunnar sem bar nafnið „From the desk of Donald J. Trump“, eða „frá skrifborði Donald J. Trump“. Erlent 2.6.2021 20:54
Skaut á tvo áhrifamikla Demókrata í öldungadeildinni Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, virtist gagnrýna tvö öldungadeildarþingmenn Demókrataflokksins í kvöld, þegar hann sagði af hverju hann hefði ekki komið metnaðarfullum kosningaloforðum sínum og málefnum í verk. Erlent 1.6.2021 23:51
Létu sig hverfa úr þingsal til að stöðva takmarkanir á kosningarétti Demókratar á ríkisþingi Texas í gripu til þess ráðs að ganga út úr þingsal til þess að koma í veg fyrir að repúblikanar gætu samþykkt einar umfangsmestu takmarkanir á kosningarétti í Bandaríkjunum í gærkvöldi. Joe Biden forseti hefur lýst frumvarpi repúblikana sem „árás á lýðræðið“. Erlent 31.5.2021 11:18
Repúblikanar felldu frumvarp um rannsókn á árásinni á þinghúsið Nær allir öldungadeildarþingmenn Repúblikanaflokksins greiddu atkvæði gegn frumvarpi um óháða rannsókn á árás stuðningsmanna Donalds Trump á bandaríska þinghúsið í janúar. Líklega er útséð um að slík rannsókn fari fram. Erlent 28.5.2021 18:20
Kanna hvort úkraínskir embættismenn hafi reynt að hjálpa Trump Alríkissaksóknarar í New York rannsaka nú hvort að hópur úkraínskra núverandi og fyrrverandi embættismanna hafi reynt að hafa áhrifa á bandarísku forsetakosningarnar í nóvember. Þeir kunni að hafa dreift misvísandi upplýsingum um Joe Biden til að hjálpa Donald Trump að landa sigri. Erlent 27.5.2021 23:44
Trump segist stefna aftur á framboð Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur sagt bandamönnum sínum að hann stefni á að bjóða sig aftur fram til forseta fyrir kosningarnar 2024, verði hann enn við góða heilsu. Erlent 27.5.2021 13:53
Repúblikanar í hár saman vegna umdeildrar endurskoðunar Endurskoðun sem repúblikanar í öldungadeild ríkisþings Arizona í Bandaríkjunum fyrirskipuðu á úrslitum forsetakosninganna í nóvember heldur áfram þrátt fyrir harðar mótbárur flokkssystkina þeirra sem báru ábyrgð á framkvæmd þeirra í stærstu sýslu ríkisins. Embættismennirnir neituðu að taka þátt í endurskoðuninni í vikunni. Erlent 19.5.2021 15:39
Cheney vikið úr embætti: Ætlar áfram að beita sér gegn Trump Liz Cheney var í dag vikið úr embætti sínu sem þriðji æðsti Repúblikaninn í fulltrúadeild Bandaríkjaþings. Haldin var atkvæðagreiðsla hjá þingflokknum en úrslitin voru svo gott sem ljós löngu fyrir það, þar sem aðrir leiðtogar flokksins höfðu snúist gegn henni. Erlent 12.5.2021 14:44
Cheney líklega bolað úr embætti á morgun Þingkonan Liz Cheney, þriðji æðsti Repúblikaninn í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, stendur frammi fyrir atkvæðagreiðslu um að víkja henni úr þeirri stöðu hennar. Leiðtogar flokksins eru ósáttir við að hún neiti að dreifa „stóru lyginni“ svokölluðu um að umfangsmikið kosningasvindl hafi kostað Donald Trump, fyrrverandi forseta, sigur í kosningunum í fyrra. Erlent 11.5.2021 15:49
Vill embætti Cheney og fylkja Repúblikönum saman um Trump Þingkonan Elise Stefanik lýsti því yfir í dag að hún vildi stöðu þingkonunnar Liz Cheney, sem þriðji æðsti Repúblikaninn í fulltrúadeild Bandaríkjaþings. Cheney hefur verið undir miklum þrýstingi innan flokksins fyrir að taka ekki undir falsar yfirlýsingar Donalds Trump, fyrrverandi forseta, og bandamanna hans um að umfangsmikið kosningsvindl hafi kostað hann sigur í forsetakosningunum í fyrra. Erlent 6.5.2021 22:30
Trump opnar eigin miðil Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur opnað eigin fréttaveitu og nokkurs konar samfélagsmiðil, fjórum mánuðum eftir að hann var rekinn af Twitter og Facebook. Erlent 4.5.2021 21:22
Innanbúðarfólkið sem varð utangarðs Repúblikanarnir og þingmennirnir Liz Cheney og Mitt Romney hafa um árabil verið í innsta hring Repúblikanaflokksins í Bandaríkjunum. Cheney er til að mynda þriðji æðsti þingmaður flokksins, formlega séð og Romney var eitt sinn forsetaefni hans gegn Barack Obama. Erlent 3.5.2021 22:36
Repúblikanar í Utah bauluðu á Romney Fulltrúar á þingi Repúblikanaflokksins í Utah bauluðu á Mitt Romney, öldungadeildarþingmann flokksins í ríkinu, um helgina. Tillaga um að ávíta Romney fyrir að hafa greitt atkvæði með því að sakfella Donald Trump, fyrrverandi forseta, fyrir embættisbrot var felld með naumum meirihluta. Erlent 3.5.2021 12:21
Pence stígur aftur á svið og fer fögrum orðum um Trump Mike Pence, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna, hélt sína fyrstu pólitísku ræðu í gær eftir að ríkisstjórn Donalds Trump, fyrrverandi forseta, lét af völdum í upphafi árs. Þrátt fyrir að samband þeirra beið verulega hnekki undir lok ríkisstjórnarinnar og að stuðningsmenn Trumps kölluðu eftir því að Pence yrði myrtur, fór hann fögrum orðum um fyrrverandi yfirmann sinn. Erlent 30.4.2021 13:38
Óttast að óhefðbundin endurtalning grafi undan trausti Yfirmenn kjörstjórna í Bandaríkjunum óttast að ákvörðun repúblikana í Arizona um að láta telja aftur atkvæði í stærstu sýslu ríkisins frá því í kosningunum í nóvember verði að fordæmi sem grafi undan trú kjósendur á kosningum í framtíðinni. Donald Trump, fyrrverandi forseti, er sagður haldinn þráhyggju fyrir niðurstöðu endurtalningarinnar. Erlent 29.4.2021 23:57
Sagði lýðræðið þurfa að sanna sig Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, lagði línurnar í nótt að umfangsmiklum breytum á velferðarkerfi Bandaríkjanna og umsvifum alríkisins á hagkerfið. Þetta sagði hann í fyrsta ávarpi sínu fyrir báðum deildum Bandaríkjaþings í nótt. Erlent 29.4.2021 08:59
Fólkið færist til suðurs og vesturs og þingsætin fylgja Nýjasta manntal Bandaríkjanna sýnir að Bandaríkjamönnum fjölgaði um einungis 7,4 prósent milli 2010 og 2020 og teljast þeir nú 331 milljón. Það sýnir einnig að sú þróun að íbúar færist til suðurs og vesturs heldur áfram. Erlent 27.4.2021 12:30
Hollusta við Trump borgar sig Helstu stuðningsmenn Donalds Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, á þingi vestanhafs hafa grætt töluvert á hollustu sinni við forsetann. Öll hafa þau safnað fúlgum fjár í kosningasjóði sína sem að mestu hafa borist í smáum skömmtum frá kjósendum Trumps. Erlent 16.4.2021 11:43
Kallaði McConnell heimskan tíkarson Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, jós úr skálum reiði sinnar yfir Mitch McConnell, leiðtoga Repúblikana í öldungadeild Bandaríkjaþings um helgina. Það gerði Trump í ræðu á ráðstefnu íhaldsmanna í sveitaklúbbi hans í Flórída á laugardagskvöldið. Erlent 12.4.2021 11:35
Nýskilinn, aleinn og við það að drekka sig í hel Hunter Biden, sonur Joe Biden Bandaríkjaforseta, ræddi glímu sína við áfengis- og kókaínfíkn í ítarlegu viðtali við breska ríkisútvarpið BBC í gær. Þá var hann einnig spurður út í gagnrýni sem hann og faðir hans sættu vegna stjórnarsetu þess fyrrnefnda í úkríanska orkufyrirtækinu Burisma. Erlent 6.4.2021 15:04
Forsetinn líkir nýjum kosningalögum í Georgíu við Jim Crow Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur líkt nýjum kosningalögum í Georgíu við ódæðisverk og kallað þau „Jim Crow á 21. öldinni“. Biden varð í fyrra fyrsti demókratinn til að tryggja sér kjörmenn ríkisins frá 1992. Erlent 27.3.2021 08:22
Tvöfaldaði bólusetningarmarkmiðið og staðfesti framboð 2024 Joe Biden Bandaríkjaforseti tilkynnti í dag að ríkisstjórn hans hygðist útdeila 200 milljón bóluefnisskömmtum á fyrstu hundrað dögum hans í embætti. Það eru tvöfalt fleiri skammtar en Biden hafði áður lofað að yrðu gefnir á sama tímabili. Erlent 25.3.2021 23:50
Trump rannsakaður hátt og lágt Donald Trump, sem nýtur ekki lengur friðhelgi foretaembættisins, á nú yfir höfði sér fjölmörg dómsmál, bæði einkamál og sakamál. Sum tengjast gjörðum hans á meðan hann sat enn í embætti en önnur viðskiptagjörningum og óvarlegum umælum, svo eitthvað sé nefnt. Erlent 22.3.2021 09:04
Sagði að án takmarkana á kjörsókn muni Repúblikanar tapa um árabil Öldungadeildarþingmaðurinn bandaríski Ted Cruz segir Demókrata ætla sér að veita milljónum ólöglegra innflytjenda, barnaníðingum og öðrum glæpamönnum kosningarétt. Þannig muni Demókratar tryggja yfirráð sínum í kosningum vestanhafs um árabil. Erlent 20.3.2021 22:52
Rannsaka aðild starfsmannastjóra Trump að þrýstingsherferð í Georgíu Athafnir Marks Meadow, fyrrverandi starfsmannastjóra Hvíta hússins, í þrýstingsherferð Donalds Trump, þáverandi Bandaríkjaforseta, til að breyta kosningaúrslitum í Georgíu eru líklegar til að vekja athygli umdæmissaksóknara sem rannsakar hvort að Trump hafi brotið lög með afskiptum sínum af kosningunum. Erlent 19.3.2021 13:37
Rússar kalla sendiherra sinn heim vegna ummæla Biden um Pútín Stjórnvöld í Kreml hafa kalla rússneska sendiherrann í Bandaríkjunum heim til skrafs og ráðagerða vegna ummæla Joes Biden, forseta Bandaríkjanna, um að Vladímír Pútín, rússneski starfsbróðir hans, sé „morðingi“ sem muni súpa seyðið af því að hafa reynt að hafa áhrif á forsetakosningarnar vestanhafs í haust. Erlent 18.3.2021 09:07
McConnell varar við „sviðinni jörð“ í öldungadeildinni Mitch McConnell, leiðtogi Repúblikana í öldungadeild Bandaríkjaþings, varaði Demókrata í gær við því að Repúblikanar myndu skilja eftir sig sviðna jörð ef reglan um aukin meirihluta verði felld niður. Joe Biden, forseti, segist styðja að breyta reglunni til fyrra horfs. Erlent 17.3.2021 10:27
Rússar reyndu að hafa áhrif á bandamenn Trump Vladímír Pútín Rússlandsforseti skipaði persónulega fyrir um tilraunir rússnesku leyniþjónustunnar til þess að koma höggi á Joe Biden í aðdraganda forsetakosninganna í Bandaríkjunum síðasta haust. Leyniþjónustan er meðal annars sögð hafa háð leynilega herferð til þess að hafa áhrif á nána bandamenn Donalds Trump, þáverandi forseta. Erlent 17.3.2021 09:25
Tveir handteknir fyrir að ráðast á lögregluþjóninn sem dó Tveir menn hafa verið handteknir og ákærðir fyrir að ráðast á lögregluþjóninn Brian D. Sicknick þegar árásin á þinghús Bandaríkjanna stóð yfir þann 6. janúar. Sicknick dó á sjúkrahúsi degi síðar. Erlent 15.3.2021 15:48