Fréttir
295 296 297 298 299 300 301 302 303 … 334 ›
Kólnar aftur í kvöld og spáð stormi um helgina Lægðin sem nú er að finna vestur af landinu og bar með sér snjókomubakka yfir vestanvert landið, hreyfist hægt og bítandi til vesturs og léttir í kjölfarið smám saman til. Í öðrum landshlutum er bjart með köflum en stöku él eru á víð og dreif. Veður 5.4.2024 06:55
Ísraelsmenn bregðast við hótunum Biden og opna landamærin á ný Skrifstofa Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, hefur greint frá því að öryggisráðuneyti landsins hafi samþykkt áætlun sem miðar að því að auka flæði neyðargagna inn á Gasa. Erlent 5.4.2024 06:32
Óvenjumikið af snjóflóðum af mannavöldum Það hefur verið óvenjumikið af snjóflóðum af mannavöldum síðustu daga. Um páskana og fyrir páska snjóaði mikið og blés í hvössum norðaustanáttum með þeim afleiðingum að mikill snjór safnaðist til fjalla. Vindflekar hafa byggst upp í flestum viðhorfum og veikleikar þróast innan snjóþekjunnar. Innlent 4.4.2024 23:39
Telur Jón Gnarr geta verið kryptónít Katrínar Jón Gnarr gæti truflað ímynd Katrínar Jakobsdóttur í kosningabaráttu um embætti forseta Íslands, segir Andrés Jónsson almannatengill. Hann líkir Jóni við skáldaða efnið kryptónítið sem veikir ofurhetjuna Súperman. Innlent 4.4.2024 23:15
Tólf ára árásarmaðurinn segist sjá eftir gjörðum sínum Tólf ára árásarmaðurinn sem hóf skothríð í grunnskóla í Vantaa í Finnlandi á þriðjudaginn segist sjá eftir gjörðum sínum. Lögregla yfirheyrði hann í gær og mun yfirheyrsla halda áfram ótímabundið. Erlent 4.4.2024 22:50
Biden krefst tafarlauss vopnahlés Joe Biden Bandaríkjaforseti krafðist tafarlauss vopnahlés í símtali við Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels í dag. Hann sagði einnig að stuðningur Bandaríkjanna við aðgerðir Ísraelsmanna væri skilyrtur af því að gripið væri til alvöru aðgerða til að verja borgara og hjálparstarfsfólk á Gasasvæðinu. Erlent 4.4.2024 21:35
Fyrstu 757-þotu Íslendinga lagt eftir 33 ára þjónustu Fyrstu Boeing 757-þotunni sem Íslendingar eignuðust, TF-FIH, hefur núna verið lagt, eftir 33 ára þjónustu hjá Icelandair. Engin flugvélartegund hefur þjónað íslenskum flugfarþegum jafn lengi og þessi. Innlent 4.4.2024 21:07
Göngumaðurinn fannst látinn Göngumaður sem björgunarsveitir frá Hvolsvelli og Hellu leituðu á Fimmvörðuhálsi fannst látinn í dag. Frá þessu er greint í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi. Innlent 4.4.2024 20:48
Framboðið hafi ekkert með Katrínu að gera Allt bendir til þess að Katrín Jakobsdóttir bjóði sig fram til forseta á morgun. Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, sem tilkynnti um forsetaframboð í dag, segir framboð sitt ekkert hafa með forsætisráðherra að gera. Innlent 4.4.2024 20:24
Ekkert Covid í fyrsta sinn frá upphafi faraldurs Í fyrsta sinn frá því að Sýkla- og veirufræðideild tók við SARS-CoV 2 greiningum leið vika sem ekkert tilfelli kórónuveirunnar greindust, eða 28. febrúar 2020 þegar faraldurinn hófst á Íslandi. Í vikunni 25. til 31. mars greindust engin tilfelli. Innlent 4.4.2024 20:24
Landsmenn treysta fjármálaráðgjöf minnst allra Evrópuþjóða Íslendingar bera minnst traust allra íbúa Evrópu til fjármálaráðgjafar fjármálastofnanna. Þá er helmingur allra landsmanna neikvæður gagnvart fjármálakerfinu. Bankastjóri Arion banka telur að fjármálahrunið hafi enn þá áhrif. Hægt sé að snúa þessu við með góðum starfsháttum. Innlent 4.4.2024 20:01
Leggja til allt að níutíu milljónir í baráttunni við hjólreiðaþjófnað í Reykjavík Starfshópur á vegum Reykjavíkurborgar hefur lagt til aðgerðir til að sporna við reiðhjólaþjófnaði. Áætlaður kostnaður aðgerðarinnar sem hópurinn leggur til er „gróft áætlaður“ 55 til níutíu milljónir króna. Innlent 4.4.2024 19:41
Eðlilegt að bankarnir taki þátt í að fjármagna gjaldeyrisforðann Seðlabankinn hefur skikkað viðskiptabankanna til að auka vaxtalausar innistæður sínar hjá Seðlabankanum til að auka traust á peningastefnunni. Þetta vinnur gegn tapi Seðlabankans vegna neikvæðs vaxtamunar á tekjum hans og gjöldum. Innlent 4.4.2024 19:30
Katrín hafi mátað sig við forsetann frá tilkynningu Guðna Andrés Jónsson almannatengill segir að samkvæmt sínum heimildum hafi Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra verið að íhuga framboð til forseta Íslands frá því á nýársdag, þegar Guðni Th. Jóhannesson forseti tilkynnti að hann byði sig ekki fram í þriðja sinn. Innlent 4.4.2024 18:46
Bjartsýn á að samningar náist Katrín Jakobsdóttir forætisráðherra ávarpaði ársfund Seðlabanka Íslands sem fór fram í Hörpu í dag. Í ávarpi sínu segist hún vera bjartsýn á að hópar á almennum vinnumarkaði og starfsfólk hins opinbera muni fylgja á eftir og gera langtímakjarasamninga á borð við þá sem gerðir voru af aðilum á vinnumarkaði við Samtök atvinnulífsins í mars. Innlent 4.4.2024 18:24
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Allt bendir til þess að Katrín Jakobsdóttir bjóði sig fram til forseta á morgun. Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, sem tilkynnti um forsetaframboð í dag, segir framboð sitt ekkert hafa með forsætisráðherra að gera. Innlent 4.4.2024 18:13
„Rússland getur ekki verið skotmark íslamista“ Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hélt því fram í dag að íslamskir öfgamenn hefðu ekki tilefni til að fremja hryðjuverkaárás í Rússlandi. Eining rússnesku þjóðarinnar á sviðum trúarbragða og þjóðernis og samheldni þjóðarinnar væri svo mikil að ómögulegt væri að öfgamenn fremdu hryðjuverkaárás í landinu. Erlent 4.4.2024 17:11
Áhöfn þyrlunnar fann týndan mann á Fimmvörðuhálsi Björgunarsveitir voru kallaðar út í dag til að leita að týndum göngumanni á Fimmvörðuhálsi í dag. Sveitir frá Hvolsvelli og Hellu voru kallaðar út, auk annarra af Suðurlandi og stóð til að notast við hunda við leitina. Innlent 4.4.2024 17:04
Þarf að afhenda reikninga lögmannsstofunnar sem hefur malað gull Fjármála- og efnahagsráðuneytinu hefur verið gert að afhenda Frigusi II, sem lengi hefur staðið í stappi við ríkið í Lindarhvolsmálinu svokallaða, reikninga frá lögmannsstofunni Íslögum án yfirstrikana. Frá ársbyrjun 2018 hefur ráðuneytið greitt stofunni áttatíu milljónir króna. Innlent 4.4.2024 17:00
Tveir gígar enn virkir Tveir gígar eru enn virkir í eldgosinu á Reykjanesskaga og er sá nyrðri stærri. Áfram mælast gildi brennisteinsdíoxíðs í kringum eldgosið og í byggð á Reykjanesskaga há. Innlent 4.4.2024 16:52
Hera Björk segir að sér hafi verið gerðar upp skoðanir Hera Björk Þórhallsdóttir Eurovisionfari segir að sér hafi verið gerðar upp skoðanir í tengslum við viðtali sem hún átti við ísraelska Eurovision-miðilinn Euromix. Innlent 4.4.2024 16:01
Funda um opnun Bláa lónsins í fyrramálið Úlfar Lúðvíksson lögreglustjóri á Suðurnesjum fundaði með forsvarsmönnum Bláa lónsins í dag og mun gera það aftur í fyrramálið til að taka ákvörðun um starfsemi lónsins. Hættuleg gasmengun hefur komið í veg fyrir opnun lónsins frá því að eldgos hófst á Reykjanesskaga í síðasta mánuði. Innlent 4.4.2024 16:01
Felldu þrjá slökkviliðsmenn með drónum í Karkív Að minnsta kosti fjórir létu lífið í nótt þegar sjálfsprengidrónum var flogið á tvö fjölbýlishús og orkuver í Karkív, næst stærstu borg Úkraínu. Rússar hafa látið sprengjum rigna yfir borgina á undanförnum vikum og valdið þar miklum skemmdum og mannfalli. Erlent 4.4.2024 15:14
„Þessi stjórn er ekki að fara að springa í dag“ Prófessor í stjórnmálafræði segir líkurnar á því að Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra bjóði sig ekki fram til forseta hverfandi. Eina sem gæti komið í veg fyrir það er ef ósætti er meðal ríkisstjórnarflokkanna um framboðið og möguleiki á að ríkisstjórnin springi. Innlent 4.4.2024 15:07
Steinunn Ólína stígur fram með formlegum hætti Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leikkona hefur nú stigið fram með formlegum hætti sem forsetaframbjóðandi. Hún segir mikið í húfi, það skipti máli hver gegnir embætti forseta landsins. Innlent 4.4.2024 14:04
Finnar framlengja lokun landamæranna ótímabundið Ríkisstjórn Finnlands ákvað að halda landamærum landsins að Rússlandi áfram lokuðum ótímabundið í dag. Finnar saka rússnesk stjórnvöld um að senda hælisleitendur frá öðrum ríkjum að landamærunum til þess að baka þeim vandræði. Erlent 4.4.2024 13:46
Enn bólar ekkert á þjófunum og rannsókn í fullum gangi Heimir Ríkharðsson, lögreglufulltrúi sem fer fyrir rannsókn á stórtækum þjófnaði í Hamraborg, segir þjófana enn ófundna og að rannsókn málsins sé í fullum gangi. Innlent 4.4.2024 13:39
Andlát barnsins á Nýbýlavegi komið á borð ákærusviðs Andlát sex ára gamals drengs á Nýbýlavegi í Kópavogi í lok janúarmánaðar er komið á borð ákærusviðs lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Gæsluvarðhald yfir móður drengsins, sem er grunuð um að hafa ráðið honum bana, var framlengt í gær. Innlent 4.4.2024 13:35
Fá 260 milljarða til að þróa tungljeppa Forsvarsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) tilkynntu í gær að þrjú fyrirtæki hefið veru valin til að þróa tungljeppa fyrir geimfara Artemis-áætlunarinnar. geimfarar eiga að nota þennan jeppa á tunglinu og til undirbúnings fyrir geimferðir til Mars. Erlent 4.4.2024 13:00
Segir mögulegt framboð Katrínar jafngilda vantraustsyfirlýsingu á ríkisstjórn Þingmaður Pírata segir það jafngilda vantraustsyfirlýsingu á ríkisstjórnina ef forsætisráðherra ákveður að fara í forsetaframboð. Hún segir það sýna mikið dómgreindarleysi að íhuga framboð sem forsætisráðherra og að ríkisstjórnin sé búin að gera skrípaleik úr því að stjórna landinu. Innlent 4.4.2024 12:57