Erlent
46 47 48 49 50 51 52 53 54 … 334 ›
Hafnaði beiðni Baldwin um frávísun Dómari við bandarískan dómstól hefur hafnað beiðni leikarans Alec Baldwin um að vísa frá ákæru um manndráp af gáleysi þegar Halyna Hutchins lést vegna voðaskots á tökustað myndarinnar Rust. Baldwin leikskýrði og lék í myndinni og hleypti skotinu af byssunni. Erlent 25.5.2024 11:56
„Við munum vinna þennan slag“ Færeyingar búa við eina ströngustu löggjöf er varðar þungunarrof í Evrópu. Dönsk lög frá árinu 1956 gilda þar enn þrátt fyrir að danskar konur hafi getað síðan 1973 undirgengst þungunarrof af eigin frumkvæði til allt að tólftu viku meðgöngu. Hervør Pálsdóttir, þingflokksformaður Þjóðveldisflokksins og meðstjórnandi í samtökunum Frítt Val, frjálst val, segir núverandi lög stuðla að óöryggi og að færeyskar konur muni vinna þennan slag. Erlent 25.5.2024 10:51
Vilja banna snjallsíma fyrir yngri en 16 ára Breskir þingmenn kalla nú eftir því að farsímar verði alfarið bannaðir fyrir börn sem eru 16 ára og yngri og bannaðir alveg í skólum. Þá er einnig kallað eftir því að aðgangur að samfélagsmiðlum verði bundinn við sama aldur. Erlent 25.5.2024 08:53
Segja Pútín vilja vopnahlé sem miðist við núverandi víglínur Vladímír Pútín, forseti Rússlands, er sagður tilbúinn að stöðva innrásarstríð sitt í Úkraínu með vopnahléssamkomulagi sem viðurkennir núverandi átakalínur. Utanríkisráðherra Úkraínu segir Pútín reyna að skemma fyrir áformuðum friðarfundi í næsta mánuði. Erlent 24.5.2024 22:42
Ísrael eigi að láta af öllum hernaðaraðgerðum í Rafah Alþjóðadómstóllinn í Haag úrskurðaði í dag að Ísraelsher ætti að láta af öllum hernaðarðageðrum í Rafah í suðurhluta Gasaborgar. Í úrskurðinum er ekki kveðið á um vopnahlé eins og óskað hafði verið eftir af Suður-Afríku sem kom með máli til dómstólsins. Erlent 24.5.2024 14:42
„Þetta setti af stað dómínó-áhrif út um allan heim“ Nemendur í háskólum Hollands hafa undanfarna daga reist tjaldbúðir á skólalóðum til stuðnings Palestínu, og margir mætt mikilli hörku lögreglu. Íslenskur nemandi lýsir mikilli samstöðu meðal stúdenta sem fara fram á að hollenskir háskólar taki skýrari afstöðu gegn ísraelskum stjórnvöldum og slíti tengslum við ísraelska háskóla og fyrirtæki. Erlent 24.5.2024 10:58
Óttast um afdrif ríflega hundrað eftir aurskriðu Talið er að ríflega eitt hundrað gætu hafa farist þegar aurskriða féll á þorp í Papúa Nýju-Gíneu í nótt. Erlent 24.5.2024 07:15
Allsherjarsigur gegn Hamas ólíklegur Þrátt fyrir umfangsmikinn hernað á Gasaströndinni berjast vígamenn Hamas-samtakanna enn af krafti gegn ísraelska hernum. Þá skjóta Hamas-liðar enn eldflaugum að Ísrael en ráðamenn í Ísrael og í Bandaríkjunum hafa áhyggjur af því að Ísraelar geti ekki náð markmiðum ríkisstjórnar Benjamíns Netanjahú um algeran sigur gegn hryðjuverkasamtökunum. Erlent 24.5.2024 06:44
Segir yfirlýsingar um að FBI hafi mátt skjóta Trump stórhættulegar Dómsmálaráðherra Bandaríkjanna segir fullyrðingar Donalds Trump og bandamanna hans að alríkislögreglan FBI hafi fengið heimild til þess að skjóta hann þegar hún gerði húsleit hjá honum stórhættulegar. Fullyrðingarnar byggjast á stöðluðu orðalagi í tengslum við húsleitir. Erlent 23.5.2024 23:45
Segir samstöðu lykilinn að jarðgangagerð Færeyinga Algjör samstaða um jarðgangagerð er lykillinn að samgöngubyltingu Færeyja, segir ráðherrann Høgni Hoydal, og segir Hvalfjarðargöngin hafa reynst Færeyingum innblástur. Og það eru ekki Danir sem borga. Erlent 23.5.2024 21:55
Fjórir látnir eftir að bygging hrundi á Majorku Fjórir eru látnir eftir að bygging hrundi á spænsku eyjunni Majorka um klukkan hálf níu að staðartíma. 27 manns eru auk þess slasaðir. Erlent 23.5.2024 21:39
Munu þurfa að afplána í Kósovó Erlendir glæpamenn sem hafa verið dæmdir til fangelsisvistar og brottvísunar í Danmörku geta nú séð fram á að afplána dóminn í Kósovó. Þetta varð ljóst eftir að þjóðþing Kósovó samþykkti þar til gerðan samning við dönsk stjórnvöld í dag. Erlent 23.5.2024 12:57
Skoða að leyfa árásir í Rússlandi með bandarískum vopnum Eftir að hann fór í opinbera heimsókn til Úkraínu á dögunum, hefur Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, kallað eftir því að Joe Biden, forseti, afnemi takmarkanir á því hvernig Úkraínumenn mega nota langdræg vopn frá Bandaríkjunum. Úkraínumenn vilja nota þau til árása innan landamæra Rússlands en hefur verið meinað það, hingað til. Erlent 23.5.2024 10:54
Segja fiskiolíu geta aukið líkurnar á gáttatifi og heilablóðfalli Vísindamenn segja mögulega tímabært að leggja lýsispillurnar á hilluna, eða láta þær vera í hillunum, en niðurstöður nýrrar rannsóknar benda til þess að rekja megi aukna áhættu á gáttatifi og heilablóðfalli til neyslu fiskolíu sem fæðubótarefnis. Erlent 23.5.2024 10:53
Kínverjar æfa innrás á Taívan Kínverjar iðka nú tveggja daga langa heræfingu í kringum Taívan og segja þeir æfinguna vera refsingu gagnvart eyjaskeggjum sem þeir saka um aðskilnaðarstefnu. Erlent 23.5.2024 07:53
Níu létust á framboðsfundi Að minnsta kosti níu eru látnir í Mexíkó og um fimmtíu slasaðir eftir að hluti sviðs hrundi í norðurhluta landsins í gærkvöldi. Erlent 23.5.2024 07:27
Fjölskyldur birta myndskeið af blóðugum gíslum Hamas-liða Fjölskyldur kvenna sem teknar voru fanga þegar Hamas-liðar réðust á byggðir Ísraelsmanna 7. október síðastliðinn hafa birt myndskeið af atburðarásinni sem sýnir konurnar blóðugar og óttaslegnar. Erlent 23.5.2024 07:27
Annar umdeildur fáni hékk við annað hús dómara Síðasta sumar blakti annar umdeildur fáni fyrir utan sumarbústað hæstaréttardómarans Samuel Alito í New Jersey Í Bandaríkjunum. Fáninn hefur á undanförnum árum verið bendlaður við hreyfingu íhaldssamra Bandaríkjamanna sem vilja að hin kristna trú hafi stærra hlutverk þegar kemur að stjórnun ríkisins og við stuðningsmenn Donalds Trump, fyrrverandi forseta. Erlent 22.5.2024 23:00
Höfða mál gegn hundrað lögregluþjónum vegna árásarinnar í Uvalde Foreldrar og fjölskyldumeðlimir nítján af 21 sem skotin voru til bana í grunnskóla í Uvalde í Texas árið 2022, ætla að höfða mál gegn nærri því hundrað lögregluþjónum á vegum Texas-ríkis sem komu að viðbrögðum yfirvalda við árásinni. Nítján börn og tveir kennarar voru skotnir til bana í árásinni en viðbrögð lögreglunnar hafa verið harðlega gagnrýnd úr öllum áttum frá því árásin átti sér stað. Erlent 22.5.2024 21:00
Boðar til kosninga í Bretlandi í sumar Rishi Sunak forsætisráðherra Bretlands hefur boðað til þingkosninga í landinu þann 4. júlí næstkomandi. Þetta kom fram á blaðamannafundi hans fyrir utan Downing stræti nú á fjórða tímanum. Erlent 22.5.2024 16:07
Saka Rússa um að skapa ótta á Eystrasalti Ráðherrar ríkja við Eystrasalt segja tilburði Rússa til að breyta mörkum hafsvæða þar hluta af óhefðbundnum hernaði þeirra gegn Evrópu og NATO sem sé ætlað að valda ótta og óvissu. Rússar segja ekkert „pólitískt“ við breytingarnar. Erlent 22.5.2024 12:05
Mikill eldur í höfuðstöðvum Novo Nordisk Mikill eldur hefur brotist út í höfuðstöðvum danska lyfjarisans Novo Nordisk í Bagsværd, úthverfabæ Kaupmannahafnar. Erlent 22.5.2024 11:01
Lýsa hrikalegum aðstæðum í flugi Singapore Airlines: „Það var svo mikið öskrað“ Farþegar í flugvél Singapore Airlines lýsa hrikalegum aðstæðum í mikilli ókyrrð í gær. Vélin var á leið frá London til Singapúr en lenti í Bangkok eftir að hafa lent í ókyrrð. Einn lést og eru tugir slasaðir. 229 voru um borð í vélinni sem er af gerð Boeing 777. Alls voru ríkisborgarar frá 56 löndum í vélinni, þar á meðal einn Íslendingur. Erlent 22.5.2024 10:58
Saka Ísraela um að misbeita lögum til þess að stöðva streymi frá Gasa Ísraelsk stjórnvöld slökktu á vefmyndavél AP-fréttastofunnar sem hefur sýnt Gasa í beinu streymi og lagði hald á hana í gær. AP sakar Ísraela um að misnota ný fjölmiðlalög sem voru nýlega notuð til þess að banna katörsku fréttastofuna al-Jazeera. Erlent 22.5.2024 09:26
Æðsti klerkurinn stýrði útför íranska forsetans Ali Khamenei, æðsti klerkur og leiðtogi Írans, stýrði útför Ebrahims Raisi forseta, utanríkisráðherra hans og fleiri sem fórust í þyrluslysi um helgina. Tugir þúsunda manna fylgdu líkkistum þeirra í gegnum höfuðborgina Teheran. Erlent 22.5.2024 08:54
Lætur líklega reyna aftur á þungunarrofsfrumvarpið Dómsmálaráðherra Færeyja segir vel koma til greina að hann leggi frumvarp um þungunarrof, sem var fellt á jöfnu á dögunum, aftur fyrir færeyska þingið. Færeyingar búa við ströngustu þungunarrofslöggjöf Norðurlandanna. Erlent 22.5.2024 07:48
Rússar sagðir hafa skotið geimvopni á sporbaug Bandaríkjamenn segja að Rússar hafi skotið á loft gervihnetti í síðustu viku sem þeir telja að sé vopnum búinn og geti því skotið aðra gervihnetti niður. Erlent 22.5.2024 07:39
Ísraelar kalla sendiherrana heim frá Noregi, Írlandi og Spáni Utanríkisráðherra Ísraels hefur ákveðið að kalla ísraelska diplómata í Noregi, Spáni og Írlandi heim til skrafs og ráðagerða eftir að stjórnvöld þar tilkynntu í morgun að þau viðurkenndu sjálfstætt ríki Palestínu. Erlent 22.5.2024 07:26
Búist við að Noregur viðurkenni Palestínu sem sjálfstætt ríki Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, og utanríkisráðherrann Espen Barth Eide hafa boðað til blaðamannafundar í dag þar sem búist er við að þeir muni tilkynna að Noregur komi til með að viðurkenna Palestínu sem sjálfstætt ríki. Erlent 22.5.2024 06:13
Sagðist opinn fyrir takmörkunum á getnaðarvarnir Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, sagðist í dag vera opinn fyrir því að takmarka aðgengi Bandaríkjamanna að getnaðarvörnum og að framboð hans myndi brátt birta stefnuskjal um málefnið. Þetta sagði hann í sjónvarpsviðtali, skömmu áður en hann dróg í land og sagði að ummæli sín hefðu verið rangtúlkuð. Erlent 21.5.2024 23:53