Erlent
4 5 6 7 8 9 10 11 12 … 334 ›
Segjast rannsaka ásakanir um kosningasvik í Georgíu Saksóknarar í Georgíu segjast nú rannsaka ásakanir stjórnarandstöðunnar í landinu um að úrslitum þingkosninga sem fóru fram um helgina hafi verið hagrætt. Stjórnarandstaðan og forseti landsins viðurkenna ekki úrslitin. Erlent 30.10.2024 14:51
Beðin um að tilkynna líkfundi Að minnsta kosti 51 er látinn í Valensía-héraði í hamfaraflóðum sem gengið hafa yfir suðausturhluta Spánar síðan í gær. Fjöldi Íslendinga hefur vetursetu á Spáni og í grennd við Valensía en utanríkisráðuneytið fylgist grannt með stöðu mála þar fyrir sunnan. Íslendingur á svæðinu segir óraunverulegt að upplifa hamfarirnar. Erlent 30.10.2024 11:42
Óttast að hermenn Kim öðlist reynslu af hernaði Ráðamenn í Suður-Kóreu óttast að Norður-Kórea fái aukna aðstoð frá Rússlandi í framtíðinni, bæði hernaðarlega og annarskonar aðstoð, og að norðurkóreskir hermenn sem talið er að muni berjast við Úkraínumenn á næstu vikum, öðlist reynslu af hernaði. Reynslu sem gæti aukið getu norðurkóreska hersins til muna. Erlent 30.10.2024 11:38
Sagði Trump heltekinn hefndarvilja Kamala Harris hét því í síðustu stóru ræðu sinni fyrir forsetakosningarnar í næstu viku að hún myndi verða forseti allra Bandaríkjamanna. Á sama tíma sagði hún að Donald Trump, mótframbjóðandi sinn, væri heltekinn hefndarvilja og eigin hagsmuna. Erlent 30.10.2024 08:58
Tala látinna á Spáni hækkar hratt 51 hið minnsta er látinn í Valensía-héraði í hamfaraflóðum sem gengið hafa yfir suðausturhluta Spánar síðan í gær. Erlent 30.10.2024 08:11
Biden í bobba eftir ummæli um rusl Kosningabaráttan í Bandaríkjunum er nú á lokametrunum en nú er tæp vika í að þjóðin gangi að kjörborðinu. Erlent 30.10.2024 07:12
Loftvarnir Íran verulega laskaðar eftir árásir helgarinnar Loftvarnarkerfi Íran skutu niður örfáar ef einhverjar af þeim eldflaugum sem Ísraelar skutu að skotmörkum í landinu um helgina. Loftvarnarkerfin sjálf, sem Íranar fengu frá Rússlandi, voru meðal skotmarkanna. Erlent 29.10.2024 16:24
„Við getum ekki þrýst á fólk að koma til baka“ Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segist ekki geta gert þá kröfu að fólk sem flúið hefur landið vegna innrásar Rússlands snúi aftur til þess að aðstoða í baráttunni. Erlent 29.10.2024 13:58
Naim Qassem tekur við stjórn Hezbollah Forsvarsmenn Hezbollah samtakanna í Líbanon tilkynntu í morgun að Naim Qassem myndi taka við stjórnartaumunum af Hassan Nasrallah, sem felldur var í loftárás í síðasta mánuði. Qassem var næstráðandi Hezbollah en Hashem Safieddine, sem var arftaki Nasrallah, var einnig felldur í loftárás í byrjun október. Erlent 29.10.2024 11:47
Sporvagn af sporinu í Osló og inn í verslun Sporvagn fór af sporinu við Stórugötu í Osló í morgun. Vagninn endaði inn í verslun og fólk sagt hafa slasast í slysinu. Þá skemmdist húsnæðið mikið. Erlent 29.10.2024 10:50
Ákvörðun Ísrael að banna UNRWA vekur reiði og ótta Ísraelska þingið samþykkti í gær að banna Palestínuflóttamannaaðstoð Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) í Ísrael og að skilgreina stofnunina sem hryðjuverkasamtök. Erlent 29.10.2024 06:58
Bæjarstjóri austurrísks bæjar skotinn til bana Óþekktur byssumaður er sagður hafa skotið tvo menn til bana, þar á meðal bæjarstjóra austurrísks smábæjar í morgun. Morðinginn gengur enn laus og reyna þungvopnaðir lögreglumenn nú að elta hann uppi. Erlent 28.10.2024 11:28
Jafnaðarmenn í Litháen unnu sigur Jafnaðarmannaflokkurinn í Litháen, sem hefur verið í stjórnarandstöðu síðustu ár, hlaut flest atkvæði í þingkosningunum sem fram fóru þar í landi í gær. Kristilegir demókratar, með formanninn Gabrielius Landsbergis í broddi fylkingar, hefur viðurkennt ósigur. Erlent 28.10.2024 09:04
Vara eindregið við mengun frá gashelluborðum Mengun frá gashellum er sögð draga 40 þúsund Evrópubúa til dauða á hverju ári, eða tvisvar sinnum fleiri en þá sem deyja í umferðarslysum. Erlent 28.10.2024 08:54
Japanska ríkisstjórnin missti meirihluta sinn Samsteypustjórn Shigeru Ishiba, forsætisráðherra Japans, missti meirihluta sinn í þingkosningum sem fóru fram um helgina. Úrslitin eru sögð skapa óvissu í japönskum stjórnmálum þrátt fyrir að ólíklegt sé talið að stjórnarskipti verði. Erlent 28.10.2024 08:50
Vill hvorki gera meira né minna úr árásunum en ástæða er til Ayatollah Ali Khamenei, æðsti leiðtogi Íran, sagði í gær að það bæri hvorki að gera meira né minna úr árásum Ísrael á föstudag en ástæða væri til. Orð hans þykja benda til þess að alvarleg stigmögnun sé ekki yfirvofandi eins og stendur. Erlent 28.10.2024 08:08
Orðljótir stuðningsmenn Trump létu gamminn geisa í New York Púertó Ríkó er „fljótandi ruslaeyja“, gyðingar nískir og Palestínumenn grjótkastarar. Þá er Kamala Harris and-Kristur og vændiskona. Þetta er meðal þess sem kom fram á kosningafundi Donald Trump í Madison Square Garden í gærkvöldi. Erlent 28.10.2024 07:15
Líkamsleifar manns úr Sverris sögu frá 1197 fundnar Í Sverris sögu, einni af konungasögunum, frá 1197 segir að manni hafi verið fleygt niður brunn við Sverrisborg kastala utan við Niðarós, sem er í dag Þrándheimur. Núna, meira en 800 árum síðar telja vísindamenn að þeir hafi fundið líkamsleifar umrædds manns. Erlent 27.10.2024 23:18
Þingmanni vikið úr Verkamannaflokknum eftir líkamsárás Mike Amesbury, þingmanni Verkamannaflokksins í Bretlandi, hefur verið vikið úr flokknum eftir að myndskeið af honum að berja mann með þeim afleiðingum að hann féll í götuna hafa farið í dreifingu á samfélagsmiðlum og í fjölmiðlum. Erlent 27.10.2024 22:27
Ætla ekki að viðurkenna úrslitin og kalla eftir mótmælum Stjórnarandstaðan í Georgíu véfengir úrslit kosninga sem haldnar voru þar í landi í gær. Embættismenn segja Georgíska drauminn, stjórnarflokk ríkisins, líklega hafa sigrað kosningarnar. Erlent 27.10.2024 10:58
Vannærðir hermenn Kim sagðir „fallbyssufóður“ Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir mögulegt að norðurkóreskir hermenn verði sendir á víglínuna í Úkraínu eða í Kúrsk í dag eða á morgun. Hermennirnir eru þó sagðir smávaxnir og illa búnir fyrir átök á svæðinu og varnarmálaráðherra Suður-Kóreu segir þá fallbyssufóður. Erlent 27.10.2024 10:02
Flutningabíl ekið inn í þvögu í Tel Aviv Að minnsta kosti 35 eru sagðir vera særðir eftir að flutningabíl var ekið inn í þvögu fólks við strætóstoppistöð í úthverfi Tel Aviv í Ísrael í morgun. Lögreglan telur að um hryðjuverk sé að ræða. Erlent 27.10.2024 09:03
Lokaði unnustann í ferðatösku þar til hann lést Sarah Boone, 47 ára kona frá Flórída-ríki í Bandaríkjunum, var dæmd sek fyrir manndráp í gær fyrir dómstólum í Orlando-borg í Flórída. Árið 2020 lokaði hún unnusta sinn í ferðatösku í nokkra klukkutíma þar til hann lést. Erlent 26.10.2024 23:31
Vilja nota Patriot-kerfi á skipum til að skjóta niður kínverskar eldflaugar Forsvarsmenn sjóhers Bandaríkjanna vinna að því að koma Patriot-loftvarnarkerfum fyrir á herskipum. Er það vegna ótta um að Kínverjar gætu notað ofurhljóðfráar eldflaugar til að sökkva herskipum á Kyrrahafi. Erlent 26.10.2024 16:36
Sagður hafa stöðvað stuðningsyfirlýsingu Forsvarsmenn bandaríska miðilsins Washington Post tilkynntu í gær að miðillinn myndi ekki lýsa yfir stuðningi við forsetaframbjóðenda og er það í fyrsta sinn í 36 ár. Auðjöfurinn Jeff Bezos, einn ríkustu manna heims og eigandi miðilsins, er sagður hafa bannað ritstjórn WP að lýsa yfir stuðningi við Kamölu Harris, eins og til stóð. Erlent 26.10.2024 13:24
Óttast umsátur og ofbeldi við kjörstaði Allt er í járnum í Bandaríkjunum nú þegar rúm vika er í forsetakosningar þar ytra. Borgarfulltrúi segir söguna sýna að Trump fái oft meira fylgi en kannanir gefi til kynna. Óttast er að umsátursástand myndist við kjörstaði vegna ólgu í tengslum við kosningarnar. Erlent 26.10.2024 13:01
Íranar segja skaðann „takmarkaðan“ eftir árásir næturinnar Klerkastjórn Íran er þegar byrjuð að gera lítið úr árásum Ísrael á landið í nótt. Þær eru sagðar hafa beinst gegn hernaðarskotmörkum í landinu og segja ráðamenn í Íran að skaðinn hafi verið „takmarkaður“. Ísraelar segja árásunum lokið og að þær hafi verið gerðar á loftvarnarkerfi, eldflaugaverksmiðjur og önnur skotmörk. Erlent 26.10.2024 07:29
Ísrael gerir loftárás á Íran Ísraelski herinn hefur hafið loftárásir á Íran. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ísraelsher en þeir segjast nú framkvæma hnitmiðaðar árásir á hernaðarleg skotmörk í Íran. Erlent 26.10.2024 00:01
Víðfrægur rappari grunaður um að ráða launmorðingja Lil Durk, Grammy-verðlaunahafi og bandarískur rappari, var handtekinn í gær grunaður um að hafa ráðið launmorðingja til að ráða keppinaut sinn af dögunum. Erlent 25.10.2024 23:25
Ógnarstór loftsteinaárekstur eins og áburður fyrir líf á jörðinni Vísbendingar eru um að loftsteinaárekstur sem var margfalt stærri en sá sem grandaði risaeðlunum hafi hjálpað lífverum með því að dreifa næringarefnum um jörðina. Talið er að höfin hafi soðið og stærsta flóðbylgja sem vitað er um hafi fylgt árekstrinum. Erlent 25.10.2024 15:36