Erlent
6 7 8 9 10 11 12 13 14 … 334 ›
Fyrrverandi forseti í tuttugu ára fangelsi fyrir mútuþægni Dómstóll í Perú dæmdi Alejandro Toledo, fyrrverandi forseta landsins, í tuttugu og hálfs árs fangelsi fyrir mútuþægni í gær. Múturnar sem Toledo þáði tengdust stærsta spillingarmáli sem skekið hefur heimshlutann. Erlent 22.10.2024 11:30
Sautján daga fyrirburi tekinn af sjúkrahúsi í París Lögreglan í París hefur lýst eftir sautján daga gömlum fyrirbura sem tekinn var frá sjúkrahúsi í borginni í gær. Foreldrar drengsins liggja undir grun og eru þau talin hafa tekið barnið af sjúkrahúsinu seint í gærkvöldi. Erlent 22.10.2024 11:07
Samþykktu naumlega að stefna að ESB-aðild Naumur meirihluti kjósenda í Moldóvu samþykkti stjórnarskrárbreytingu sem leggur grunninn að Evrópusambandsaðild fyrrum Sovétlýðveldisins. Niðurstaðan þykir koma á óvart þar sem talið var að breytingin yrði samþykkt með ríflegum meirihluta. Forseti landsins sakar Rússa um að reyna að hafa áhrif á úrslitin. Erlent 22.10.2024 10:33
Fjölmiðlar lengi í vanda með Trump: „Þetta er ekki eðlilegt“ Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna og forsetaframbjóðandi, hóf langa ræðu sína í Latrobe í Pennsylvaníu um helgina á því að ræða stærð typpis golfkappans Arnold Palmer. Sagði hann aðra golfara hafa verið slegna þegar þeir fóru með Palmer í sturtu. Erlent 22.10.2024 10:21
Weinstein greindur með krabbamein Kvikmyndaframleiðandinn og kynferðisbrotamaðurinn Harvey Weinstein hefur verið greindur með krabbamein, nánart tiltekið langvinnt kyrningahvítblæði. Erlent 22.10.2024 08:35
Segja Hezbollah fela gull og fúlgur fjár undir sjúkrahúsi í Beirút Sahel-sjúkrahúsið í Dahiyeh-hverfinu í Beirút í Líbanon var rýmt eftir að Ísrael sagði Hezbollah-samtökin geyma hundruð milljóna dollara í reiðufé og gulli í byrgi undir spítalanum. Erlent 22.10.2024 07:28
Úkraínumenn reiðir vegna fyrirhugaðs fundar Guterres og Pútín Stjórnvöld í Úkraínu eru sögð afar ósátt með fregnir þess efnis að António Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hyggist funda með Vladimir Pútín Rússlandsforseta á fimmtudaginn. Erlent 22.10.2024 06:59
Krefjast þess að Rússar sendi hermenn Kim heim Utanríkisráðherra Suður-Kóreu kallaði sendiherra Rússlands þar í landi á teppið í morgun. Kim Hong Kyun krafðist þess við Georgy Zinoviev að hermenn frá Norður-Kóreu yrðu sendir frá Rússlandi. Erlent 21.10.2024 13:01
Efast um lögmæti milljóna dala gjafa Musks til kjósenda Auðjöfurinn Elon Musk hefur heitið því að gefa einum skráðum kjósenda í svokölluðum sveifluríkjum í Bandaríkjunum milljón dali á degi hverjum fram að kosningum. Sérfræðingar segja þetta mögulega ólöglegt og ríkisstjóri Pennsylvaínu hefur kallað eftir því að málið verði rannsakað. Erlent 21.10.2024 10:35
Óvíst um endanleg úrslit varðandi Evrópustefnu Moldóvu Um helmingur kjósenda í Moldóvu vill ganga í Evrópusambandið, ef marka má niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslu sem gengið var til í gær, þegar 97,66 prósent atkvæða hafa verið talin. Erlent 21.10.2024 07:48
Fethullah Gülen er látinn Tyrkneski prédikarinn Fethullah Gülen, sem bjó síðustu ár í sjálfskipaðri útlegð í Bandaríkjunum, er látinn, 83 ára að aldri. Erlent 21.10.2024 07:34
Vígahópum vex ásmegin: Stór hluti Sahelsvæðisins í hættu Óreiða ríkir á stórum hlutum Sahelsvæðisins í Afríku. Átök eru víða og hafa þau komið verulega niður á fólki sem býr þar og er hætta á að óreiðan muni dreifa úr sér á komandi mánuðum og árum með tilheyrandi ódæðum, óstöðugleika og fólksflótta. Erlent 21.10.2024 07:03
Gerðu árásir á útibú meintrar fjármálaþjónustu Hezbollah Hundruð íbúa Beirút flúðu heimili sín í gærkvöldi eftir að Ísraelsher gaf út að árásir væru yfirvofandi á útibú fjármálasamsteypunnar Al-Qard Al-Hassan Association. Erlent 21.10.2024 06:52
Þrír táningar létust í bílslysi í Svíþjóð Þrír ungir piltar – tveir ára og einn sautján – eru látnir eftir að bílslys varð skammt frá Luleå í norðurhluta Svíþjóðar í nótt. Átján ára stúlka slasaðist einnig lífshættulega í slysinu. Erlent 20.10.2024 12:59
Enn rafmagnslaust á Kúbu Enn er rafmagnslaust á Kúbu eftir að stjórnvöldum mistókst í þriðja sinn að koma á rafmagni rétt fyrir miðnætti í gær, laugardag. Rafmagn fór fyrst af á föstudag þegar bilun varð í einu stærsta orkuveri landsins. Í gær, laugardag, hrundi kerfið svo aftur þegar var verið að reyna að koma aftur á rafmagni. Erlent 20.10.2024 08:45
„Tilraun Hezbollah til að ráða mig og konu mína af dögum voru stór mistök“ Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, hefur sakað Hezbollah um að reyna að ráða sig af dögum í dag eftir að dróna frá Líbanon var skotið í átt að heimili hans í bænum Caesarea. Hvorki forsætisráðherrann né kona hans voru heima og sakaði engan. Erlent 19.10.2024 22:17
Aftur rafmagnslaust á Kúbu Kúba varð rafmagnslaus í annað sinn á rúmum sólahring í dag. Tilkynnt var um það í gærkvöldi að landið væri allt rafmagnslaust vegna bilunar í einu stærsta orkuveri landsins. Í frétt á Guardian segir að rafmagnskerfið hafi svo hrunið í annað sinn eftir að yfirvöld voru byrjuð að koma rafmagni aftur á. Erlent 19.10.2024 13:36
Sprengjudróni hæfði heimili Netanjahús Sprengjudróni hæfði heimili Benjamíns Netanjahús, forsætisráðherra Ísraels, snemma í morgun. Um er að ræða hús hans í Sesareu í norðurhluta Ísraels. Erlent 19.10.2024 10:42
Sér ekki á svörtu hjá „hinum útvalda“ „Skekkjumörkin eru yfirleitt í kringum tvö og hálft til þrjú og hálft prósent, þannig að þetta er allt innan skekkjumarka,“ sagði Friðjón R. Friðjónsson, sérlegur áhugamaður um bandarísk stjórnmál, í Baráttunni um Bandaríkin í vikunni. Erlent 19.10.2024 09:01
Heita hertum reglum í hælisleitendamálum Leiðtogar Evrópusambandsins leita nú leiða til að draga úr flæði farand- og flóttafólks til heimsálfunnar. Stuðningur við slíkar aðgerðir hefur aukist töluvert og er sú aukning rakin til aukins fylgis fjar-hægri flokka í Evrópu, sem eru verulega mótfallnir fólksflutningum til Evrópu. Erlent 18.10.2024 17:02
Ætlar ekki að leyfa Úkraínu að eignast kjarnorkuvopn Vladimír Pútín, forseti Rússlands, segir að hann muni ekki leyfa Úkraínumönnum að koma sér upp kjarnorkuvopnum. Líkti hann ummælum ráðamanna í Úkraínu um að slíkt kæmi til greina sem „ögrun“ og hét hann því að sigra Úkraínumenn. Erlent 18.10.2024 15:31
Bar fram samsæriskenningar á fyrsta kosningafundinum Elon Musk, einn auðugasti maður heims, bar í gær upp gamlar og ósannar samsæriskenningar um kosningasvik í forsetakosningunum 2020. Það gerði hann á kosningafundi fyrir Donald Trump í Pennsylvaníu og gaf hann meðal annars til kynna að kosningavélar Dominion Voting Systems hefðu verið notuð til kosningasvika. Erlent 18.10.2024 14:21
Auðkýfingurinn ekki lengur grunaður um dauða eiginkonunnar Saksóknarar í Noregi hafa fellt niður rannsókn á Tom Hagen, auðkýfingi, sem var sakaður um að myrða eiginkonu sína, Anne-Elisabeth Hagen. Engar sannanir hafi komið fram um að Hagen hafi borið ábyrgð á hvarfi hennar fyrir sex árum. Erlent 18.10.2024 10:04
Kim sagður ætla að senda tólf þúsund menn til Rússlands Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, hefur ákveðið að senda fjögur stórfylki, eða um tólf þúsund hermenn, til aðstoðar Rússa við innrás þeirra í Úkraínu. Kim sendi hóp sérveitarmanna tli Rússlands í ágúst þar sem þeir fengu fölsk skilríki og hljóta þjálfun, áður en þeir verða sendir til Úkraínu. Erlent 18.10.2024 09:51
Telja árásir sænskra unglinga runnar undan rifjum Írana Sænska öryggislögreglan telur að írönsk stjórnvöld hafi fengið þarlend glæpagengi til þess að ráðast á ísraels fyrirtæki og sendiskrifstofur á Norðurlöndum undanfarnar vikur. Gengin hafa notað unglinga sem handbendi sín í þeim árásum. Erlent 18.10.2024 09:35
Hafa birt myndskeið af síðustu augnablikum Sinwar Ísraelsher hefur birt myndskeið sem er sagt sýna hinstu stund Yahya Sinwar, leiðtoga Hamas og skipuleggjanda árásanna 7. október. Erlent 18.10.2024 08:55
Dauði Sinwar tækifæri til að binda enda á stríðið Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur hvatt Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, til að horfa fram á við og taka næstu skref í átt að vopnahléi á Gasa, í kjölfar fregna af því að Ísraelsher hefði banað Yahya Sinwar, leiðtoga Hamas. Erlent 18.10.2024 07:31
Fall Sinwar „upphafið að endinum“ Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísrael segir fall leiðtoga Hamas Yahya Sinwar „upphafið að endinum“ en Ísraelar muni „ekki stöðva stríðið“. Erlent 17.10.2024 23:38
Staðfesta andlát leiðtoga Hamas Ísraelski herinn hefur staðfest að þeir hafi banað Yahya Sinwar, leiðtoga Hamas-samtakanna, í átökum á Gasaströndinni í gær. Lík hans fannst í dag og í DNA-rannsókn hefur leitt í ljós að um hann hafi verið að ræða. Erlent 17.10.2024 17:52
Leiðtogi Hamas „líklega“ felldur Forsvarsmenn ísraelska hersins segja líklegt að Yahya Sinwar, leiðtogi Hamas-samtakanna, hafi verið felldur í átökum á Gasaströndinni . Hermenn eru sagðir hafa séð Sinwar og aðra menn á förnum vegi í Rafah á sunnaverðri Gasaströndinni og kallað eftir loftárás á byggingu sem þeir voru í. Erlent 17.10.2024 13:31