Innlent
325 326 327 328 329 330 331 332 333 … 334 ›
Almannavarnastig lækkað niður á hættustig Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum, hefur ákveðið að færa almannavarnastig af neyðarstigi niður á hættustig vegna eldgos á Reykjanesskaga. Innlent 22.12.2023 14:25
Þrjátíu milljónir til verkefna gegn fíknisjúkdómum Heilbrigðisráðherra hefur úthlutað þrjátíu milljónum króna í styrki til frjálsra félagasamtaka vegna verkefna sem miða að því að vinna gegn fíknisjúkdómum, einkum ópíóíðafíkn. Hæsti styrkurinn, átta milljónir króna, rennur til verkefnis Matthildar, samtaka um skaðaminnkun. Innlent 22.12.2023 14:19
Héraðssaksóknari vill ná tali af manni Héraðssaksóknari óskar eftir að ná tali af aðila á meðfylgjandi myndum vegna máls sem er til rannsóknar. Innlent 22.12.2023 13:35
Samningsaðilar samstíga eftir fyrsta fundinn Fyrsti fundur nýrrar breiðfylkingar langflestra félaga ASÍ og Samtaka atvinnulífsins fór fram hjá ríkissáttasemjara í morgun. Samningsaðilar segja mikla samstöðu um að ná samningum, sem stuðla að hjöðnun verðbólgu, hratt og vel. Innlent 22.12.2023 12:55
Dómarinn vann í Hæstarétti og ríkið situr í súpunni Hæstiréttur hefur dæmt Ástríði Grímsdóttur héraðsdómara í vil í launadeilu hennar við íslenska ríkið. Hæstiréttur taldi að ríkið hafi ekki mátt krefja Ástríði, og um 260 æðstu embættismenn landsins, um endurgreiðslu launa. Meintar ofgreiðslur námu ríflega hundrað milljónum króna í heildina. Innlent 22.12.2023 12:39
Nægar ástæður fyrir Willum að auglýsa stöðu Markúsar Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra mátti auglýsa stöðu forstjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja í september síðastliðnum. Fráfarandi forstjóri stofnunarinnar stefndi íslenska ríkinu vegna ákvörðunar ráðherra og krafðist þess að hún yrði felld úr gildi. Þá vildi hann bætur frá ríkinu. Ríkið var sýknað í málinu og er niðurstaðan afdráttarlaus. Innlent 22.12.2023 12:17
Skýr merki um landris og kvikusöfnun við Svartsengi Skýrt landris er við Svartsengi samkvæmt GPS mælum á svæðinu. Jarðeðlisfræðingur segir þrjár sviðsmyndir í boði en að erfitt sé að segja til um það hvað gerist næst. Enn sé nokkur hætta á svæðinu. Innlent 22.12.2023 12:01
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum Bylgjunnar verður sagt frá því að fyrsti fundur nýrrar breiðfylkingar langflestra félaga ASÍ og Samtaka atvinnulífsins fór fram hjá ríkissáttasemjara í morgun. Samningsaðilar segja mikla samstöðu um að ná samningum, sem stuðla að hjöðnun verðbólgu, hratt og vel. Innlent 22.12.2023 11:45
Landsréttur mátti ekki vísa meiðyrðamáli Hugins frá Hæstiréttur hefur fellt frávísunarúrskurð Landsréttar úr gildi og lagt fyrir Landsrétt að taka meiðyrðamál Hugins Þórs Grétarssonar á hendur Maríu Lilju Þrastardóttur Kemp til efnislegrar meðferðar. Hæstiréttur féllst á það að ýmsir annmarkar hefðu verið á málatilbúnaði Hugins Þórs en taldi ekki næg efni til að vísa málinu frá. Innlent 22.12.2023 11:23
Aðstæður eins og í Austurríki Skíðasvæðin í Bláfjöllum og Hlíðarfjalli verða opnuð í dag, í fyrsta sinn í vetur. Rekstrarstjóri Bláfjalla segir að skíðafæri gæti vart verið betra og lofar sannkallaðri hátíðarstemningu í brekkunum í dag. Innlent 22.12.2023 11:22
Anna og Jón algengust Algengustu nöfnin, meðalaldur þjóðarinnar, hagvöxtur og mannfjöldaþróun er meðal þess sem tekið er saman í jóla-og áramótamyndbandi Hagstofunnar. Innlent 22.12.2023 11:12
Varð valdur að banaslysi vegna þreytu Karlmaður hefur verið dæmdur til eins mánaðar skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir að hafa valdið banaslysi við Hítará í sumar af stórfelldu gáleysi. Slysið var talið mega rekja til þess að maðurinn hafi verið ófær um að stjórna bifreið vegna þreytu. Innlent 22.12.2023 10:11
Líf færist í skíðabrekkur landsins Skíðasvæðið í Bláfjöllum verður opið í dag, í fyrsta sinn í vetur. Góðar aðstæður eru á svæðinu,-12° og logn. Skíðagarpar í jólafríi ættu því að kætast, en einnig verður opið í Hlíðarfjalli á Akureyri. Innlent 22.12.2023 09:20
Sparar sér hundruð þúsunda vegna tómlætis leigusala Kærunefnd húsamála hefur fallist á kröfu leigutaka um viðurkenningu á því að honum beri ekki að greiða kröfu leigusala um vísitöluhækkun á leigu, sem var gerð tæpum níu mánuðum eftir að leigutíma lauk. Innlent 22.12.2023 09:00
Daginn tekur að lengja á ný Vetrarsólstöður voru á fjórða tímanum í nótt. Frá og með deginum í dag tekur sól að hækka á lofti og hver dagur verður örlítið lengri en dagurinn á undan, mörgum eflaust til mikillar ánægju. Innlent 22.12.2023 08:41
Norðurland vill ísbirnina heim Ísbirnir hafa borið á góma á sveitarstjórnarfundum tveggja sveitarfélaga á Norðurlandi á síðustu dögum. Í Skagafirði óskaði Náttúrustofa Norðurlands vestra eftir því að fá uppstoppaðan ísbjörn, sem hefur safnað ryki í geymslu sveitarfélagsins, til sín og hafa hann til sýnis. Innlent 22.12.2023 07:01
Deilur um Kristján Loftsson og litla fræðslubók Farsakennd atburðarás um hvalveiðar. Kristján Loftsson og konurnar í tunnunum. Krafa um afsökunarbeiðni í Karphúsinu og eftirtektarverðir Bomber jakkar Eflingarfólks. Óvænt útspil Heimis Más Péturssonar, sjókvíaeldi og hatrammar deilur um eina litla fræðslubók. Þetta eru deilur ársins 2023. Innlent 22.12.2023 07:01
Funda um mögulega kvikusöfnun undir Svartsengi klukkan 9 og 13 Rólegt var á Reykjanesskaga í nótt og lítil jarðaskjálftavirkni á svæðinu. Innlent 22.12.2023 06:44
Fimm útköll vegna líkamsárása og slagsmála Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti nokkuð fjölbreyttum verkefnum í gærkvöldi og nótt og bárust meðal annars fimm tilkynningar vegna líkamsárása og slagsmála. Innlent 22.12.2023 06:39
Óljóst hvenær dvalarleyfishafar geta yfirgefið Gasa Utanríkisráðuneytið segir það alfarið á ábyrgð félags- og vinnumarkaðsráðuneytis að eiga í samskiptum við Alþjóðafólksflutningastofnunina (IOM) vegna þeirra 100 einstaklinga sem hafa fengið dvalarleyfi á Íslandi en eru enn föst á Gasa. Innlent 21.12.2023 23:30
Svona gætu eldgosin orðið ef þau líkjast Kröflueldum Kvikusöfnun virðist hafin að nýju undir Svartsengi. Vísindamenn segja þessa atburðarás og þetta stutta eldgos, sem lauk í dag, helst minna á Kröfluelda. Innlent 21.12.2023 21:31
Nýjar myndir frá rjúkandi gosstöðvum Eldgosinu við Sundhnúksgíga virðist lokið. Nýjar myndir frá gosstöðvunum sýna að enn er glóð í nýja hrauninu en virkni er alveg dottin niður. Bæjarstjóra Grindavíkur segir goslok góðar fréttir - en vill ekki fagna of fljótt. Innlent 21.12.2023 21:01
Fengu leðurblöku á svalirnar í Kópavogi Harpa Eik Óskarsdóttir og Valgarð Hrafnsson urðu heldur betur hissa síðdegis í dag þegar leðurblaka flaug inn á lokaðar svalir þeirra á níundu hæð í fjölbýlishúsi í Kópavogi. Innlent 21.12.2023 20:24
Vilja að gistiskýlin séu opin allan daginn yfir jólin Hópur heimilislausra manna mótmæltu lokun gistiskýlanna í Ráðhúsinu í dag. Þeir vilja fá að vera á sama staðnum allan daginn, og sérstaklega yfir jólin. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks og Sósíalistaflokks segja hægt að gera meira fyrir heimilislausa. Innlent 21.12.2023 20:00
Undirbúa málshöfðun á hendur ríkinu vegna lokana í Grindavík Fyrrverandi hæstaréttardómarinn Jón Steinar Gunnlaugsson hefur tekið að sér mál nokkurra Grindvíkinga sem hyggja á málshöfðun á hendur ríkinu vegna lokana í Grindavík. Jón telur stjórnvöldum ekki heimilt að banna Grindvíkingum að fara til sinna heima, en þeir hafa búið við strangar takmarkanir um hvort og hvenær þeir mega vera í bænum frá því snemma í nóvember. Innlent 21.12.2023 19:24
Söguleg breiðfylking stefnir að því að keyra niður vexti og verðbólgu Ný breiðfylking með um 93 prósent félagsmanna Alþýðusambandsins hefur sameinast um kröfur og markmið í nýjum kjarasamningum til þriggja ára. Formaður Eflingar segir stefnt að hóflegum launahækkunum til að keyra niður vexti og verðbólgu hratt og örugglega. Ef allt gangi að óskum verði hægt að ganga frá tímamóta samningum snemma á næsta ári. Innlent 21.12.2023 18:31
Halda sig innandyra eftir mannskæða skotárás Fimmtán létust og á þriðja tug særðust í skotárás í Karlsháskóla í miðborg Prag í dag. Lögregluyfirvöld í Tékklandi telja að hættan sé liðin hjá en árásarmaðurinn er látinn. Hann var tuttugu og fjögurra ára. Líkið af honum fannst í skólanum. Lögregluyfirvöld segja þá að faðir árásarmannsins hafi í dag fundist látinn skammt frá Prag. Innlent 21.12.2023 18:15
Allir drengirnir komnir út á flugvöll með föður sínum Allir þrír synir Eddu Bjarkar Arnardóttur eru komnir í umsjá föður síns. Þeir eru nú á Keflavíkurflugvelli þaðan sem þeir fara með föður sínum til Noregs í kvöld. Innlent 21.12.2023 18:10
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Eldgosinu við Sundhnúksgíga virðist lokið. Nýjar myndir frá gosstöðvunum sýna að enn er glóð í nýja hrauninu en virkni er alveg dottin niður. Bæjarstjóra Grindavíkur er létt yfir goslokum. Innlent 21.12.2023 18:00
Vísbendingar um að kvikusöfnun sé hafin að nýju Vísbendingar eru um að kvikusöfnun sé hafin að nýju undir Svartsengi. Náttúruvásérfræðingur segir sérfræðinga búa sig undir möguleikann á ítrekaðri virkni. Innlent 21.12.2023 17:52