Innlent
48 49 50 51 52 53 54 55 56 … 334 ›
Greiða atkvæði um verkfall í níu skólum fram á fimmtudag Magnús Þór Jónsson formaður KÍ er þögull sem gröfin um nöfn þeirra skóla þar sem verkfall gæti hafist í lok mánaðar. Greidd verða atkvæði um verkfall í níu skólum og atkvæðagreiðslu lýkur á fimmtudag. Innlent 8.10.2024 20:24
Ýmsar áhyggjur varðandi flóttamenn í JL-húsinu Íbúar í nágrenni við JL-húsið hafa áhyggjur af fyrirætlunum yfirvalda um úrræði fyrir allt að fjögur hundruð umsækjendur um alþjóðlega vernd. Ekkert samráð var haft við íbúa áður en fréttir voru sagðar af áformum þessum. Innlent 8.10.2024 19:24
Ekkert á hreinu um næstu kosningar Forsætisráðherra segir að ríkisstjórn sem ekki hafi burði til að ljúka málum, eigi að pakka saman. Formaður Vinstri grænna sagði eftir ríkisstjórnarfund í morgun að oddvitar stjórnarflokkanna ættu eftir að ræða forgangsröðun mála og tímasetningu kosninga. Innlent 8.10.2024 19:21
Snjóþekja á Hellisheiði Vetur konungur virðist kominn á suðvesturhornið og lét hann fyrst sjá sig á Hellisheiðinni í dag. Þá hefur snjóað í fjöll við höfuðborgarsvæðið undir kvöld. Innlent 8.10.2024 18:55
Leynd yfir aðgerðum kennara og í beinni frá höllinni Skæruverkföll eru fram undan í átta skólum samþykki kennarar verkfall í atkvæðagreiðslu sem er hafin. Ekki hefur verið gefið upp í hvaða skólum kennarar hyggjast leggja niður störf en formaður Kennarasambands Íslands mætir í myndver og segir frá fyrirhuguðum aðgerðum og stöðu deilunnar í beinni í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 8.10.2024 17:39
Ákærður fyrir að nauðga barnungri frænku sinni Karlmaður hefur verið ákærður fyrir að nauðga náfrænku sinni á barnsaldri. Við húsleit lögreglu kom í ljós að maðurinn hafði mikið magn barnaníðsefnis, þar á meðal af stúlkunni, í fórum sínum. Innlent 8.10.2024 17:03
Milljónagreiðslur haldi stjórnarflokkunum saman Ríkisstjórnarflokkarnir ætla sér að hanga saman fram yfir 25. janúar 2025 til þess að þiggja ríkisstyrk miðað við núverandi þingstyrk, sem nemur mörg hundruð milljónum. Innlent 8.10.2024 15:59
Skorti langtímarannsóknir á áhrifum Ozempic og Wegovy Læknir segir skynsamlegt að setja vinnureglur um hvenær skuli ávísa þyngdarstjórnunarlyfjum og hvenær ekki. Það muni taka nokkur ár í viðbót áður en góður skilningur fáist á langtímaávinningi og mögulegum aukaverkunum af lyfjunum. Innlent 8.10.2024 15:02
Bílastæðin malbikuð og nýr útsýnispallur fyrir fatlað fólk Íris Guðnadóttir, einn landeigenda við Reynisfjöru, segir nýju bílastæðin bæta umferðaröryggi við þennan vinsæla ferðamannastað til muna. Búið er að malbika bílastæðin og merkja gönguleiðir á bílastæðin sjálf. Þá er einnig búið að gera göngustíg á milli bílastæða en um 300 metrar eru á milli. Innlent 8.10.2024 14:53
Reyna að ná til nýbúa til að Ísland verði fyrsta reyklausa þjóðin Prófessorar og sérfræðingar í krabbameini og reykleysi segja brýnt að ná til innflytjenda hérlendis þar sem reykingar eru mun algengari en almennt gerist í landinu. Markmiðið að gera Ísland að reyklausri þjóð sé innan seilingar. Fyrirtæki eru hvött til að nálgast myndskreitta bæklinga á þremur tungumálum og kynna fyrir starfsfólki. Innlent 8.10.2024 14:42
Varaþingmaður Miðflokksins vill skoða að stofna íslenskt varnarlið Skoða ætti kosti þess að stofna íslenskt varnarlið sem hefði hernaðarlega þjálfun, að mati varaþingmanns Miðflokksins í Norðausturkjördæmi. Dýrmætt væri fyrir þjóðina að Íslendingar gætu gengið í norska herinn til þess að fá þjálfun og reynslu. Innlent 8.10.2024 14:33
Kennarar greiða atkvæði um verkfall Félagsmenn aðildarfélaga Kennarasambands Íslands í fjórum leikskólum, þremur grunnskólum og einum framhaldsskóla greiða atkvæði um verkföll sem hefjast eiga í lok mánaðar. Atkvæðagreiðslurnar hófust á hádegi í dag en ekki er greint frá í hvaða skólum er greitt atkvæði um verkföll. Innlent 8.10.2024 14:08
Svandís og Sigurður Ingi verja flugvallarákvörðun Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra segist hafa verið að framkvæma gamla ákvörðun með tilmælum til Isavia um að færa girðingu Reykjavíkurflugvallar svo að Reykjavíkurborg gæti fengið flugvallarland í Skerjafirði til húsbygginga. Innlent 8.10.2024 14:06
Rukka fyrir stæðin í þjóðgarðinum Sérstök bílastæðagjöld verða tekin upp í Snæfellsjökulsþjóðgarði næsta sumar. Tekjurnar eru sögð munu breyta rekstrarumhverfi þjóðgarðsins og nýtast til að standa kostnað af þjónustu. Innlent 8.10.2024 12:57
Yazan og fjölskylda komin með vernd Yazan Tamimi, ellefu ára langveikur drengur frá Palestínu og fjölskylda hans, fengu fyrr í dag samþykkta viðbótarvernd hjá Útlendingastofnun. Fjölskyldan var boðuð í viðtal og tilkynnt um þetta. Lögmaður fjölskyldunnar segir bæði kærunefnd útlendingamála og Útlendingastofnun hafa unnið hratt að umsókn þeirra. Innlent 8.10.2024 12:26
„Þetta er bara órætt okkar á milli“ Forsætisráðherra segist ekkert hafa rætt hugsanlegar kosningar í vor við hina formenn ríkisstjórnarflokkanna. Landsfundur Vinstri grænna ályktaði um helgina að ganga verði til kosninga næsta vor. Innlent 8.10.2024 12:20
Alvarleg staða á leikskólunum sem þurfi að taka á tafarlaust Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir mikla starfsmannaveltu á leikskólum borgarinnar vera alvarlegt vandamál sem þurfi að taka á tafarlaust. Hún vill að leitað verði nýrra leiða í leikskólamálum og Kópavogsmódelið tekið upp. Innlent 8.10.2024 12:18
Ekkert nema styrkleikamerki að birta öryggisveikleika Stofnandi Defend Iceland vill knýja fram viðhorfsbreytingu um öryggisveikleika. Hann fullyrðir að þeir séu jákvæðir ef þeir eru meðhöndlaðir á ábyrgan hátt; tilkynntir og birtir í forvarnaskyni. Sumum finnist óþægilegt að sýna veikleikamerki en ef veikleikinn er meðhöndlaður sé það ekkert annað en styrkleikamerki. Innlent 8.10.2024 12:02
Hugmyndir VG um vorkosningar óræddar og Kópavogsmódelið í borginni Bjarni Benediktsson forsætisráðherra segir að hugmyndir Vinstri grænna um að gengið verði til kosninga í vor hafi ekki verið rætt milli formanna ríkisstjórnarflokkanna. Hann segir ríkisstjórnina eiga að halda áfram störfum þar til hún hefur lokið þeim verkefnum sem hún getur lokið. Rætt verður við Bjarna í hádegisfréttum á Bylgjunni. Innlent 8.10.2024 11:46
Verður kominn í rafrænt eftirlit þremur árum eftir manndrápið Sæmundur Tryggvi Norðquist Sæmundsson, nítján ára karlmaður sem hlaut tólf ára fangelsisdóm fyrir manndráp við Fjarðarkaup í apríl í fyrra, afplánar nú á áfangaheimilinu Vernd. Þar má hann vera í átján mánuði og eftir það fer hann í rafrænt eftirlit, gangi allt að óskum. Innlent 8.10.2024 11:32
Skjáskotin hafi ekki farið í dreifingu Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingflokksformaður Pírata segir að hvorki hún né þingflokkur Pírata hafi beitt sér gegn lýðræðislegra kjörinni framkvæmdastjórn flokksins. Hún segir því fara fjarri að hún eða þingflokkurinn hafi brotið persónuverndarlög, skjáskot af spjalli stjórnarmeðlima hafi ekki farið í neina dreifingu. Innlent 8.10.2024 11:29
Innan við helmingur nú hlynntur flugvelli í Vatnsmýri Tæpur helmingur segist hlynntur því að flugvöllur verði í Vatnsmýrinni til framtíðar í nýrri skoðanakönnun. Hlutfallið hefur lækkað umtalsvert síðasta áratuginn. Hlutfall þeirra sem eru andvígir flugvellinum þar hefur þó lítið breyst. Innlent 8.10.2024 11:28
„Eins og við höfum verið að hitta gamla vini” Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, segir móttökur Friðriks X Danakonungs og Mary drottningar hafa verið ótrúlega hlýjar og skemmtilegar. Innlent 8.10.2024 11:10
Flugfreyjurnar segjast eiga sinn þátt í flugævintýrinu Fyrrverandi flugfreyjur, sem voru fyrsta kynslóðin sem gerðu starfið að ævistarfi, segjast ekki síður en karlarnir hafa átt þátt í að skapa íslenska flugævintýrið. Í þættinum Flugþjóðin er rætt við fjölda núverandi og fyrrverandi starfsmanna úr fluggeiranum. Innlent 8.10.2024 10:55
Söguleg heimsókn konungshjónanna í Jónshús Halla Benediktsdóttir umsjónarmaður Jónshúss í Kaupmannahöfn segir það afar merkilegt að Friðrik X Danakonungur komi, ásamt Höllu Tómasdóttur forseta Íslands, í heimsókn í Jónshús í dag. Það hafi aldrei gerst áður að þjóðhöfðingi Danmerkur sækir menningarmiðstöð Íslands í Kaupmannahöfn heim. Innlent 8.10.2024 10:14
Skrifstofustjóri með tuttugu ára reynslu nýr ráðuneytisstjóri Innviðaráðherra skipaði Ingilín Kristmannsdóttur í embætti ráðuneytisstjóra innviðaráðuneytisins. Ingilín hefur starfað í tuttugu ár fyrir ráðuneytið og forvera þess, síðustu tvö árin sem skrifstofustjóri stefnumótunar og fjárlaga. Innlent 8.10.2024 09:45
Þorbjörg ætlar sér fyrsta sætið Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar, sækist eftir fyrsta sætinu í prófkjöri Viðreisnar í Reykjavík sem fyrirhugað í tengslum við næstu alþingiskosningar sem munu að óbreyttu fara fram á næsta ári. Innlent 8.10.2024 08:58
Drottningin baðst afsökunar á því að geta ekki boðið betra veður Ríkisheimsókn Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, og Björns Skúlasonar eiginmanns hennar til Danmerkur hófst í dag. Forsetahjónin komu siglandi að gömlu tollbryggjunni í Kaupmannahöfn klukkan tíu að staðartíma þar sem konungshjónin, Friðrik X og kona hans Mary, tóku á móti þeim. Innlent 8.10.2024 08:50
Engu um að kenna nema „handónýtu kerfi“ Inga Dagný Ingadóttir, móðir hinnar tíu ára Kolfinnu Eldeyjar sem ráðinn var bani í síðasta mánuði, segir um að ræða hörmulegan og ófyrirsjáanlegan atburð sem ekki sé hægt að kenna neinu öðru um en „handónýtu kerfi“. Innlent 8.10.2024 07:41
„Ekki næstum því allir íbúar með þetta app“ Sveitarstjóri Dalabyggðar segir ósk sveitarstjórnar vera þá að íbúar njóti lægra vöruverðs strax en ekki einungis í gegnum sérstakt app á vegum Samkaupa sem reka Krambúðina í Búðardal. Ár er síðan sveitarstjórn skoraði á Samkaup að opna þar dagvöruverslun í stað Krambúðarinnar. Innlent 8.10.2024 07:02