Menning

Hvunndagsmatur Elvu Daggar Melsted

"Mér þykir ekkert sérstaklega gaman að elda hversdagsmat," segir Elva Dögg Melsted, fyrrum Ungfrú Ísland.is. "Kannski af því að ég kann svo fáa rétti í kollinum og þarf alltaf að vera að fletta upp í bókum. Ég þyrfti að fara að koma mér upp aðeins stærri gagnabanka. Matseðillinn á mínu heimili miðast að miklu leyti við hvað litla stelpan mín, hún Matthildur, borðar í leikskólanum hverju sinni. Við reynum að hafa dálitla fjölbreytni í mataræðinu hennar." Elva Dögg segist elda mjög barnvænlegan mat sem er auðveldur og hollur. "Kjúklingur er efstur á vinsældalistanum hjá okkur því Matthildur nennir ekki að borða mat sem er erfitt að tyggja." Skiljanlega, því stelpan er bara tveggja og hálfs árs gömul. En ekki alls fyrir löngu eignuðust Elva Dögg og eiginmaður hennar Magnús Þór Gylfason drenginn Gylfa Þór, sem nú er að verða sjö vikna gamall. Augljóslega er nóg að gera á heimili fjölskyldunnar um þessar mundir. Hversdagsmatur höfðar ekki sérstaklega til Elvu en þegar í harðbakkann slær kann hún ýmis ráð. "Fiskur verður oft fyrir valinu, bæði soðinn og steiktur. Í hallæri steiki ég bara það sem er í ísskápnum. Hakk og spagettí er alltaf klassískt og ef ekkert er til útbý ég súpu eða pasta. Annars snýst eldamennskan aðallega um nýja gasgrillið okkar, það er ótrúlegt hvað eru sterk tengsl milli karlmanna og grills," segir hún hlæjandi en bætir því við að Magnús standi alltaf fyrir sínu í eldhúsinu. "Við höfum eiginlega prófað allan mat sem hægt er að grilla en kjúklingurinn kemur sterkur inn jafnt á grillið sem annars staðar." [email protected]





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.