Menning

Ballett­dansarinn Vla­dimir Shklyarov látinn

Atli Ísleifsson skrifar
Vladimír Shklyarov stundaði nám í ballet við Vaganova-ballettakademíuna og útskrifaðist 2003.
Vladimír Shklyarov stundaði nám í ballet við Vaganova-ballettakademíuna og útskrifaðist 2003. Getty

Ballettheimurinn syrgir nú einn helsta karlkynsballettdansara heims eftir að tilkynnt var um andlát hins 39 ára Vladimir Shklyarov.

Hinn rússneski Vladimir Shklyarov var einn aðaldansari hins virta Mariinsky-leikhúss í Pétursborg, en greint var frá andláti dansarans í yfirlýsingu frá leikhúsinu á laugardaginn.

Rússneskir fjölmiðlar segja frá því að andlát hans sé til rannsóknar en talsmenn leikhússins segja hann hafa fallið af svölum á fimmtu hæð húss í Pétursborg og að hann hafi þá verið á verkjastillandi lyfjum.

„Þetta er mikill missir ekki bara fyrir starfmenn leikhússins en einnig nútímaballett,“ sagði í yfirlýsingu leikhússins.

Shklyarov var giftur Maria Shklyarov, sem einnig starfaði sem dansari við leikhúsið, en þau eiga tvö börn.

Shklyarov stundaði nám í ballet við hina virtu Vaganova-ballettakademíu og útskrifaðist þaðan 2003. Sama ár gekk hann til liðs við Mariinsky-leikhúsið og varð þar aðaldansari árið 2001. Auk þess að dansa við leikhúsið í Pétursborg kom hann fram í sýningum meðal annara í Konunglega óperuhúsinu í London og Metropólitan-óperuna í New York.

Hann vann til fjölda verðlauna á ferli sínum, meðal annars í tengslum við uppsetningar á Giselle, Þyrnirós, Don Kíkóta, Svanavatnið og Rómeó og Júlíu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.