Menning

Einar og Sigga á Grund gerð að heiðurslistamönnum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Sigríður Kristjánsdóttir, betur þekkt sem Sigga á Grund.
Sigríður Kristjánsdóttir, betur þekkt sem Sigga á Grund. Magnús Hlynur

Sigríður Jóna Kristjándóttir og Einar Hákonarson bætast á lista heiðurslistamanna samkvæmt breytingartillögu meirihluta allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis.

Sigga er landsþekkt handverkskona, ekki síst þegar kemur að skera út í tré en hún sinnir líka öðru handverki af miklum sóma. Hún hefur til dæmis skorið út allar gangtegundir íslenska hestsins. Hún var gerð að fyrsta heiðursborgara Flóahrepps í 80 ára afmælishófi hennar í Vatnsholti í Flóa í maí.

Einar er einn virtasti myndlistamaður landsins. Einar hefur aðallega fengist við málun og grafík en hefur einnig unnið með skúlptúr, steint gler, emaléringu og mósaík. Síðustu árin hefur Einar eingöngu helgað sig listsköpun. Hann býr og starfar á Hólmavík ásamt eiginkonu sinni, Sólveigu Hjálmarsdóttur.

Í greinargerð meirihlutans segir að við fjárlög fyrir árið 2022 hafi ekki bæst við heiðurslistamenn. Við fjárlög fyrir árið 2023 og árið 2024 bættust samtals fimm við þann hóp listamanna sem nýtur heiðurslauna.

Á árinu 2024 létust Hreinn Friðfinnsson og Matthías Johannessen og fækkaði því heiðurslaunaþegum í 23. Með breytingartillögunni er lagt til að tveir listamenn bætist við þann hóp listamanna sem nú þegar nýtur heiðurslauna samkvæmt lögum um heiðurslaun listamanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.