Menning

Glæpakvöld Hins íslenska glæpafélags á Grand Rokk

Glæpakvöld Hins íslenska glæpafélags hafa notið sívaxandi vinsælda eftir að þau fengu fastan samastað á Grand Rokk við Smiðjustíg fyrir þremur árum.

Að kvöldi fimmtudagsins 30. nóvember verður enn efnt til mikillar glæpaveislu á efri hæð Grand Rokks en þá munu höfundar fimm nýútkominna glæpasagna stíga á svið og lesa úr verkum sínum við undirleik dauðakántrísveitarinnar Sviðin Jörð.

Höfundarnir sem lesa úr eigin verkum eru þessir í stafrófsröð:

Páll Kristinn Pálsson (Farþeginn)

Stefán Máni (Skipið)

Steinar Bragi (Hið stórfenglega leyndarmál heimsins)

Yrsa Sigurðardóttir (Sér grefur gröf)

Ævar Örn Jósepsson (Sá yðar sem syndlaus er)

Auk þess verður lesið úr nýjum bókum eftir þessa höfunda:

Arnaldur Indriðason (Konungsbók)

Jökull Valsson (Skuldadagar)

Stella Blómkvist (Morðið í Rockville)

Að upplestri loknum mun dauðakántrísveitin Sviðin jörð leika vel valda ógæfusöngva af nýútkomnum diski sínum, Lög til að skjóta sig við.

Efri hæðin verður opin almenningi frá kl. 20.00, upplestur hefst 20.30. Aðgangur er ókeypis, ódýr bjór og lífsins vatn og þurrkaðar jurtaafurðir í boði Grand Rokks og K. Karlssonar.

Nánari upplýsingar veitir Eiríkur Brynjólfsson í síma 899 2189 eða í gegnum tölvupóst: [email protected]






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.