Cocu: Rimman við Liverpool verður stríð 12. mars 2007 18:00 Philip Cocu er margreyndur úr Evrópuboltanum og veit hvað hann syngur. MYND/Getty
Philip Cocu, fyrirliði PSV í Hollandi, lýsir væntanlegri rimmu liðsins við Liverpool í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar sem “stríði”. Cocu býst við tveimur afar hörðum leikjum, enda séu bæði lið hungruð í árangur í keppninni. “Ég býst við erfiðum og hörðum leikjum þar sem baráttan verður í fyrirrúmi. Þetta verður í líkingu við stríð inni á vellinum,” sagði Cocu við fjölmiðla í Hollandi í morgun. “Liverpool spilaði vel gegn Barcelona og þeir búa yfir andlegum styrk eftir að hafa lagt Evrópumeistarana af velli. Við erum hins vegar einnig með mikið sjálfstraust eftir að hafa unnið Arsenal.” Fyrri leikur PSV og Liverpool fer fram í Hollandi og sá síðari á Anfield og viðurkennir Cocu að hann hefði frekar viljað hafa niðurröðunina á hinn veginn. “En við slóum út Arsenal þrátt fyrir að eiga síðari hálfleikinn á útivelli svo að það skiptir ekki öllu máli” Cocu telur að bæði lið eigi jafna möguleika á að komast áfram, jafnvel þó að Liverpool hafi unnið PSV í riðlakeppninni. “Lykillinn að því að komast í undanúrslit er að halda hreinu í Eindhoven. Ég held að það verði ekki mörg mörk í þessari rimmu. Varnarmenn verða í aðalhlutverkum,” sagði Cocu að lokum.
Erlendar Fótbolti Íþróttir Meistaradeild Evrópu Mest lesið Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Sport „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Enski boltinn „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ Enski boltinn Geir fer aftur í Vesturbæinn Íslenski boltinn Enn erfiðara að komast á heimsleikana í CrossFit á næsta ári Sport Tímabært að breyta til Handbolti Blóðug hlaupaferð hjá Guðlaugu Eddu Sport Tólf leikmenn komnir til KR Íslenski boltinn Heimsklassa afgreiðsla hjá Sveindísi um helgina Fótbolti Kallaði dómarann tík og rúmlega það Körfubolti Fleiri fréttir Tólf leikmenn komnir til KR Segist enn ekki hafa fengið samningstilboð frá Liverpool Geir fer aftur í Vesturbæinn Heimsklassa afgreiðsla hjá Sveindísi um helgina Dagur Dan og félagar í undanúrslit eftir sigur á liðinu sem stoppaði Messi „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ FH-ingar kynntu Birki og Braga „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Atli og Eiður í KR Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Steve Cooper látinn taka pokann sinn hjá Leicester Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Hákon mættur aftur til leiks Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Jafnað í blálokin í uppgjöri Keflvíkinga í Hollandi Amanda lagði upp í dýrmætum sigri og Kolbeinn nær toppnum Framarar sótt fjóra bita í næstu deild „Hefurðu enga sómakennd?“ Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Celta sótti jafntefli gegn tíu Börsungum Haraldur Árni áfram með Grindavík Sveindís funheit inn af bekknum og setti tvö Bodø/Glimt með langþráðan sigur Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Gamla konan áfram taplaus Sjá meira