Navarro í sjö mánaða bann fyrir slagsmál 14. mars 2007 13:56
Knattspyrnusamband Evrópu tilkynnti í dag að David Navarro hefði verið dæmdur í sjö mánaða keppnisbann eftir ofbeldisfulla tilburði hans á leik Valencia og Inter í Meistaradeildinni á dögunum. Sambandið hefur óskað þess að bannið nái yfir allar keppnir. Hann var einn sex leikmanna sem fá keppnisbann fyrir slagsmálin og verða bæði lið auk þess sektuð um rúmlega 100 þúsund pund. Navarro hljóp inn á völlinn eftir að flautað var til leiksloka og blandaði sér í handalögmálin sem þar voru byrjuð milli leikmanna. Navarro kýldi Nicolas Burdisso hjá Inter með þeim afleiðingum að hann nefbrotnaði. Þeir Burdisso og Maicon hjá Inter fengu sex leikja bann fyrir sinn hlut í slagsmálunum, Carlos Marchena hjá Valencia fékk fjögurra leikja bann og þeir Ivan Cordoba og Julio Cruz hjá Inter fengu þriggja og tveggja leikja bann. Þetta er ein af hörðustu refsingum sem evrópska knattspyrnusambandið hefur beitt í sögunni og þetta þýðir að lið Valencia verður nokkuð undirmannað í viðureign sinni við Chelsea í 8-liða úrslitum keppninnar. Myndbandið með fréttinni er úr þætti Guðna Bergssonar á Sýn í síðustu viku þar sem Guðjón Guðmundsson fer yfir atburðarrásina á Mestalla leikvanginum í Valencia.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Sport „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Enski boltinn „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ Enski boltinn Geir fer aftur í Vesturbæinn Íslenski boltinn Tímabært að breyta til Handbolti Enn erfiðara að komast á heimsleikana í CrossFit á næsta ári Sport Blóðug hlaupaferð hjá Guðlaugu Eddu Sport Heimsklassa afgreiðsla hjá Sveindísi um helgina Fótbolti Kallaði dómarann tík og rúmlega það Körfubolti Verstappen áfram hjá Red Bull Formúla 1 Fleiri fréttir Segist enn ekki hafa fengið samningstilboð frá Liverpool Geir fer aftur í Vesturbæinn Heimsklassa afgreiðsla hjá Sveindísi um helgina Dagur Dan og félagar í undanúrslit eftir sigur á liðinu sem stoppaði Messi „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ FH-ingar kynntu Birki og Braga „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Atli og Eiður í KR Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Steve Cooper látinn taka pokann sinn hjá Leicester Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Hákon mættur aftur til leiks Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Jafnað í blálokin í uppgjöri Keflvíkinga í Hollandi Amanda lagði upp í dýrmætum sigri og Kolbeinn nær toppnum Framarar sótt fjóra bita í næstu deild „Hefurðu enga sómakennd?“ Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Celta sótti jafntefli gegn tíu Börsungum Haraldur Árni áfram með Grindavík Sveindís funheit inn af bekknum og setti tvö Bodø/Glimt með langþráðan sigur Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Gamla konan áfram taplaus Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Sjá meira