Milan og Liverpool mætast í úrslitum 2. maí 2007 20:32 Snillingurinn Kaka kom Milan á bragðið í kvöld og hefur skorað 10 mörk í 12 leikjum í keppninni í vetur AFP
Það verður AC Milan sem leikur til úrslita gegn Liverpool í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu. Ítalska liðið vann í kvöld sannfærandi 3-0 sigur á Manchester United í síðari leik liðanna í undanúrslitum á San Siro. Milan og Liverpool mættust í úrslitaleik keppninnar fyrir tveimur árum. Manchester United vann fyrri leikinn 3-2 á heimavelli með dramatískum hætti í síðustu viku, en leikurinn í kvöld var eign heimamanna í fyrri hálfleik og þar skoruðu þeir Kaka (´11) og Clarence Seedorf (´30) lagleg mörk og komu heimamönnum í vænlega stöðu. Gestirnir sóttu í sig veðrið í síðari hálfleik og réðu þá ferðinni, en varamaðurinn Alberto Gilardino innsiglaði sigur Milan á ´78 mínútu eftir skyndisókn og gerði vonir enska liðsins að engu. Það er því ljóst að úrslitaleikurinn í Meistaradeildinni í Aþenu verður endurtekning á sögulegum úrslitaleik keppninnar í Istanbul fyrir tveimur árum. Lið Manchester United náði sér einfaldlega aldrei á strik í leiknum og segja má að heimamenn hafi sett þá út af laginu með sterkri byrjun sinni.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Sport „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Enski boltinn „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ Enski boltinn Geir fer aftur í Vesturbæinn Íslenski boltinn Enn erfiðara að komast á heimsleikana í CrossFit á næsta ári Sport Tólf leikmenn komnir til KR Íslenski boltinn Tímabært að breyta til Handbolti Blóðug hlaupaferð hjá Guðlaugu Eddu Sport Heimsklassa afgreiðsla hjá Sveindísi um helgina Fótbolti Ekkert lið með meiri forystu síðan Cantona var upp á sitt besta Enski boltinn Fleiri fréttir Vinícius Júnior missir af leiknum á móti Liverpool Ekkert lið með meiri forystu síðan Cantona var upp á sitt besta Tólf leikmenn komnir til KR Segist enn ekki hafa fengið samningstilboð frá Liverpool Geir fer aftur í Vesturbæinn Heimsklassa afgreiðsla hjá Sveindísi um helgina Dagur Dan og félagar í undanúrslit eftir sigur á liðinu sem stoppaði Messi „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ FH-ingar kynntu Birki og Braga „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Atli og Eiður í KR Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Steve Cooper látinn taka pokann sinn hjá Leicester Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Hákon mættur aftur til leiks Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Jafnað í blálokin í uppgjöri Keflvíkinga í Hollandi Amanda lagði upp í dýrmætum sigri og Kolbeinn nær toppnum Framarar sótt fjóra bita í næstu deild „Hefurðu enga sómakennd?“ Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Celta sótti jafntefli gegn tíu Börsungum Haraldur Árni áfram með Grindavík Sveindís funheit inn af bekknum og setti tvö Bodø/Glimt með langþráðan sigur Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Sjá meira