Menning

Bloggvinkonur með sýningu

Katrín og bloggvinkonur hennar ætla að efna til samsýningar í Ráðhúsi Reykjavíkur sem verður opnuð 30. ágúst.
fréttablaðið/gva
Katrín og bloggvinkonur hennar ætla að efna til samsýningar í Ráðhúsi Reykjavíkur sem verður opnuð 30. ágúst. fréttablaðið/gva

Fimm myndlistarkonur sem kynntust á blogginu fyrir einu og hálfu ári ætla að halda samsýningu í Ráðhúsi Reykjavíkur sem verður opnuð 30. ágúst.

„Við erum allar bloggvinkonur. Ég bjó á Englandi, tvær hafa verið á Spáni, ein í Grikklandi og ein í Reykjavík," segir myndlistarkonan Katrín Snæhólm. „Við ætlum að hittast, sumar í fyrsta skipti á ævinni, til að halda sýninguna saman og erum búnar að skipuleggja hana í gegnum netið."

Katrín segir sýninguna sérstaklega spennandi því þær komi hver úr sinni áttinni og séu enn þá að kynnast. „Það er fullt af bloggvinum sem eru spenntir að koma. Þetta sýnir líka hvað bloggið er frábært. Það tengir saman fólk sem er að gera svipaða hluti. Maður kynnist öðrum sem eru að vinna að skapandi verkefnum sem maður hefði kannski aldrei kynnst annars."



Ekki bundin af listaelítuÁ blogginu hefur Katrín tekið þátt í samsýningum, auk þess sem hún opnaði þar kortaverslun þar sem hún selur eigin kort. Einnig selur hún eftirprentanir af málverkum sínum í gegnum bloggið. „Netið er frábær vettvangur fyrir listamenn. Ég hef heyrt það á öðrum listamönnum að það séu ákveðnir aðilar sem stjórna því hvert þú kemst og hvar þú getur sýnt, enda hafa myndlistarmenn tjaldað í Hljómskálagarðinum í mótmælaskyni yfir því að komast hvergi að. En í gegnum netið geturðu komið þér sjálfur á framfæri og ert ekki endilega bundinn af einhverri listaelítu," segir hún.

Bloggvinkonur Katrínar heita Elín Björk Guðbrandsdóttir, Guðný Svava Strandberg, Katrín Níelsdóttir og Zordís og stendur sýning þeirra yfir til 14. september. Áhugasamir geta kynnt sér bloggheim Katrínar á síðunni katrinsnaeholm.blog.is.

[email protected]






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.