Katrín hélt hreinu í 55 mínútur en fékk svo á sig tvö mörk Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. október 2012 13:55 Katrín Ómarsdóttir er hér lengst til vinstri ásamt Elínu Mettu og Þóru Helgadóttur markverði íslenska landsliðsins. Mynd/Daníel
Íslensku stelpurnar Kristianstad náðu ekki að hjálpa löndum sínum í LdB FC Malmö í baráttunni um sænska meistaratitilinn í dag þegar Kristianstad-liðið tapaði 0-2 á heimavelli á móti Tyresö FF í 20. umferð sænsku kvennadeildarinnar. Tyresö minnkaði forskot Malmö á toppnum í tvö stig en Malmö-liðið á leik inni. Katrín Ómarsdóttir þurfti að fara í markið hjá Kristianstad þegar markvörður liðsins meiddist eftir tíu mínútur. Katrín hélt markinu hreinu í 55 mínútur en fékk síðan tvö mörk á sig í lokin. Hollenska landsliðskonan Kirsten van de Ven skoraði bæði mörk Tyresö í leiknum en hin brasilíska Marta tók út leikbann í dag. Katrín hafði nóg að gera í leiknum því samkvæmt tölfræði sænska sambandsins þá fékk hún 11 skot á sig á meðan hún var í marki Kristianstad. Margrét Lára Viðarsdóttir og Sif Atladóttir voru báðar í byrjunarliði Kristianstad og Guðný Björk Óðinsdóttir kom síðan inn á sem varamaður en hún er að koma til baka eftir að hafa slitið krossband.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Ótrúleg endurkoma Feyenoord í Manchester Fótbolti Spiluðu deildina hundrað þúsund sinnum og reiknuðu sigurlíkur liðanna Handbolti „Við erum brothættir“ Fótbolti Tvær tvöfaldar þrennur í sigrum Tindastóls og Þórs Akureyrar Körfubolti Lewandowski sá þriðji til að skora hundrað Meistaradeildarmörk Fótbolti „Höfum sýnt að þetta er getustigið sem við getum spilað á“ Fótbolti Uppgjörið: FH - Fenix Toulouse 25-29 | Tap í síðasta Evrópuleik FH-inga Handbolti Porto lagði Val í Portúgal Handbolti „Þessi deild er bara þannig að það er ekkert gefins“ Körfubolti „Nauðsynlegt fyrir íslensk lið að taka þátt í svona keppni“ Sport Fleiri fréttir „Við erum brothættir“ „Höfum sýnt að þetta er getustigið sem við getum spilað á“ Lewandowski sá þriðji til að skora hundrað Meistaradeildarmörk Atlético skoraði sex Ótrúleg endurkoma Feyenoord í Manchester Skytturnar léku á als oddi Eiður Aron áfram á Ísafirði Hareide þarf að leggjast undir hnífinn Liverpool væri bara í þrettánda sæti án markanna hans Mo Salah Andri Rúnar í Stjörnuna Hvorki Arnar né Freyr heyrt frá KSÍ Kæra framleiðendur Lionel Messi drykkjarins fyrir stuld Arnar betur í stakk búinn en Eyjólfur og Arnar Þór Aðeins Heimir og Lagerbäck með betri árangur á öldinni „Fann brosið mitt á ný“ Hélt hreinu á móti Manchester City ökklabrotinn Hareide segir að þjálfaraferlinum sé lokið Carragher segir Salah vera eigingjarnan Segir fótboltamönnum að halda sig frá McGregor Arnar og Freyr taldir líklegastir til að taka við af Hareide Refirnir skemmtu sér í Köben eftir tapið sem kostaði þjálfarann starfið Elías Rafn hélt hreinu þegar meistararnir jöfnuðu toppliðið að stigum Hræringar í Bestu: Daníel Hafsteins orðaður við Víking og Andri Rúnar í Garðabæ Kveðst frekar vilja íslenskan þjálfara Hamrarnir unnu óvæntan sigur í norðrinu Þríeykið rennur allt út á samning næsta sumar Potter orðaður við Leicester á nýjan leik Hareide hugsaði um heilsuna: „Vildi einbeita sér að því“ Hareide hættur með landsliðið Grindvíkingar þétta raðirnar Sjá meira