Erlent

Tveggja daga heimsókn SÞ til Íran skilaði ekki árangri

Stoltur af kjarnorkuafrekum Ali Khameini, erkiklerkur Írans, á fundi með írönskum kjarneðlisfræðingum þar sem hann sagði þeim að halda áfram sínu mikilvæga starfi.nordicphotos/AFP
Stoltur af kjarnorkuafrekum Ali Khameini, erkiklerkur Írans, á fundi með írönskum kjarneðlisfræðingum þar sem hann sagði þeim að halda áfram sínu mikilvæga starfi.nordicphotos/AFP
Sendinefnd Alþjóðakjarnorkustofnunarinnar segist ekki hafa haft erindi sem erfiði í tveggja daga heimsókn sinni til Írans í vikunni. Beiðni þeirra um að fá að skoða herstöðina í Parchin var hafnað af írönskum stjórnvöldum.

Þá tókst ekki samkomulag um orðalag skýrslu, þar sem farið yrði yfir óleyst deilumál varðandi kjarnorkuáform Írana.

„Við tókum þátt í uppbyggilegum anda, en ekkert samkomulag tókst," segir Yukiya Amano, framkvæmdastjóri stofnunarinnar.

„Það eru vonbrigði að Íranar féllust ekki á beiðni okkar um að heimsækja Parchin, hvorki á fyrri né seinni fundi okkar."

Ali Khameini, erkiklerkur og æðsti leiðtogi Írans, ítrekaði hins vegar í gær að kjarnorkuáform landsins snerust ekki um að koma sér upp kjarnorkuvopnum, heldur væri tilgangurinn friðsamlegur.

Hann sagði í sjónvarpsávarpi í gær að leiðtogar Vesturveldanna vissu fullvel „að við erum ekki á höttunum eftir kjarnorkuvopnum vegna þess að íslamska lýðveldið Íran lítur á það sem synd að eiga kjarnorkuvopn". Hann sagði Írana líta svo á að það sé bæði „gagnslaust, skaðlegt og hættulegt" að vera með slík vopn.

Á hinn bóginn sagði hann að sá árangur, sem íranska þjóðin hefði náð í kjarnorkuvinnslu, hafi fært þjóðinni bæði virðingu og stolt. Auk þess færi kjarnorkuvopn þjóðinni engin völd.

Vaxandi þrýstingur hefur verið á Íran frá Vesturlöndum vegna þess að írönsk stjórnvöld hafa ekki sýnt kjarnorkustofnun Sameinuðu þjóðanna fulla samvinnu.

Jafnframt hafa orðið háværari raddir um að hugsanlega verði gerðar árásir á Íran til að stöðva kjarnorkuáform þeirra. Helst hefur þá komið til tals að Ísraelar hugsi sér til hreyfings og séu jafnvel þegar farnir að undirbúa árásir á kjarnorkubúnað Írans.

Nú síðast í gær hafa Rússar varað Ísraela við því að gera árás á Íran.

„Að sjálfsögðu myndi hvers kyns hernaður gegn Íran hafa skelfilegar afleiðingar fyrir þennan heimshluta og fyrir öll alþjóðasamskipti," sagði Gennadí Gatilov, aðstoðarutanríkisráðherra Rússlands, á blaðamannafundi í Moskvu í gær.

„Ég vona að Ísraelar átti sig á öllum þessum afleiðingum," sagði hann enn fremur, „og þeir ættu einnig að hugleiða afleiðingar slíkra aðgerða fyrir sig sjálfa."

[email protected]




Fleiri fréttir

Sjá meira


×