Menning

Hátíð helguð furðum, göldrum og gufupönki

[email protected] skrifar
Kjartan Y. Björnsson, Snæbjörn Brynjarsson og Þorsteinn Mar Gunnlaugsson.
Kjartan Y. Björnsson, Snæbjörn Brynjarsson og Þorsteinn Mar Gunnlaugsson.
Hátíð helguð furðusögum og skyldum bókmenntagreinum verður haldin í Norræna húsinu á föstudag og á laugardag. Íslenska furðusagnafélagið stendur að hátíðinni og stefnir á að gera hana að árlegum viðburði.



Kjartan Yngvi Björnsson, Snæbjörn Brynjarsson og Þorsteinn Mar Gunnlaugsson eru forsprakkar Íslenska furðusagnafélagsins, sem stendur fyrir hátíð í Norræna húsinu á föstudag og laugardag þar sem furðusögum verða gerð skil.

Kjartan og Snæbjörn eru nýbakaðir handhafar Íslensku barnabókaverðlaunanna fyrir furðusöguna Hrafnsauga en Þorsteinn Mar er stofnandi Rúnatýs, forlags sem sérhæfir sig í furðusögum, hrollvekjum og vísindaskáldskap, og hefur sjálfur gefið út bækur undir merkjum þess.

Þorsteinn Mar segir furðusagnahátíðina viðleitni til að bæta úr langvarandi skorti á umræðu um furðusögur hér á landi.

„Umræðan er lítil en áhuginn er sannarlega til staðar. Við settum til dæmis á laggirnar hóp á Facebook þar sem fullt af fólki kom og spjallaði um furðusögur og það er greinilega eftirspurn eftir málþingi sem þessu."

Auknar vinsældir furðusagna undanfarin misseri telur Þorsteinn skýrast af því að kynslóðin sem ólst upp við að lesa doðranta um Harry Potter sé einfaldlega vaxin úr grasi og vilji lesa fleiri bækur af sama meiði, auk þess sé uppsveifla í furðusagnamenningu á alþjóðavísu.

„Þessu formi hefur augljóslega verið að vaxa fiskur um hrygg á Íslandi; Yrsa Sigurðardóttir hefur skrifað hrollvekjukennda reyfara, Stefán Máni skrifar hrollvekju og Guðrún Eva Mínervudóttir hefur skrifað furðusögukenndar skáldsögur undanfarin ár. Það er því heilmikill vettvangur fyrir þessa tegund bókmennta, við höfum bara ekki stigið skrefið til fulls og kallað þetta furðusögur."

Dagskráin á hátíðinni er fjölbreytt og segir Þorsteinn að allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi, bæði þeir sem eru vel lærðir í fræðunum og þeir sem eru rétt að dýfa tánum í heim furðusagna.

„Sjálfur hlakka ég mest til að hlusta á höfundana lesa upp, það er svo gaman að heyra hvernig þeir bera fram textann."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.