Landsnet sækir um leyfi fyrir 2,2 milljarða raflínum [email protected] skrifar 20. desember 2012 06:00 Helguvík Reiknað er með að framkvæmdir hefjist í sumar, fáist leyfi fyrir þeim, og standi yfir næstu tvö ár. Fyrsta áfanga álvers í Helguvík fylgja framkvæmdir á línum upp á 9,3 milljarða króna.
Landsnet sendir umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir Suðurnesjalínu 2 til Orkustofnunar í vikunni. Samþykkt sveitarfélagsins Voga greiddi leiðina fyrir framkvæmdina sem hljóðar upp á 2,2 milljarða króna. Fyrirtækið fundaði með sveitarfélögum á svæðinu á mánudaginn og kynnti framkvæmdirnar. Guðmundur Ingi Ásmundsson, aðstoðarforstjóri Landsnets, segir að þar hafi verið á ferð hefðbundið samstarf við sveitarfélögin um útfærslu framkvæmdanna. Verið er að fara yfir alla þætti málsins og umsókn verður send til Orkustofnunar fyrir helgi. „Það sem við erum að gera núna snýr að Suðurnesjalínu II, úr Hafnarfirði að Fitjum í Reykjanesbæ. Það er til að bæta öryggið á Reykjanesi. Það eru ansi stórar virkjanir á svæðinu. Við erum að vinna að því að framkvæmdir geti hafist í sumar. Bygging þeirrar línu verður í gangi næstu tvö árin.“ Spennan á núverandi línu er 132 kílóvolt, en nýja línan verður 220 kílóvolta. Hún á að tryggja afhendingaröryggi og flutningsgetu á svæðinu. Verði farið í framkvæmdir við álver í Helguvík verður önnur 220 kílóvolta lína lögð og sú gamla, sem ber 132 kílóvolt, lögð af. „Ef það verður af samkomulagi um Helguvíkurverkefnið þurfum við að setja fleiri framkvæmdir í gang,“ segir Guðmundur Ingi. „Þá þurfum við að fara í fyrsta áfanga Suðvesturlínu. Í meginatriðum þurfum við að tengja álverið í Helguvík við flutningskerfið, að leggja þessa strengi til Helguvíkur. Síðan þurfum við væntanlega að tengja virkjanirnar sem tilheyra fyrsta áfanganum, svo sem stækkun Reykjanesvirkjunar, en það þarf að tvöfalda tenginguna við hana. Síðan veit ég ekki hvaða virkjun verður til viðbótar. Við þurfum að fylgjast með hvaða valkostur verður í fyrsta áfanganum og gera ráðstafanir.“
Suðurnesjalína 2 Mest lesið Kosningavaktin: Landsmenn kjósa sér nýtt þing Innlent Kanónurnar sem eru að hverfa Innlent Tárin streymdu þegar María Rut mældist inni Innlent Kosningavaka Stöðvar 2 og Vísis Innlent Ungur maður og spenntur fyrir framtíðinni Innlent Stefnir í að VG þurrkist út af þingi Innlent Vísbending um að þetta séu „jarðskjálftakosningar“ Innlent Stefnir í að flokkunum fækki um tvo Innlent „Ég get ekki hugsað mér að fleiri börn lendi í honum“ Innlent Sjálfstæðisflokkur og Samfylking ná bæði fjórum inn í Kraganum Innlent Fleiri fréttir Lokatölur í Reykjavík suður: Fyrrverandi borgarstjóri og ritstjóri á þing Kanónurnar sem eru að hverfa Ungur maður og spenntur fyrir framtíðinni Tárin streymdu þegar María Rut mældist inni Flokkurinn verði að líta inn á við Stefnir í að flokkunum fækki um tvo Flokkur fólksins í gríðarlegri sókn í Norðvesturkjördæmi Vísbending um að þetta séu „jarðskjálftakosningar“ Samfylkingin langstærst í kjördæmi Kristrúnar Stefnir í að VG þurrkist út af þingi Gríðarlega mikið fylgi sem dettur niður dautt Ljóst að þetta yrði brekka fyrir Framsókn Sjálfstæðisflokkur og Samfylking ná bæði fjórum inn í Kraganum „Ég veit ekki hvort ég er að koma eða fara“ Merkir hægribylgju en ekki vonbrigði Glaður maður en býst við batnandi tölum Samfylkingin og Flokkur fólksins bæta miklu við sig Sagði sínu fólki að tala ekki illa um aðra flokka Trúir því að fólk sé að detta VG megin í kjörklefanum Vegabréfið fór með atkvæðinu í kjörkassann „Ég trúi því að þjóðin sé að opna augun“ Viðbúið að talning tefjist í einhverjum kjördæmum Þriggja bíla árekstur og mikil umferðarteppa Kjördagur að kveldi kominn en nóttin rétt að byrja Tveir fluttir með þyrlu vegna rútuslyssins og einn fluttur vegna veikinda Þyrlan kölluð út vegna rútuslyss Um þriðjungur hefur kosið í flestum kjördæmum „Nú þarf maður bara að treysta þjóðinni“ „Förum ekki að stefna öryggi fólks í hættu“ Gríðarlegur kraftur í sjálfstæðisvélinni Sjá meira