Lét stjörnu Króata heyra það í Leifsstöð Kolbeinn Tumi Daðason í Leifsstöð skrifar 17. nóvember 2013 12:34 Jóhann Jóhannsson var í góðum gír þegar blaðamaður hitti hann í Leifsstöð í morgun. Mynd/Vilhelm
Jóhann Jóhannsson, verslunarstarfsmaður í Leifsstöð, afgreiddi eina af skærustu stjörnum króatíska landsliðsins sem hélt af landi brott í gær. Ivan Rakitic, sem vinnur fyrir sér sem leikmaður Sevilla á Spáni, fjárfesti í súkkulaði áður en haldið var um borð í flugvél sem flutti andstæðinga Íslands heim til Zagreb í gær. Rakitic spurði af kurteisi hvort Jóhann vildi fá að sjá brottfaraspjald sitt við kaupin á vörunum. „Nei, ég veit alveg hvert þú ert að fara,“ svaraði Jóhann léttur. „Ég veit líka alveg hvert þú ert ekki að fara,“ bætti Jóhann við kíminn og uppskar bros hjá Rakitic. Átti Jóhann augljóslega við að króatíska landsliðið væri á leið til Zagreb en þó ekki á leið á heimsmeistaramótið í Brasilíu næsta sumar. Þeir félagar skildu þó sáttir og kunni Rakitic að meta húmorinn hjá Jóhanni.
Fótbolti HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Sport „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Enski boltinn „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ Enski boltinn Blóðug hlaupaferð hjá Guðlaugu Eddu Sport Kallaði dómarann tík og rúmlega það Körfubolti Verstappen áfram hjá Red Bull Formúla 1 Atli og Eiður í KR Fótbolti Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Fótbolti FH-ingar kynntu Birki og Braga Íslenski boltinn Chicago Bears leita nýrra leiða til að tapa leikjum Sport Fleiri fréttir Dagur Dan og félagar í undanúrslit eftir sigur á liðinu sem stoppaði Messi „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ FH-ingar kynntu Birki og Braga „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Atli og Eiður í KR Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Steve Cooper látinn taka pokann sinn hjá Leicester Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Hákon mættur aftur til leiks Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Jafnað í blálokin í uppgjöri Keflvíkinga í Hollandi Amanda lagði upp í dýrmætum sigri og Kolbeinn nær toppnum Framarar sótt fjóra bita í næstu deild „Hefurðu enga sómakennd?“ Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Celta sótti jafntefli gegn tíu Börsungum Haraldur Árni áfram með Grindavík Sveindís funheit inn af bekknum og setti tvö Bodø/Glimt með langþráðan sigur Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Gamla konan áfram taplaus Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Jóhann lagði upp langþráð mark Sjá meira