Valur fær danskan miðjumann Tómas Þór Þórðarson skrifar 27. júlí 2015 15:36 Mathias Schlie. mynd/skja´skot
Mathias Schlie, 27 ára danskur miðjumaður, er á leið til Vals á láni frá Hobro. Hann er fyrrverandi samherji Patricks Pedersen, framherja Vals, en þeir spiluðu saman hjá Vendyssel í Danmörku. Schlie gekk í raðir Hobro frá Vendyssel síðasta sumar en spilaði aðeins tvo leiki sem varamaður fyrir Hobro í dönsku úrvalsdieldinni. Hann hefur ekki komið við sögu hjá Hobro við upphaf nýrrar leiktíðar og var því lánaður til Valsmanna sem eru í toppbaráttunni í Pepsi-deildinni. „Mathias Schlie er góður leikmaður sem hefur ekki fengið nóg að spila hjá okkur. Við vonum að dvöl hans á Íslandi veiti honum sjálfstraust svo hann komi til baka sem betri leikmaður,“ segir Jens Hammer Sörensen, yfirmaður knattspyrnumála hjá Hobro, á heimasíðu félagsins. Schlie er annar leikmaðurinn sem Valur fær í félagaskiptagluggannum, en fyrr í mánuðinum gekk Emil Atlason í raðir Hlíðarendafélagsins á láni frá KR. Valur er í þriðja sæti Pepsi-deildarinnar með 24 stig, en liðinu mistókst að komast á toppinn á laugardaginn þegar liðið tapaði óvænt fyrir Víkingi. Valsmenn voru í meiðslavandræðum í þeim leik, en bæði miðvörðurinn Thomas Guldborg Christiansen og miðjumaðurinn Haukur Páll Sigurðsson voru frá vegna meiðsla.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Sport „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Enski boltinn „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ Enski boltinn Geir fer aftur í Vesturbæinn Íslenski boltinn Enn erfiðara að komast á heimsleikana í CrossFit á næsta ári Sport Tólf leikmenn komnir til KR Íslenski boltinn Tímabært að breyta til Handbolti Blóðug hlaupaferð hjá Guðlaugu Eddu Sport Heimsklassa afgreiðsla hjá Sveindísi um helgina Fótbolti Ekkert lið með meiri forystu síðan Cantona var upp á sitt besta Enski boltinn Fleiri fréttir Vinícius Júnior missir af leiknum á móti Liverpool Ekkert lið með meiri forystu síðan Cantona var upp á sitt besta Tólf leikmenn komnir til KR Segist enn ekki hafa fengið samningstilboð frá Liverpool Geir fer aftur í Vesturbæinn Heimsklassa afgreiðsla hjá Sveindísi um helgina Dagur Dan og félagar í undanúrslit eftir sigur á liðinu sem stoppaði Messi „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ FH-ingar kynntu Birki og Braga „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Atli og Eiður í KR Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Steve Cooper látinn taka pokann sinn hjá Leicester Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Hákon mættur aftur til leiks Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Jafnað í blálokin í uppgjöri Keflvíkinga í Hollandi Amanda lagði upp í dýrmætum sigri og Kolbeinn nær toppnum Framarar sótt fjóra bita í næstu deild „Hefurðu enga sómakennd?“ Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Celta sótti jafntefli gegn tíu Börsungum Haraldur Árni áfram með Grindavík Sveindís funheit inn af bekknum og setti tvö Bodø/Glimt með langþráðan sigur Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Sjá meira