Matur

Quiche Lorraine

Rikka skrifar
visir/svava
Quiche Lorraine er einn af eftirlætisréttum frakka og frábært að eiga eina böku í ísskápnum sem hægt er að grípa í, bjóða sem kvöldmat eða dögurð. Það besta við bökuna að það er í rauninni hægt að setja nánast hvað sem er í hana og að auki er hún góð bæði köld og heit.

Svava Gunnarsdóttir heldur úti hinu sívinsæla matarbloggi Ljúfmeti og lekkerheit gefur lesendum Matarvísis uppskriftina að hinni fullkomnu Quiche Lorraine.



Quiche Lorraine
 

uppskrift frá Smitten kitchen



1 ¾  bolli púrrulaukur, skorinn í bita (notið bara hvíta og ljósgræna hlutann, þið þurfið um tvo stóra lauka)

¾ bolli laukur, skorinn í bita

2 ½  tsk ólífuolía

1  1/4 bolli hveiti

1 msk + 2 tsk kornsterkja

salt

6 msk smjör, skorið í teninga

4 egg

½ bolli + 1 msk rjómi

1 bolli + 2 msk sýrður rjómi

smá múskat

smá pipar

1½ bolli skinka, skorin í bita (ég keypti tilbúna skinkustrimla)

¾ bolli ostur, t.d. gouda eða gouda sterkur

Setjið stóra pönnu yfir lágan hita og steikið lauk og púrrulauk í ólífuolíu í 30-40 mínútur, eða þar til þeir eru karamelluseraðir. Hrærið annað slagið í. Takið af hitanum og kælið.

Setjið hveiti, kornsterkju, 1/4 tsk salt, smjör og 1 egg í matvinnsluvél og vinnið saman í deig (ef þið eruð ekki með matvinnsluvél notið þá handþeytara, gaffal eða heldurnar, allt virkar!). 

Fletjið deigið út á hveitistráðu borði og setjið síðan yfir í bökuform (eða kökuform). Þrýstið deiginu vel í formið og kælið í ísskáp í 30 mínútur.

Á meðan bökuskelin er að kólna er rjóma og sýrðum rjóma blandað saman í skál. Hrærið eggjunum 3 sem eftir eru saman við ásamt smá múskati, salti og pipar. Hitið ofninn í 175°.

Takið bökuskelina úr ísskápnum og dreifið laukblöndunni yfir botninn á henni. Setjið þar á eftir skinkubita og rifinn ost yfir. Hellið rjóma- og eggjablöndunni yfir og setjið bökuna í ofninn. Bakið í um 25-30 mínútur, eða þar til bakan hefur fengið fallegan lit.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.