Dembélé tryggði Tottenham sigur og efsta sætið í riðlinum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. nóvember 2015 22:00 Moussa Dembélé fagnar sigurmarki sínu í kvöld. Vísir/Getty
Belginn Moussa Dembélé tryggði Tottenham 2-1 sigur á löndum hans í Anderlecht á White Hart Lane í kvöld þegar liðin mættust í fjórðu umferð riðlakeppni Evrópudeildarinnar. Moussa Dembélé skoraði sigurmarkið með þrumuskoti aðeins þremur mínútum fyrir leikslok. Tottenham hefur nú sjö stig eftir fjóra leiki en liðið er með stigi meira en AS Mónakó og þremur stigum meira en liðin í 3. og 4. sæti sem eru Qarabag og Anderlecht. Tottenham var miklu sterkara í fyrri hálfleiknum en Belgarnir bitu meira frá sér í þeim síðari. Það var hinsvegar enska liðið sem náði að tryggja sér öll þrjú stigin í lokin. Harry Kane kom Tottenham í 1-0 á 29. mínútu eftir flottan undirbúning Danans Christian Eriksen og þannig var staðan í hálfleik. Imoh Ezekiel jafnaði metin fyrir Anderlecht á 72. mínútu leiksins en hann hafði komið inn á sem varamaður þremur mínútum áður. Pochettino sendi Moussa Dembélé inná völlinn strax eftir jöfnunarmarkið og sú skipting bar árangur í lokin. Heung-Min Son lagði þá boltann lagleg út á Moussa Dembélé og þrumuskot hans þandi netmöskvana.
Evrópudeild UEFA Mest lesið Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Sport „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Enski boltinn „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ Enski boltinn Geir fer aftur í Vesturbæinn Íslenski boltinn Tólf leikmenn komnir til KR Íslenski boltinn Enn erfiðara að komast á heimsleikana í CrossFit á næsta ári Sport Tímabært að breyta til Handbolti Blóðug hlaupaferð hjá Guðlaugu Eddu Sport Heimsklassa afgreiðsla hjá Sveindísi um helgina Fótbolti Ekkert lið með meiri forystu síðan Cantona var upp á sitt besta Enski boltinn Fleiri fréttir Grindvíkingar þétta raðirnar Ed Sheeran biðst afsökunar á að hafa verið óboðinn gestur í viðtali við Amorim Vinícius Júnior missir af leiknum á móti Liverpool Ekkert lið með meiri forystu síðan Cantona var upp á sitt besta Tólf leikmenn komnir til KR Roy Keane reiður: Hittu mig bara á bílastæðinu Segist enn ekki hafa fengið samningstilboð frá Liverpool Geir fer aftur í Vesturbæinn Heimsklassa afgreiðsla hjá Sveindísi um helgina Dagur Dan og félagar í undanúrslit eftir sigur á liðinu sem stoppaði Messi „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ FH-ingar kynntu Birki og Braga „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Atli og Eiður í KR Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Steve Cooper látinn taka pokann sinn hjá Leicester Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Hákon mættur aftur til leiks Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Jafnað í blálokin í uppgjöri Keflvíkinga í Hollandi Amanda lagði upp í dýrmætum sigri og Kolbeinn nær toppnum Framarar sótt fjóra bita í næstu deild „Hefurðu enga sómakennd?“ Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Celta sótti jafntefli gegn tíu Börsungum Haraldur Árni áfram með Grindavík Sjá meira