Óska eftir gestum sem þau gera grín að Kjartan Atli Kjartansson skrifar 25. nóvember 2015 12:00 Saga og Dóri hafa slegið í gegn. Mynd/Auðunn Níelsson
Ef við ætlum að gera grín að öllum öðrum, verðum við líka að geta gert grín að okkur sjálfum,“ segir Saga Garðarsdóttir, sem fer með annað aðalhutverkið í sýningunni Þetta er grín, án djóks. Saga og Halldór Halldórsson, einnig þekktur sem Dóri DNA, gera þar grín að fjölmörgum þjóðþekktum einstaklingum og hópum. „En ætli við séum ekki verst hvort við annað,“ segir Saga og hlær.Óskalisti yfir gesti Á laugardaginn koma þau Saga og Dóri fram í Eldborgarsalnum í Hörpu, en verkið er sviðsetning Leikfélags Akureyrar og hefur verið sýnt þar í Hofi. Að því tilefni hafa þau sett saman óskalista yfir gesti sem þau vilja fá á sýninguna. Fólk sem þau Saga og Dóra gera grín að. Meðal þeirra sem eru á listanum eru Logi Bergmann, Katrín Jakobsdóttir, Laddi, Freyja Haraldsdóttir, Kári Stefánsson, Hanna Birna, Helgi Hrafn og „aðrir kynþokkafullir píratar," að þeirra sögn.Viðurkenning í gríninu „Fólk verður að gera sér grein fyrir því að það felst líka kraftur í því að láta gera grín að sér. Í því felst oft viðurkenning að aðrir telja þig þola grínið. Það er ekki verið að koma fram við þig eins og aumingja. Ég er á þeirri skoðun að það megi gera grín að öllu, svo lengi sem þú getur tekið afleiðingum grínsins. Ef þú vilt vera fávitinn sem segir smekklausan brandara á kostnað einhvers sem ekki getur varið sig, þá er það bara þitt mál. Þá verður þú líka að geta tekið afleiðingunum; dómi samfélagsins. Það er alveg nóg til af fólki sem vill dæma aðra, allt morandi í dómurum,“ útskýrir Saga. „Grín getur verið valdeflandi, það getur verið hjálparhönd, það getur líka verið þung sleggja og bara þakklátt bull. Allt eftir aðstæðum.”Hefur áhyggjur af Dóra Saga segir það vera geggjað að fá að sýna í Eldborgarsalnum, en sýningin á laugardaginn er eina fyrirhugaða sýningin þar. „Menn voru að velta því fyrir sér hvort þetta væri fyrsta leiksýningin í Eldborg, en ég minnti á að ég setti þar upp Þrymskviðu á esperanto, á Esperantoráðstefnu sem haldin var í Hörpu. Vissulega var það svolítið óaðgengilegri sýning.“ Saga segist þó hafa nokkrar áhyggjur af því að fara úr Hofi á stærra svið í Hörpu. „Ég hef miklar áhyggjur af því að ekkert muni heyrast í Dóra. Hann er náttúrulega ekki menntaður leikari. Mig grunar svolítið að línurnar hans muni fara fyrir ofan garð og neðan.“Fjölskyldusýning Makar þeirra Sögu og Dóra koma að sýningunni, en Snorri Helgason, kærasti Sögu, sér um tónlistina og Magnea Guðmundsdóttir, eiginkona Dóra, sér um leikmynd og búninga. „Ég get eiginlega ekki lýst þessu öðruvísi en að það sé svolítill „Brady Bunch“ fílingur í þessu. Svo fengum við líka draumaleikstjórann Jón Pál Eyjólfsson með okkur. Hann er sko skilgreiningin á erfiðum húmor,“ segir Saga og hlær. Sýningin hefur fengið frábæra dóma og hefur verið vel sótt fyrir norðan. „Það hefur verið uppselt á flestar sýningar, annars bara verið örfá sæti laus. Maður hefur heyrt af mörgum sem hafa gert sér ferð norður, sem okkur þykir vænt um. Einhverjir hafa líka gengið út. Það er líka gaman. Þetta er sýning um mörk og ef einhverjum finnst yfir þau farið þá er sjálfsagt að ganga út. Það er alltaf gott að þekkja sín mörk. En þetta er verk um fólk sem gerir það ekki.“ bætir Saga við.Hvort er meiri frekja? Saga segir samstarfið við Dóra hafa verið ótrúlega ánægjulegt. „Dóri fær mann til að hlæja frá hjartanu. Hann er náttúrulega alveg ótrúlega fyndinn. Og klár og einn besti vinur minn“ Hún segir að einhverjir hafi velt því fyrir sér hvort þeirra sé frekara. Hún segir þau bæði vilja fá sínu framgengt, en að þau hafi mjög ólíkar aðferðir til þess. „Hann kynnir hugmyndir sínar alltaf eins og þær séu algjör snilld. Hann setur fólk í stellingar áður en hann kynnir þær og þvingar þær svo eiginlega líkamlega í gegn. Ég er meira í því að byrja rólega en halda mínu svo bara til streitu þangað til fólk gefst upp, ég sigra á sálfræðihernaði. Þetta hefur því verið afar fjölbreytilega frekt samstarf,“ segir Saga og hlær.Saga og Dóri segjast mest gera grín að hvort öðru.Hér má sjá listann sem Dóri og Saga bjuggu til, óskalistann yfir gesti: Brynjar Níelsson Logi Bergmann Laddi Helga Braga Megas Hanna Birna Össur Skarphéðinsson Bjarni Ben Katrin Jakobs Elín Hirst Svandís Svavarsdóttir Freyja Haraldsdóttir. Fólk með þroskahamlanir Einar Bárðarson Múslimar á Íslandi Anders Breivik Ari Eldjárn Bubbi Morthens Geir Ólafs Leoncey Hildur Lillendahl Gillzenegger. Sjálfstæðiskonur. Helgi Hrafn og aðrir þokkafullir Píratar Kári Stefánsson Jón Jónsson Lækna-Tómas Góða fólkið Virkir í athugasemdum Fólk sem notar hugtakið góða fólkið
Menning Mest lesið Ofurpar úr tennisheiminum á Íslandi Lífið Bróðir Díönu Prinsessu naut sín í Reykjavík Menning Ein glæsilegasta skvísa landsins komin á fast Lífið Helgi Björns tryllti lýðinn á 40 ára afmæli Gagnrýni Reykti pabba sinn Lífið Dóttir Anítu og Hafþórs komin í heiminn Lífið Hvað eru konur í framboði að hlusta á? Lífið Gervigreindin heillar Ólaf Ragnar upp úr skónum Lífið Er ESB og Sameinuðu þjóðunum stjórnað af valdaklíku? Lífið Ragga Sveins snýr aftur til Íslands Lífið Fleiri fréttir Bróðir Díönu Prinsessu naut sín í Reykjavík Leikstjóri Forrest Gump mættur til Reykjavíkur 52 ár á milli þeirra og þrjár bækur Ballettdansarinn Vladimir Shklyarov látinn Einar og Sigga á Grund gerð að heiðurslistamönnum Skaðlegt geðheilsunni að reyna að geðjast öðrum Leikfélag Hafnarfjarðar lagt niður Víkingur Heiðar tilnefndur til Grammy-verðlauna Frambjóðendur, sjónvarpsstjörnur og gamlir félagar fögnuðu með Geir Setja upp árekstur og hefja saman rekstur „Þetta eru mjög vondir samningar við Storytel“ Varpa ljósi á mikilvægi og gæði íslenskrar hönnunar „Við þurfum öll að halda í barnið innra með okkur“ Menningarritstjóri ráðinn framkvæmdastjóri Fullt út úr dyrum þegar Eiríkur Bergmann kynnti ferðafélagann Tínu Hvað gerist þegar Laddi hittir Eirík Fjalar, Skrám og Elsu Lund? „Alltaf að fylgja hjartanu í stað þess að velja einföldu leiðina“ Usli og glæsileiki á Kjarvalsstöðum Valgeir sár og Bubbi og Bó hneykslaðir Stappfullt á eina stærstu menningarhátíð ársins Sjóðheitt menningarrými á Baldursgötu Asifa Majid hlýtur Vigdísarverðlaunin 2024 Bjarni Ben fagnaði 140 ára afmæli Listasafns Íslands Han Kang hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? „Þetta er móðgun gegn Íslandi“ Henti listaverkinu í ruslið Kúltúrkettir landsins létu sig ekki vanta í Portið „Hrátt háþróað krass, langt leitt krot“ Bjóða landsmönnum nauðbeygð til messu Sjá meira