Menning

Mismunandi stellingar Almars - GIF

Stefán Árni Pálsson skrifar
Almar hefur verið þarna í 3 heila sólahringa.
Almar hefur verið þarna í 3 heila sólahringa. vísir
Almar Atlason, 23 ára myndlistarnemi, hefur núna verið í þrjá sólahringa inni í glerkassa í húsakynnum Listaháskóla Íslands. Almar er á milli tannanna á öllum þessa dagana og fylgist fólk með gjörningi hans í beinni útsendingu á YouTube.

Almar ætlar sér að vera í kassanum í heila viku og er ástæðan lokaverkefni hans í námskeiðinu Leiðir og úrvinnsla.

Lífið hefur fylgst vel með gangi mála í kassanum og gert sér mat úr þeim stellingum sem Almar hefur verið í undanfarna daga. Það er sennilega ekki ákjósanlegt að vera fastur inni í glerkassa og því er fróðlegt að skoða hvernig hann hefur borið sig að undanfarna daga.

Mikið hefur verið fjallað um Almar í fjölmiðlum hér innanlands sem og fjölmiðlum um allan heima.

Hér að neðan má sjá mismunandi stellingar Almars sem lætur engan bilbug á sér finna.

Lumar þú á góðu skjáskoti af Almari? Endilega sendu á [email protected]


Tengdar fréttir

Heimurinn horfir á karlinn í kassanum

Almar Atlason, 23 ára myndlistarnemi, er farinn að vekja athygli út fyrir landsteinana en hann ætlar að dvelja nakinn í heila viku inni í glerkassa í Listaháskólanum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.