Menning

Hugleiðsla við hljóðbylgjur

Biggi Hilmars tónlistarmaður og eiginkona hans María Kjartansdóttir eru meðlimir listahópsins Vinnslunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Biggi Hilmars tónlistarmaður og eiginkona hans María Kjartansdóttir eru meðlimir listahópsins Vinnslunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Hugleiðsluhátíðin Friðsæld í febrúar hefst á sunnudag með hóphugleiðslu við undirspil á hljóðbylgjum. Birgir Hilmarsson tónlistarmaður samdi hljóðverkið og býður tímaritið Í boði náttúrunnar upp á þessa hugleiðslu í samstarfi við Vinnsluna. „Í hugleiðslunni förum við með þátttakendur í ferðalag. Við munum notast við hljóðverk sem ég er búinn að setja saman úr hljóðbylgjum; nokkrar af helstu hljóðbylgjum sem fyrirfinnast,“ segir Birgir og lýsir áhrifum hljóðbylgja. „Í stuttu máli hafa allar hljóðbylgjur mismunandi áhrif á okkur, tilfinningalega og myndrænt. Til dæmis þegar maður spilar hljóð og er með vatnsbala fyrir framan þá sér maður mismunandi bylgjur í vatninu. Við listahópurinn Vinnslan gerðum tilraun síðastliðið sumar á Jónsvöku á Húsavík þar sem við hugleiddum í heila viku sjálf og fengum fullt af öðrum listamönnum og bæjarbúum með okkur og í kjölfarið skrifuðum við niður þær upplifanir sem komu upp í ferlinu. Það sem okkur fannst áhugavert var hversu margir upplifðu svipaðar sýnir, liti og tilfinningar í hugleiðslunum. Á sunnudaginn viljum við leyfa fólkinu í Reykjavík að fara með okkur í þetta ferðalag og ef fólk vill þá getur það deilt með okkur.“ Í boði náttúrunnar stendur fyrir hátíðinni þriðja árið í röð dagana 7. til 13. febrúar og markar hóphugleiðslan upphaf hennar. [email protected]





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.