Pepsi-spáin 2016: Stjarnan hafnar í 3. sæti Íþróttadeild 365 skrifar 28. apríl 2016 09:00 Stjörnumenn enduðu í fjórða sæti í fyrra. vísir/ernir
Íþróttadeild 365 telur niður í Pepsi-deild karla með árlegri spá sinni. Íslandsmótið hefst 1. maí en þar á FH titil að verja eftir að verða meistari í sjöunda sinn í sögu félagsins. Íþróttadeild 365 spáir Stjörnunni þriðja sæti deildarinnar en það er sæti ofar en liðið hafnaði á síðustu leiktíð. Þrátt fyrir góðan endi á mótinu í fyrra var síðasta tímabil nokkur vonbrigði fyrir Stjörnuna enda liðið að verja Íslandsmeistaratitilinn. Stjarnan varð meistari í fyrsta sinn í sögu félagsins eftir ótrúlegan úrslitaleik gegn FH 2014. Stjarnan hefur styrkt hópinn mikið og ætlar sér stóra hluti í sumar. Rúnar Páll Sigmundsson er á sínu þriðja ári með Stjörnuna en hann byrjaði á því að vinna Íslandsmeistaratitilinn á sínu fyrsta ári við stjórnvölinn. Rúnar átti erfitt uppdráttar í fyrra með Stjörnuliðið en er nú kominn með hóp sem yfirmenn ætlast vafalítið til að geri tilkall til Íslandsmeistaratitilsins og verði ekki í sömu vandræðum og í fyrra. LÍKLEGT BYRJUNARLIÐgraf/sæmundurFYRSTU FIMM Byrjun Stjörnumanna er beggja blands. Þeir eiga mjög vinnanlega leiki gegn Fylki og Þrótti í fyrstu umferðunum og þó Víkingum sé af mörgum spáð góðu gengi er Stjarnan með sterkara lið og fær þar heimaleik. Fyrstu þrír leikirnir líta því ansi vel út fyrir Garðbæinga sem er kannski eins gott því eftir það heimsækja þeir KR í vesturbæinn og fá svo Íslandsmeistara FH í heimsókn02. maí: Stjarnan - Fylkir, Samsung-völlurinn08. maí: Víkingur - Stjarnan, Víkingsvöllur12. maí: Stjarnan – Þróttur, Samsung-völlurinn17. maí: KR – Stjarnan, Alvogen-völlurinn23. maí: Stjarnan - FH, Samsung-völlurinnDaníel Laxdal, Baldur Sigurðsson og Guðjón Baldvinsson.vísir/pjeturÞRÍR SEM STJARNAN TREYSTIR ÁDaníel Laxdal: Uppaldi miðvörðurinn var að spila sína fyrstu leiki fyrir félagið þegar Stjarnan var í 2. deildinni. Hann blæðir bláu og átti frábært tímabil 2014 þegar liðið varð Íslandsmeistari. Daníel var aftur á móti ekki svipur hjá sjón í fyrra og þarf að finna aftur formið sem hann var í fyrir tveimur árum til að hjálpa sínum mönnum að klífa tindinn á ný.Baldur Sigurðsson: Þvílíkur hvalreki sem það ætti að vera fyrir Stjörnuna að fá Baldur í sínar raðir en hann er að koma heim úr atvinnumennsku. Baldur var á sínum tíma hjá KR einn albesti leikmaður deildarinnar og mikill leiðtogi innan sem utan vallar. Algjörlega frábær miðjumaður sem gæti spilað stóra rullu í því að skila Stjörnunni Íslandsmeistaratitilinum.Guðjón Baldvinsson: Endurkoma týnda sonarins á miðju síðasta sumri var fín en ekkert mikið meira en það. Guðjón skoraði fimm mörk í ellefu leikjum en hann spilaði áður fyrir KR í Pepsi-deildinni og stóð sig það vel að hann komst í atvinnumennsku. Guðjón er frábær framherji sem á að skila fullt af mörkum og mikilli vinnu fyrir liðið. Hann er líka leiðtogi og uppalinn Stjörnumaður með mikið Stjörnuhjarta. Hann vill ná árangri fyrir sitt lið.Pablo Punyed var einn af þremur lykilmönnum Stjörnunnar sem fór í byrjun vetrar.vísir/ernirMARKAÐURINN Komnir: Baldur Sigurðsson frá SönderjyskE Grétar Sigfinnur Sigurðarson frá KR Duwayne Oriel Kerr frá Sarpsborg Eyjólfur Héðinsson frá Midtjylland Guðjón Orri Sigurjónsson frá ÍBV Hilmar Árni Halldórsson frá Leikni R. Ævar Ingi Jóhannesson frá KAFarnir: Garðar Jóhannsson í Fylki Gunnar Nielsen í FH Michael Præst í KR Pablo Punyed í ÍBV Arnar Darri Pétursson í Þrótt Atli Freyr Ottesen í Leikni R. á láni Kári Pétursson í Leikni R. á láni Þórhallur Kári Knútsson í Víking Ó. á láni Veturinn byrjaði ekki vel hjá Stjörnumönnum sem misstu þrjá lykilmenn frá sér; Pablo Punyed, Michael Præst og Gunnar Nielsen. KR og FH buðu betur í prestinn og Gunnar en svo stálu Eyjamenn af þeim einum besta leikmanni Stjörnunnar undanfarin ár. Eftir þetta spýttur Garðbæingar hressilega í lófana. Stjarnan er búin að safna að sér hverjum gæðaleikmanninum á fætur öðrum. Baldur Sigurðsson og Grétar Sigfinnur Sigurðarson koma með gæði og mikla reynslu inn í liðið og ekki síst búningsklefann. Í markið fékk liðið svo Jamaíkamanninn Duwayne Kerr frá Sarpsborg en það er svakalegur markvörður sem fór með smáliði Sarpsborg í bikarúrslitin í Noregi í fyrra. Eyjólfur Héðinsson kom heim úr atvinnumennsku og valdi Stjörnuna. Hann hefur verið mikið meiddur undanfarin ár en haldist hann heill getur hann orðið einn besti maður deildarinnar og á í raun að vera það. Þar er háklassa leikmaður á ferð. Stjarnan bætti svo við sig tveimur mjög spennandi strákum; Hilmari Árna Halldórsson frá Leikni og Ævari Inga Jóhannessyni frá KA sem mörg lið vildu fá. Hilmar var langlangbesti leikmaður Leiknis í fyrra en liðið skoraði varla mark sem hann kom ekki að. Hann hefur smollið eins og flís við rass í þetta Stjörnulið og spilað frábærlega í vetur. Ævar Ingi er eldfljótur og áræðinn kantmaður með góðar fyrirgjafir og markanef en hann er fastamaður í byrjunarliði U21 árs landsliðs Íslands. Þó Stjarnan hafi misst sterka spilara er liðið búið að bæta svo mikið við sig að hópurinn er ógnarsterkur.vísir/pjeturHVAÐ SEGIR HJÖRVAR HAFLIÐASON? Hjá Stjörnunni er mikil samkeppni um allar stöður. Ætlar Rúnar að spila Grétari Sigfinni í miðverði á kostnað Brynjars Gauta eða Daníels til dæmis? Á miðjunni má svo gera ráð fyrir Eyjólfi Héðinssyni sem hefur verið meiddur undanfarin þrjú ár. Verði hann heill munar ekkert eðlilega mikið um það. Rúnar getur ekki spilað Jeppe Hansen og Guðjóni Baldvinssyni saman. Á hvorn ætlar hann að veðja? Það er ekki hægt að rótera þeim endalaust í sumar til að halda þeim ánægðum. Það verður ekki hægt að halda öllum ánægðum. Það verða einhverjir að verða fúlir. Rúnar má ekki spila þann leik að halda öllum ánægðum. Það gæti vel komið að því að Stjarnan þurfi að minnka hópinn eitthvað. Stjarnan bjargaði fjórða sætinu í fyrra sem gaf ekki neitt en kröfurnar verða allt aðrar en fjórða sætið í ár. Garðbæingar vilja titil.Rúnar Páll Sigmundsson þarf að rífa Stjörnuna aftur í gang.vísir/ernirÞað sem við vitum um Stjörnuna er... að liðið er með ótrúlega breidd af gæðaleikmönnum. Það er ekki mikið af afgangsstærðum sem hreinlega komast fyrir á bekknum þegar allir eru heilir. Geti Rúnar Páll stillt upp öllum sínum mönnum munu 3-4 leikmenn sem gætu gengið inn í öll lið deildarinnar þurft að dúsa á bekknum.Spurningamerkin eru... hvort Rúnar Páll ráði við að halda öllum ánægðum en það gekk ekkert alltof vel í fyrra þrátt fyrir að hópurinn væri ekki jafnstór. Það verður mikið púsluspil fyrir Rúnar og Brynjar Björn að halda svona mörgum góðum leikmönnum sáttum þegar það er ekki einu sinni Evrópukeppni í boði til að friða menn með. Markvörðurinn er heldur ekki búinn að spila mótsleik með liðinu.Halldór Orri Björnsson þarf að spila betur en í fyrra.vísir/anton brinkÍ BESTA FALLI: Finnur Rúnar Páll sitt sterkasta lið og allir leikmenn Stjörnunnar róa í sömu átt. Þjálfarinn nær að halda mönnum bæði á tánum og brosandi og hikar ekki við að losa ósáttan leikmann eða leikmenn í glugganum ef þess þarf. Breiddin nýtist liðinu vel og öll þessi gæði í liðinu skila sigrum eins og þau eiga að gera. Nái Stjörnumenn upp sömu stemningu og 2014 er liðið betur í stakk búið núna að verða Íslandsmeistari en fyrir tveimur árum í raun og veru.Í VERSTA FALLI: Byrjar liðið mótið ekki nógu vel og pressan fer að hlaðast á Rúnar Pál. Honum gengur ekki að halda stjörnuleikmönnum Stjörnunnar sáttum og finnur ekki sitt besta lið. Liðið hefur glímt við töluvert af meiðslum á undirbúningstímabilinu og það gæti haldið áfram. Veikleikarnir á liðinu eru fáir og má að mörgu leyti segja að liðið sé mest í barátu við sjálft sig um eigin árangur. Stjarnan er samt of gott lið til að fara mikið neðar en fjórða sæti. Svo er bara spurning um hvort það gefi Evrópu fari allt í vaskinn.
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Pepsi-spáin 2016: ÍA hafnar í 10. sæti Íþróttadeild 365 spáir Skagamönnum fallbaráttu í Pepsi-deildinni í sumar eftir flott tímabil í fyrra. 20. apríl 2016 09:00 Pepsi-spáin 2016: Valur hafnar í 5. sæti Íþróttadeild 365 spáir Val fimmta sæti pepsi-deildarinnar í ár eða sama sæti og liðið hefur hafnað í undanfarin þrjú ár. 26. apríl 2016 09:00 Pepsi-spáin 2016: Fjölnir hafnar í 8. sæti Íþróttadeild 365 spáir Fjölni áttunda sæti Pepsi-deildarinnar í sumar en Grafarvogsliðið jafnaði sinn besta árangur í fyrra og lenti í sjötta sæti. 22. apríl 2016 09:00 Pepsi-spáin 2016: Víkingur hafnar í 6. sæti Íþróttadeild 365 spáir Víkingi Reykjavík sjötta sæti Pepsi-deildarinnar í sumar en það er þremur sætum ofar en liðið endaði á síðasta ári. 25. apríl 2016 09:00 Pepsi-spáin 2016: Víkingur Ó. hafnar í 11. sæti Íþróttadeild 365 spáir nýliðum Víkings Ólafsvíkur 11. og næst neðsta sæti Pepsi-deildarinnar í sumar. 19. apríl 2016 09:00 Pepsi-spáin 2016: ÍBV hafnar í 9. sæti Íþróttadeild 365 spáir ÍBV níunda sæti Pepsi-deildarinnar í sumar, einu ofar en liðið hafnaði á síðasta ári. 21. apríl 2016 09:00 Pepsi-spáin 2016: Fylkir hafnar í 7. sæti Íþróttadeild 365 spáir Fylki sjöunda sæti Pepsi-deildarinnar í sumar en það er einu ofar en liðið lenti á síðasta tímabili. 23. apríl 2016 09:00 Pepsi-spáin 2016: Þróttur hafnar í 12. sæti Íþróttadeild 365 spáir nýliðum Þróttar 12. og neðsta sæti Pepsi-deildarinnar í sumar. 18. apríl 2016 09:00 Pepsi-spáin 2016: Breiðablik hafnar í 4. sæti Íþróttadeild 365 spáir Breiðabliki fjórða sæti Pepsi-deildarinnar í sumar en liðið kom skemmtilega á óvart í fyrra og landaði silfrinu. 27. apríl 2016 09:00 Mest lesið Segir fótboltamönnum að halda sig frá McGregor Fótbolti Hareide segir að þjálfaraferlinum sé lokið Fótbolti Harry Potter í ástralska landsliðinu Sport Arnar og Freyr taldir líklegastir til að taka við af Hareide Fótbolti Refirnir skemmtu sér í Köben eftir tapið sem kostaði þjálfarann starfið Enski boltinn Dagskráin í dag: Tapar Man City sjötta leiknum í röð? Sport Carragher segir Salah vera eigingjarnan Enski boltinn Kristinn: Við vorum geggjaðir Körfubolti Uppgjör: Ítalía - Ísland 74-81 | Strákarnir sóttu sigur í gin ljónsins Körfubolti Elvar: Við erum kannski bara svona skemmtilega vitlausir Körfubolti Fleiri fréttir Hræringar í Bestu: Daníel Hafsteins orðaður við Víking og Andri Rúnar í Garðabæ Tólf leikmenn komnir til KR Geir fer aftur í Vesturbæinn FH-ingar kynntu Birki og Braga Framarar sótt fjóra bita í næstu deild Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Ágúst Orri aftur heim í Breiðablik Systur sömdu á sama tíma Katrín áfram í Kópavogi Bjarni áfram hjá KA Þórdís Elva semur við Þróttara Ritstjóri 433.is tekinn við Dalvík/Reyni Birkir Valur yfirgefur HK Enn kvarnast úr liði Vestra Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Kristófer áfram í Kópavogi Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Damir á leið til Asíu Vill vera áfram í Kópavogi en útilokar ekkert Sjá meira
Pepsi-spáin 2016: ÍA hafnar í 10. sæti Íþróttadeild 365 spáir Skagamönnum fallbaráttu í Pepsi-deildinni í sumar eftir flott tímabil í fyrra. 20. apríl 2016 09:00
Pepsi-spáin 2016: Valur hafnar í 5. sæti Íþróttadeild 365 spáir Val fimmta sæti pepsi-deildarinnar í ár eða sama sæti og liðið hefur hafnað í undanfarin þrjú ár. 26. apríl 2016 09:00
Pepsi-spáin 2016: Fjölnir hafnar í 8. sæti Íþróttadeild 365 spáir Fjölni áttunda sæti Pepsi-deildarinnar í sumar en Grafarvogsliðið jafnaði sinn besta árangur í fyrra og lenti í sjötta sæti. 22. apríl 2016 09:00
Pepsi-spáin 2016: Víkingur hafnar í 6. sæti Íþróttadeild 365 spáir Víkingi Reykjavík sjötta sæti Pepsi-deildarinnar í sumar en það er þremur sætum ofar en liðið endaði á síðasta ári. 25. apríl 2016 09:00
Pepsi-spáin 2016: Víkingur Ó. hafnar í 11. sæti Íþróttadeild 365 spáir nýliðum Víkings Ólafsvíkur 11. og næst neðsta sæti Pepsi-deildarinnar í sumar. 19. apríl 2016 09:00
Pepsi-spáin 2016: ÍBV hafnar í 9. sæti Íþróttadeild 365 spáir ÍBV níunda sæti Pepsi-deildarinnar í sumar, einu ofar en liðið hafnaði á síðasta ári. 21. apríl 2016 09:00
Pepsi-spáin 2016: Fylkir hafnar í 7. sæti Íþróttadeild 365 spáir Fylki sjöunda sæti Pepsi-deildarinnar í sumar en það er einu ofar en liðið lenti á síðasta tímabili. 23. apríl 2016 09:00
Pepsi-spáin 2016: Þróttur hafnar í 12. sæti Íþróttadeild 365 spáir nýliðum Þróttar 12. og neðsta sæti Pepsi-deildarinnar í sumar. 18. apríl 2016 09:00
Pepsi-spáin 2016: Breiðablik hafnar í 4. sæti Íþróttadeild 365 spáir Breiðabliki fjórða sæti Pepsi-deildarinnar í sumar en liðið kom skemmtilega á óvart í fyrra og landaði silfrinu. 27. apríl 2016 09:00