Matur

Velja kokk ársins

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þessir keppa til úrslita.
Þessir keppa til úrslita. Mynd - Sigurjón Sigurjónsson
Klúbbur matreiðslumeistara velur Kokk ársins 2017 um helgina. Fimm manna úrslitakeppni í Kokkur ársins keppninni fer fram í Hörpu laugardaginn 23.sept.

Þetta eru þeir fimm keppendur sem munu keppa um titilinn Kokkur ársins 2017.

  • Víðir Erlingsson - Bláa Lónið
  • Rúnar Pierre Heriveaux - Grillið Hótel Saga
  • Garðar Kári Garðarsson - Deplar Farm / Strikið
  • Hafsteinn Ólafsson - Sumac Grill + Drinks
  • Bjarni Viðar Þorsteinsson - Sjávargrillið
Úrslitakeppnin fer fram í Hörpu á morgun laugardag 23.september, Keppendur elda 3ja rétta matseðil úr svokallaðir leyni körfu. Þ.e. keppendur fá að vita deginum áður hvaða hráefni eru í boði og hafa svo fimm klukkustundir til að undirbúa matinn.

Húsið er opið fyrir alla gesti kl: 12 – 18, eftir það er einungis opið fyrir gesti sem hafa tryggt sér miða á kvöldverð samhliða keppninni þar sem Gummi Ben, Eyþór Ingi og landsliðið munu sjá um stemninguna.

Kokkur ársins 2017 verður svo krýndur um kl:23:00 af Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur ráðherra ferðamála, iðnaðar og nýsköpunar.

Í dag föstudag 22. september fer einnig fram í Hörpu nemakeppni í matreiðslu og framreiðslu þar sem verða valdir keppendur fyrir norðurlandakeppni 2018. Opið hús fyrir áhugasama að fylgjast með nemakeppninni kl: 12-19.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.