Menning

14 glæpasögur tilnefndar til Blóðdropans

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Glæpasagnahöfundarnir Arnaldur og Yrsa komu bæði til greina í ár.
Glæpasagnahöfundarnir Arnaldur og Yrsa komu bæði til greina í ár.
Blóðdropinn 2018 fyrir bestu glæpasögu ársins 2017 verður afhentur fimmtudaginn 14. júní. Dómnefndina skipuðu Guðrún Ögmundsdóttir, Vera Knútsdóttir og Páll Kristinn Pálsson og höfðu þau úr vöndu að ráða. Alls komu út 14 glæpasögur á síðasta ári.

Nefndin hefur nú valið þá bestu og hefur viðkomandi höfundi verið tilkynnt það. Blóðdropinn verður afhentur á fimmtudaginn í Iðu Kaffihúsi Vesturgötu 2a og hefjast klukkan 17. 

Bækurnar sem komu til greina eru:

Búrið. Lilja Sigurðardóttir.

Fuglaskoðarinn. Stefán Sturla.

Gatið. Yrsa Sigurðardóttir.

Mistur. Ragnar Jónasson.

Morðið í Gróttu. Stella Blómkvist.

Morðið í leshringnum. Guðrún Guðlaugsdóttir.

Myrkrið veit. Arnaldur Indriðason.

Refurinn. Sólveig Pálsdóttir.

Samsærið. Eiríkur Bergmann.

Skuggarnir. Stefán Máni.

Stúlkan sem enginn saknaði. Jónína Leósdóttir.

Umsátur. Róbert Marvin.

Vályndi. Friðrika Benónýsdóttir.

Vefurinn. Magnús Þór Helgson.




Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.