Skoðun

Samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja

Ingrid Kuhlman skrifar

Baráttan við loftslagsbreytingar af mannavöldum er það viðfangsefni sem nú ber hæst. Afleiðingar loftslagsbreytinga hafa verið mjög sýnilegar í sumar; hitastigið á jörðinni hækkar stöðugt, gróðurbelti eru að færast til, yfirborð sjávar hækkar vegna bráðnunar jökla og flóðahætta eykst á ýmsum frjósömum og þéttbýlum svæðum. Auk þess eru sýnilegar breytingar á lífsskilyrðum í sjó vegna breytinga á straumum, sýrustigi og seltu. Að óbreyttu er ekkert annað fram undan en náttúruhamfarir af óþekktri stærðargráðu. Spurningin sem við eigum öll að ræða er: Hvað getum við Íslendingar gert til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda?



Í skýrslu Hagfræðistofnunar um Ísland og loftslagsmál frá febrúar 2017 kemur fram að áætlaður útblástur frá framræstu votlendi sé langstærsti einstaki losunarþáttur gróðurhúsalofttegunda á Íslandi eða um 70% af heildarlosuninni. Á árum áður voru grafnir um 34.000 km af skurðum sem hafa raskað um 4.200 ferkílómetrum lands. Áætlað er að aðeins um 15% framræsts lands sé nýtt til jarðræktar. Samkvæmt stuðlum IPCC (Vísindanefndar loftslagssamningsins) og innlendum rannsóknum losar hver hektari um 20 tonn af gróðurhúsalofttegundum á ári. Það er því til mikils að vinna með endurheimt votlendis.



Votlendissvæði eru einnig mikilvæg í öðru samhengi því þau eru búsvæði ýmissa lífvera (plantna, fugla, fiska og smádýra) og gegna hlutverki í vatns- og efnabúskap lands. Endurheimt getur aukið útivistargildi svæða. Þau verða áhugaverðari til fuglaskoðunar og skilyrði geta skapast til veiða á fugli og fiski. Því felst margs konar ávinningur í að nýta þá áhrifaríku en jafnframt hagkvæmu loftslagsaðgerð sem endurheimt votlendis er.



Votlendissjóðurinn, sem var stofnaður sl. vor, hefur efnt til þjóðarátaks í nafni samfélagslegrar ábyrgðar til að stöðva losun gróðurhúsalofttegunda frá framræstum mýrum. Sjóðurinn vinnur að endurheimt votlendis í samstarfi við landeigendur, ríki, sveitarfélög, fyrirtæki, félagssamtök og einstaklinga.



Fjölmörg fyrirtæki hafa lagt verkefninu lið, bæði með því að gerast stofnaðilar en einnig með því að leggja til fé til endurheimtar votlendis. Það er ómetanlegt að eiga að traust fyrirtæki til að styðja við bakið á þessu stóra samfélagsverkefni. Ég hvet öll fyrirtæki landsins til að kynna sér málið á votlendi.is og leggja verkefninu lið.



Höfundur er framkvæmdastjóri Þekkingarmiðlunar og FKA-félagskona




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×