Menning

Ian McEwan hlýtur bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Breski rithöfundurinn Ian McEwan hlaut í dag alþjóðleg bókmenntaverðlaun sem kennd eru við Halldór Laxness. Þetta er í fyrsta sinn sem verðlaunin eru afhent.
Breski rithöfundurinn Ian McEwan hlaut í dag alþjóðleg bókmenntaverðlaun sem kennd eru við Halldór Laxness. Þetta er í fyrsta sinn sem verðlaunin eru afhent. Vísir/getty

Breski rithöfundurinn Ian McEwan hlaut í dag alþjóðleg bókmenntaverðlaun sem kennd eru við Halldór Laxness. Þetta er í fyrsta sinn sem verðlaunin eru afhent.



McEwan gat ekki veitt verðlaununum viðtöku en þakkarræða höfundarins var sýnd á skjávarpa á málþingi um Halldór Laxness sem haldið var í dag í Veröld, húsi Vigdísar. McEwan er þó væntanlegur til Íslands í september þar sem hann veitir verðlaununum viðtöku.



Í skilaboðum frá höfundinum kom hann á framfæri djúpstætt þakklæti sitt og sagðist hlakka til að koma til Reykjavíkur í haust.



Verðlaunin nema 15.000 evrum eða rúmum tveimur milljónum íslenskra króna og eru veitt alþjóðlega þekktum rithöfundi fyrir að stuðla að endurnýjun sagnalistar með verkum sínum, en fyrir það hlaut Halldór sjálfur Nóbelsverðlaunin á sínum tíma.



Skrifstofa forsætisráðherra, menntamálaráðuneytið, Íslandsstofa, Bókmenntahátíð í Reykjavík, Gljúfrasteinn og Forlagið standa að verðlaununum.  Eliza Reid forsetafrú, Einar Már Guðmundsson rithöfundur og Stella Soffía Jóhannesdóttir framkvæmdastjóri Bókmenntahátíðar í Reykjavík skipuðu valnefndina að þessu sinni. Verðlaunin verða framvegis veitt á Bókmenntahátíð.



Ferill Ians McEwan spannar næstum því hálfa öld en þekktastur er hann fyrir skáldsögurnar Friðþægingu (2001), Steinsteypugarðinn (1978) og Vinarþel ókunnugra (1981).



Höfundarverkið spannar átján útgefin verk og spanna sögur hans vítt svið allt frá frekar óhugnanlegum sögum um myrkustu afkima sálarinnar yfir í breiðari samfélags-og mannlífslýsingar og sögur sviðsettar í samtíma okkar sem og á tímum seinni heimsstyrjaldar, Kalda stríðsins og valdatíðar Margrétar Thatchers.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.