Skoðun

Kirkja allra

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar
Margir veittu athygli lítilli frétt sem birtist í fjölmiðlum á dögunum. Hún fjallaði um viðbrögð bandarísks ferðamanns sem var stórlega misboðið þegar hann sá regn­boga­fána á kórtröppum Hallgrímskirkju. Hann sneri sér að kirkjuverði og lýsti hneykslun sinni á að slíkur fáni væri í kirkju. Hann fékk það svar að ást Guðs væri fyrir allt fólk. Þetta svar dugði ferðamanninum engan veginn og hann ætlaði sér alls ekki að láta kirkjuvörðinn sleppa svo auðveldlega frá málinu. Hann sagði að Kristur myndi aldrei samþykkja svona nokkuð. Kirkjuvörðurinn mótmælti því og sagði Krist einmitt myndu vera þessu samþykkan. Ferðamaðurinn, stórmóðgaður fyrir hönd Frelsarans, strunsaði burt með þeim orðum að þetta væri greinilega ekki kristin kirkja.

Þessa sanna saga sýnir að í dag finnst fólk sem notar kristna trú til að einangra fólk vegna kynhneigðar þess. Það stimplar til dæmis samkynhneigð sem synd og óeðli og samkvæmt þeirri hugmyndafræði er ómögulegt að taka þann synduga í sátt nema hann sjái að sér og hreinsi sig með því að afneita kynhneigð sinni. Það er beinlínis gremjulegt þegar fólk sem er þessarar skoðunar tekur upp á því að vitna í Krist máli sínu til stuðnings. Kristur var ekki að láta kynhneigð fólks fara í taugarnar á sér. Þeir einstaklingar sem halda öðru fram skilja ekki boðskap hans. Samt leyfa þeir sér að tala óhikað í hans nafni. Þarna er um að ræða fólk sem telur sig vel lesið í Biblíunni, þykist vera með allar kenningarnar á hreinu en lifir um leið í algjörum misskilningi um boðskap Krists um náungakærleik. Hver sá sem vill meina öðrum að njóta mannréttinda vegna kynhneigðar er að hafna náungakærleik. Þetta veit kirkjuvörðurinn sem svaraði hinum erlenda ferðamanni.

Þegar kemur að stuðningi við samkynhneigða hefur þjóðkirkjan ekki hreina samvisku. Hún getur ekki vikið frá sér þeirri staðreynd að í þeim efnum er hún syndug. Tregðan sem lengi var ríkjandi innan kirkjunnar við að gefa samkynhneigða saman í kristilegt hjónaband er skammarblettur sem lengi mun loða við hana. Verið var að flokka samkynhneigða sem annars flokks manneskjur sem hefðu ekki sama rétt og aðrir og nytu ekki Guðs blessunar í sama mæli. Lítið fór fyrir kærleiksboðskap Krists, sem á að vera fyrir alla, ekki einungis þá sem prestarnir telja þóknanlega.

Prestar eru ekki á réttri braut ef þeir hengja sig í bókstafstrú sem boðar fordóma og útskúfun í stað kærleiks og umburðarlyndis. Bókstafstrú á aldrei að vera sterkari en kærleiksboðskapurinn sem kirkjan á alltaf að hafa í heiðri. Prestar sem átta sig ekki á þessu eru ekki í réttu starfi.

Kirkjuvörðurinn góði gengur veg kærleikans, eins og kirkja hans því Hallgrímskirkja er þátttakandi í Hinsegin dögum. Þar blaktir regnbogafáninn við hún og er á kórtröppunum. Mikilvæg ábending um að kirkjan er fyrir alla.


Tengdar fréttir




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×