Hannes með hundrað prósent árangur á móti Tyrkjum Óskar Ófeigur Jónsson í Antalya skrifar 13. nóvember 2019 11:30 Hannes Halldórsson fagnar hér góðum úrslitum á HM í Rússlandi 2018. Getty/Lukasz Laskowski
Hannes Þór Halldórsson, aðalmarkvörður íslenska landsliðsins, hefur spilað marga landsleiki við Tyrki en þekkir ekki enn þá þá tilfinningu að tapa fyrir Tyrkjum í landsleik. Landsleikurinn við Tyrki á Laugardalsvellinum í júní síðastliðnum var fjórði landsleikur Hannesar á móti Tyrklandi og íslenska landsliðið hefur unnið þá alla. Markatalan er 10-1 og Hannes hefur haldið markinu þrisvar sinnum hreinu. Hannes hefur spilað alla landsleiki við Tyrki á undanförnum árum nema einn. Hann var ekki með í útileiknum á móti Tyrklandi í Konya í undankeppni EM 2016. Íslenska landsliðið hafði tryggt sig inn á EM í Frakklandi og þar með inn á sitt fyrsta stórmót í leiknum á undan og leikurinn úti í Tyrklandi skipti engu máli, fyrir Ísland. Hann skipti hins vegar miklu máli fyrir Tyrki. Það var þó ekki ástæðan fyrir því að Hannes stóð ekki í markinu heldur sú að hann hafði meiðst á öxl í leiknum á undan og gat ekki spilað. Ögmundur Kristinsson stóð í markinu og var nálægt því að halda marki sínu hreinu. Selcuk Inan skoraði aftur á móti sigurmarkið beint úr aukaspyrnu á 89. mínútu og tryggði Tyrkjum ekki aðeins 1-0 sigur á Íslandi heldur einnig sæti í úrslitakeppni EM 2016.
EM 2020 í fótbolta Mest lesið Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Sport „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Enski boltinn „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ Enski boltinn Geir fer aftur í Vesturbæinn Íslenski boltinn Tímabært að breyta til Handbolti Enn erfiðara að komast á heimsleikana í CrossFit á næsta ári Sport Blóðug hlaupaferð hjá Guðlaugu Eddu Sport Heimsklassa afgreiðsla hjá Sveindísi um helgina Fótbolti Kallaði dómarann tík og rúmlega það Körfubolti Verstappen áfram hjá Red Bull Formúla 1 Fleiri fréttir Segist enn ekki hafa fengið samningstilboð frá Liverpool Geir fer aftur í Vesturbæinn Heimsklassa afgreiðsla hjá Sveindísi um helgina Dagur Dan og félagar í undanúrslit eftir sigur á liðinu sem stoppaði Messi „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ FH-ingar kynntu Birki og Braga „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Atli og Eiður í KR Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Steve Cooper látinn taka pokann sinn hjá Leicester Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Hákon mættur aftur til leiks Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Jafnað í blálokin í uppgjöri Keflvíkinga í Hollandi Amanda lagði upp í dýrmætum sigri og Kolbeinn nær toppnum Framarar sótt fjóra bita í næstu deild „Hefurðu enga sómakennd?“ Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Celta sótti jafntefli gegn tíu Börsungum Haraldur Árni áfram með Grindavík Sveindís funheit inn af bekknum og setti tvö Bodø/Glimt með langþráðan sigur Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Gamla konan áfram taplaus Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Sjá meira