Sara skoraði þegar Wolfsburg komst í bikarúrslit sjötta árið í röð Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 10. júní 2020 13:57 Sara og stöllur hennar í Wolfsburg skoruðu fimm mörk gegn Armenia Bielefeld. GETTY/KARL BRIDGEMAN
Sara Björk Gunnarsdóttir skoraði fimmta og síðasta mark Wolfsburg þegar liðið vann stórsigur á Armenia Bielefeld, 0-5, í undanúrslitum þýsku bikarkeppninnar í dag. Köln - wir kommen! #DFBPokalFrauen #DSCWOB #ViaColonia #VfLWolfsburg pic.twitter.com/d5F0oO95Si— VfL Wolfsburg Frauen (@VfLWob_Frauen) June 10, 2020 Í úrslitaleiknum mætir Wolfsburg annað hvort Bayer Leverkusen eða Essen. Leikur þeirra í undanúrslitum hefst klukkan 14:00. Sandra María Jessen leikur með Leverkusen. Sara byrjaði á bekknum en kom inn á sem varamaður fyrir Ingrid Engen á 73. mínútu. Þá var staðan 0-3, Wolfsburg í vil. Claudia Neto gerði fjórða mark Wolfsburg og annað mark sitt á 82. mínútu og einni mínútu fyrir leikslok skoraði Sara fimmta markið. Auk Söru og Neto voru Pernille Harder og Pia-Sophie Wolter á skotskónum fyrir Wolfsburg í dag. Wolfsburg hefur orðið bikarmeistari fimm sinnum í röð og getur unnið sjötta titilinn í röð 4. júlí í Köln þar sem úrslitaleikurinn fer fram. Sara hefur orðið bikarmeistari með Wolfsburg á öllum tímabilum sínum hjá félaginu og getur kvatt með enn einum titlinum en hún er sem kunnugt er á förum frá félaginu.
Þýski boltinn Mest lesið Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Sport „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Enski boltinn „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ Enski boltinn Tímabært að breyta til Handbolti Blóðug hlaupaferð hjá Guðlaugu Eddu Sport Kallaði dómarann tík og rúmlega það Körfubolti Verstappen áfram hjá Red Bull Formúla 1 Atli og Eiður í KR Fótbolti FH-ingar kynntu Birki og Braga Íslenski boltinn Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Fótbolti Fleiri fréttir Heimsklassa afgreiðsla hjá Sveindísi um helgina Dagur Dan og félagar í undanúrslit eftir sigur á liðinu sem stoppaði Messi „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ FH-ingar kynntu Birki og Braga „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Atli og Eiður í KR Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Steve Cooper látinn taka pokann sinn hjá Leicester Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Hákon mættur aftur til leiks Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Jafnað í blálokin í uppgjöri Keflvíkinga í Hollandi Amanda lagði upp í dýrmætum sigri og Kolbeinn nær toppnum Framarar sótt fjóra bita í næstu deild „Hefurðu enga sómakennd?“ Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Celta sótti jafntefli gegn tíu Börsungum Haraldur Árni áfram með Grindavík Sveindís funheit inn af bekknum og setti tvö Bodø/Glimt með langþráðan sigur Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Gamla konan áfram taplaus Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Sjá meira