Stuðningsmenn kusu Guðlaug besta leikmann tímabilsins Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 6. júlí 2020 15:15 Guðlaugur Victor í leik með Darmstadt. Vísir/Getty
Guðlaugur Victor Pálsson, leikmaður Darmstadt í þýsku B-deildinni sem og íslenska landsliðsins, var í dag kjörinn besti leikmaður liðsins á nýafstaðinni leiktíð. Liðið endaði í 5. sæti deildarinnar og rétt missti af sæti í umspilinu sem ákvarðar hvaða lið kemst upp í þýsku úrvalsdeildina. Á endanum munaði aðeins þremur stigum á Darmstadt og Heidenheim sem endaði í þriðja sæti deildarinnar. Stórlið Hamburger SV sat einnig eftir með sárt ennið í fjórða sætinu. Guðlaugur Victor gekk í raðir Darmstadt í janúar 2019 og hefur fundið sig vel í herbúðum liðsins. Var hann lykilmaður hjá liðinu í vetur og byrjaði alls 31 af 34 leikjum þess í deildinni. The supporters of Darmstadt have voted Victor Palsson (1991) player of the season. In 31 games he scored 3 goals and gave 5 assists. https://t.co/F8o5IwJAaZ pic.twitter.com/yKxzXXA6t0— Magnus Agnar Magnusson (@totalfl) July 6, 2020 Þrátt fyrir að leika nær alltaf í hlutverki varnartengiliðs á miðjunni eða jafnvel í öftustu línu þá gerði Guðlaugur sér lítið fyrir og skoraði þrjú mörk ásamt því að leggja upp önnur fimm. Guðlaugur hefur alls leikið 15 landsleiki fyrir A-landslið Íslands, þar af voru fjórir í undankeppni EM 2020. Hann var í byrjunarliði Íslands er það vann sigra gegn Moldavíu og Andorra, gerði markalaust jafntefli við Tyrki ytra og tapaði 0-1 gegn Frökkum á Laugardalsvelli.
Þýski boltinn Mest lesið Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Sport „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Enski boltinn „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ Enski boltinn Tímabært að breyta til Handbolti Blóðug hlaupaferð hjá Guðlaugu Eddu Sport Kallaði dómarann tík og rúmlega það Körfubolti Verstappen áfram hjá Red Bull Formúla 1 Enn erfiðara að komast á heimsleikana í CrossFit á næsta ári Sport Geir fer aftur í Vesturbæinn Íslenski boltinn FH-ingar kynntu Birki og Braga Íslenski boltinn Fleiri fréttir Geir fer aftur í Vesturbæinn Heimsklassa afgreiðsla hjá Sveindísi um helgina Dagur Dan og félagar í undanúrslit eftir sigur á liðinu sem stoppaði Messi „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ FH-ingar kynntu Birki og Braga „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Atli og Eiður í KR Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Steve Cooper látinn taka pokann sinn hjá Leicester Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Hákon mættur aftur til leiks Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Jafnað í blálokin í uppgjöri Keflvíkinga í Hollandi Amanda lagði upp í dýrmætum sigri og Kolbeinn nær toppnum Framarar sótt fjóra bita í næstu deild „Hefurðu enga sómakennd?“ Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Celta sótti jafntefli gegn tíu Börsungum Haraldur Árni áfram með Grindavík Sveindís funheit inn af bekknum og setti tvö Bodø/Glimt með langþráðan sigur Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Gamla konan áfram taplaus Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Sjá meira