Pútín heimsótti Sýrland og hitti Assad Kjartan Kjartansson skrifar 7. janúar 2020 15:49 Vel fór á með þeim Pútín (t.v.) og Assad (t.h.) þegar þeir hittust í Damaskus í dag. Vísir/EPA
Vladímír Pútín, forseti Rússlands, hitti Bashar al-Assad, forseta Sýrlands, í Damaskus í dag. Þetta er í annað skiptið sem Pútín heimsækir Sýrland frá því að Rússar hófu afskipti sín af borgarastríðinu í landinu til stuðnings Assad.Reuters-fréttastofan hefur eftir rússnesku fréttaveitunni Interfax að Assad hafi þakkað Pútín fyrir að hafa aðstoðað við að koma á friði í Sýrlandi. Rússneskir hermenn hafa stutt ríkisstjórn hans í borgarastríðinu frá árinu 2015. Forsetarnir tveir hlýddu á skýrslu herforingja um ástand mála í einstökum héruðum landsins, að sögn AP-fréttastofunnar. Pútín er sagður ætla að heimsækja nokkra staði í Sýrlandi í ferðinni. Síðast heimsótti hann Sýrlandi árið 2017 þegar heilsaði upp á rússneska hermenn í Hmeymim-flugherstöðinni. Heimsókn Pútín á sér stað í skugga vaxandi spennu í heimshlutanum eftir að Bandaríkjastjórn lét ráða Qasem Soleimani, yfirmann sérsveitar íranska byltingarvarðarins, af dögum í Írak á föstudag. Íranar hafa einnig verið lykilbandamenn Assad Sýrlandsforseta. Bandarískir hermenn eru enn í austanverðu Sýrlandi og hafa þeir verið nefndir sem möguleg skotmark hefndaraðgerða stjórnvalda í Teheran.
Bandaríkin Íran Rússland Sýrland Mest lesið Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum Erlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Innlent Sundhnúksgígaröðin að verða búin Innlent Ráku háttsettan herforingja sem sakaður var um lygar Erlent Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Innlent Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Innlent Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Innlent Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Innlent „Þetta var mjög skrýtin stemning“ Erlent Fleiri fréttir Ráku háttsettan herforingja sem sakaður var um lygar Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum „Þetta var mjög skrýtin stemning“ Vargöldin á Haítí versnar hratt Tryggja þróunarríkjum 42 billjónir á ári með samkomulagi á COP29 Uppnám á COP29 er fulltrúar þjóða strunsuðu út Vill einn af höfundum „Project 2025“ við stjórn fjárlagaskrifstofu Jöfnuðu fjölbýlishús við jörðu um miðja nótt Hakkarar komu sér fyrir í kerfum fjölda fjarskiptafyrirtækja Ákærður fyrir að nauðga og myrða þrettán ára stúlku Leita móður ungabarns sem fannst látið á víðavangi Styrkja loftvarnir Norður-Kóreu fyrir hermenn og vopn Bolsonaro og félagar kærðir fyrir valdaránstilraun Trump-liðar heita aðgerðum gegn sakamáladómstólnum Útlit fyrir að Scholz leiði flokk sinn til kosninga þrátt fyrir óvinsældir Eigandi gistiheimilis handtekinn í gengslum við metanóleitrun Kostnaðurinn við krýningu Karls konungs 13 milljarðar króna Pam Bondi kemur í stað Matt Gaetz Segir notkun eldflaugarinnar fela í sér stigmögnun átaka Bættu krakkpípu við styttu Nínu Sæmundsson í Los Angeles Gaetz ætlar sér ekki að verða dómsmálaráðherra Tóku tíu úkraínska fanga af lífi Meina fyrstu trans þingkonunni að fara á kvennaklósettið Fyrsta nærmyndin af stjörnu utan Vetrarbrautarinnar Gefa út handtökuskipun á hendur Netanjahú Fjögur ungmenni nú látin af völdum tréspírans Skutu fyrstu langdrægu skotflauginni að Úkraínu Hugmynd um banana á vegg seldist á 850 milljónir John Prescott fallinn frá Siðanefndin klofin í máli Gaetz en gögn farin að leka Sjá meira