Í fýlu yfir að fá ekki „sitt“ sæti í liðsrútunni og hent úr hóp fyrir Meistaradeildarleik Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 24. nóvember 2020 14:01 Emmanuel Dennis á ferðinni í fyrri leik Club Brugge og Borussia Dortmund í Meistaradeild Evrópu. getty/Jef Matthee
Nígeríski framherjinn Emmanuel Dennis verður ekki með Club Brugge í leiknum gegn Borussia Dortmund í F-riðli Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Ástæðan fyrir fjarveru Dennis er æði sérstök. Hann fór nefnilega í fýlu vegna þess að hann gat ekki setið á sínum uppáhalds stað í liðsrútu Club Brugge vegna sóttvarnaráðstafana. Dennis rauk í kjölfarið í burtu. Philippe Clement, knattspyrnustjóri Club Brugge, var ekki sáttur með þetta upphlaup Dennis og hann var skilinn eftir heima þegar belgísku meistararnir fóru til Þýskalands. Dennis á einnig von á sekt fyrir framkomu sína. Clement vildi lítið tjá sig um málið annað en það að Dennis hefði ekki fylgt settum reglum og hafi því ekki verið valinn í hóp Club Brugge fyrir leikinn á Westfalen leikvanginum í kvöld. Club Brugge er með fjögur stig í 3. sæti F-riðils Meistaradeildarinnar. Liðið tapaði fyrri leiknum gegn Dortmund fyrir tveimur vikum, 0-3. Dennis, sem er 23 ára, kom til Club Brugge frá Zorya Luhansk í Úkraínu 2017.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Sport „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Enski boltinn „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ Enski boltinn Geir fer aftur í Vesturbæinn Íslenski boltinn Tímabært að breyta til Handbolti Enn erfiðara að komast á heimsleikana í CrossFit á næsta ári Sport Blóðug hlaupaferð hjá Guðlaugu Eddu Sport Heimsklassa afgreiðsla hjá Sveindísi um helgina Fótbolti Kallaði dómarann tík og rúmlega það Körfubolti Verstappen áfram hjá Red Bull Formúla 1 Fleiri fréttir Segist enn ekki hafa fengið samningstilboð frá Liverpool Geir fer aftur í Vesturbæinn Heimsklassa afgreiðsla hjá Sveindísi um helgina Dagur Dan og félagar í undanúrslit eftir sigur á liðinu sem stoppaði Messi „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ FH-ingar kynntu Birki og Braga „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Atli og Eiður í KR Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Steve Cooper látinn taka pokann sinn hjá Leicester Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Hákon mættur aftur til leiks Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Jafnað í blálokin í uppgjöri Keflvíkinga í Hollandi Amanda lagði upp í dýrmætum sigri og Kolbeinn nær toppnum Framarar sótt fjóra bita í næstu deild „Hefurðu enga sómakennd?“ Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Celta sótti jafntefli gegn tíu Börsungum Haraldur Árni áfram með Grindavík Sveindís funheit inn af bekknum og setti tvö Bodø/Glimt með langþráðan sigur Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Gamla konan áfram taplaus Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Sjá meira