Karólína Lea og Alexandra komu við sögu í sínum fyrstu deildarleikjum Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 7. mars 2021 15:45 Karólína Lea kom inn af bekknum hjá toppliði Bayern. Bayern Karólína Lea Vilhjálmsdóttir og Alexandra Jóhannsdóttir komu við sögu hjá sínum liðum í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Bayern München vann 5-1 útisigur á Freiburg og þá tapaði Eintracht Frankfurt 2-0 á útivelli gegn Hoffenheim.
Karólína Lea byrjaði feril sinn hjá Bayern München frábærlega en það tók hana aðeins þrjár mínútur að skora fyrir félagið eftir að hún kom af bekknum í Meistaradeild Evrópu í liðinni viku. 73' Bundesliga-Debüt für Karólína Lea Vilhjálmsdóttir! Sie kommt für Lohmann ins Spiel. Auf geht's, Karólína! #MiaSanMia #SCFFCB 0:4 | #DieLiga— FC Bayern Frauen (@FCBfrauen) March 7, 2021 Innkoma hennar var ekki alveg jafn mögnuð í dag en Karólína kom inn af bekknum á 73. mínútu er Bayern heimsótti Freiburg í dag. Bayern var komið 4-0 yfir er Karólína steig á völlinn. Tíu mínútum síðar minnkuðu heimastúlkur muninn en Bayern bætti við marki skömmu fyrir leiksloka og leiknum lauk með öruggum 5-1 sigri gestanna. Alexandra hóf einnig leikinn á bekknum er Eintracht Frankfurt heimsótti Hoffenheim. Heimastúlkur komust yfir strax á sjöundu mínútu og staðan því 1-0 eftir að Alexandra kom inn af bekknum á 25. mínútu leiksins. Aðeins mínútu síðar bætti Hoffenheim við öðru marki og staðan orðin 2-0. Reyndust það lokatölur leiksins. Bayern er sem fyrr á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar með fullt hús stiga að loknum fimmtán umferðum á meðan Frankfurt í er í 7. sæti með 17 stig.
Fótbolti Þýski boltinn Mest lesið Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Sport „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Enski boltinn „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ Enski boltinn Kallaði dómarann tík og rúmlega það Körfubolti Verstappen áfram hjá Red Bull Formúla 1 Atli og Eiður í KR Fótbolti Blóðug hlaupaferð hjá Guðlaugu Eddu Sport Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Fótbolti Chicago Bears leita nýrra leiða til að tapa leikjum Sport FH-ingar kynntu Birki og Braga Íslenski boltinn Fleiri fréttir Dagur Dan og félagar í undanúrslit eftir sigur á liðinu sem stoppaði Messi „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ FH-ingar kynntu Birki og Braga „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Atli og Eiður í KR Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Steve Cooper látinn taka pokann sinn hjá Leicester Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Hákon mættur aftur til leiks Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Jafnað í blálokin í uppgjöri Keflvíkinga í Hollandi Amanda lagði upp í dýrmætum sigri og Kolbeinn nær toppnum Framarar sótt fjóra bita í næstu deild „Hefurðu enga sómakennd?“ Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Celta sótti jafntefli gegn tíu Börsungum Haraldur Árni áfram með Grindavík Sveindís funheit inn af bekknum og setti tvö Bodø/Glimt með langþráðan sigur Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Gamla konan áfram taplaus Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Jóhann lagði upp langþráð mark Sjá meira