Einvígið fer fram á Spáni Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 30. mars 2021 22:00 Leikmenn Chelsea munu ferðast tvívegis til Spánar á sex dögum til að spila gegn Porto í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. EPA-EFE/NEIL HALL Í dag var staðfest að báðir leikir Chelsea og Porto í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu munu fara fram á Spáni. Kórónuveirufaraldurinn hefur áfram að hafa gífurleg áhrif á knattspyrnuleiki um allan heim. Í dag staðfesti knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, að báðir leikir Chelsea og Porto í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar yrðu leiknir á Ramón Sánchez Pizjuán-vellinum í Sevilla á Spáni. Er það heimavöllur spænska úrvalsdeildarfélagsins Sevilla en félagið datt út gegn Borussia Dortmund í 16-liða úrslitum keppninnar og völlurinn því laus báða dagana sem Chelsea og Porto mætast. Fyrri leikur liðanna fer fram miðvikudaginn 7. apríl og er titlaður sem heimaleikur Porto. Sá síðari fer fram sex dögum síðar eða á þriðjudeginum 13. apríl og er titlaður sem heimaleikur Chelsea. Þó báðir leikirnir fari fram á hlutlausum velli munu útivallarmörk gilda ef til þeirra kemur. UEFA hefur ekki gefið annað í skyn og þá hafa önnur einvígi í bæði Meistaradeild og Evrópudeild verið leikin á hlutlausum völlum. Sigurvegarinn úr rimmu Chelsea og Porto mun mæta annað hvort Real Madrid eða Liverpool í undanúrslitum keppninnar.
Kórónuveirufaraldurinn hefur áfram að hafa gífurleg áhrif á knattspyrnuleiki um allan heim. Í dag staðfesti knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, að báðir leikir Chelsea og Porto í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar yrðu leiknir á Ramón Sánchez Pizjuán-vellinum í Sevilla á Spáni. Er það heimavöllur spænska úrvalsdeildarfélagsins Sevilla en félagið datt út gegn Borussia Dortmund í 16-liða úrslitum keppninnar og völlurinn því laus báða dagana sem Chelsea og Porto mætast. Fyrri leikur liðanna fer fram miðvikudaginn 7. apríl og er titlaður sem heimaleikur Porto. Sá síðari fer fram sex dögum síðar eða á þriðjudeginum 13. apríl og er titlaður sem heimaleikur Chelsea. Þó báðir leikirnir fari fram á hlutlausum velli munu útivallarmörk gilda ef til þeirra kemur. UEFA hefur ekki gefið annað í skyn og þá hafa önnur einvígi í bæði Meistaradeild og Evrópudeild verið leikin á hlutlausum völlum. Sigurvegarinn úr rimmu Chelsea og Porto mun mæta annað hvort Real Madrid eða Liverpool í undanúrslitum keppninnar. Meistaradeild Evrópu er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Meistaradeildin er hluti af Stöð 2 Sport Erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Meistaradeild Evrópu er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Meistaradeildin er hluti af Stöð 2 Sport Erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Fótbolti Meistaradeild Evrópu Mest lesið Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Sport „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Enski boltinn „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ Enski boltinn Blóðug hlaupaferð hjá Guðlaugu Eddu Sport Kallaði dómarann tík og rúmlega það Körfubolti Verstappen áfram hjá Red Bull Formúla 1 Tímabært að breyta til Handbolti Atli og Eiður í KR Fótbolti FH-ingar kynntu Birki og Braga Íslenski boltinn Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Fótbolti Fleiri fréttir Dagur Dan og félagar í undanúrslit eftir sigur á liðinu sem stoppaði Messi „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ FH-ingar kynntu Birki og Braga „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Atli og Eiður í KR Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Steve Cooper látinn taka pokann sinn hjá Leicester Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Hákon mættur aftur til leiks Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Jafnað í blálokin í uppgjöri Keflvíkinga í Hollandi Amanda lagði upp í dýrmætum sigri og Kolbeinn nær toppnum Framarar sótt fjóra bita í næstu deild „Hefurðu enga sómakennd?“ Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Celta sótti jafntefli gegn tíu Börsungum Haraldur Árni áfram með Grindavík Sveindís funheit inn af bekknum og setti tvö Bodø/Glimt með langþráðan sigur Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Gamla konan áfram taplaus Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Jóhann lagði upp langþráð mark Sjá meira