Tammy Abraham skaut Roma aftur á sigurbraut Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 23. september 2021 20:41 Tammy Abraham skoraði eina mark leiksins þegar Roma lagði Udinese í ítalska boltanum í kvöld. Silvia Lore/Getty Images Roma vann 1-0 sigur þegar að liðið tók á móti Udinese í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Lærisveinar José Mourinho eru nú með fjóra sigra í fyrstu fimm leikjunum eftir tap í síðustu umferð.
Heimamenn í Roma voru sterkari aðilinn í kvöld og það var fyrrum Chelsea maðurinn Tammy Abraham sem að kom þeim í forystu á 36. mínútu eftir undirbúning Riccardo Calafiori. Staðan var því 1-0 í hálfleik, og þrátt fyrir að vera betra liðið á vellinum tókst Roma ekki að bæta í. Lorenzo Pellegrini nældi sér í sitt annað gula spjald í uppbótartíma í liði Roma þegar hann setti olnbogann í Lazar Samardzic. Það kom þó ekki að sök og lokatölur urðu því 1-0. Roma er með 12 stig eftir fimm leiki í fjórða sæti. Udinese situr í tíunda sæti með sjö stig. Tveir aðrir leikir fóru fram í ítölsku deildinni í dag, en Napoli er enn með fullt hús stiga eftir 4-0 stórsigur gegn Sampdoria. Victor Osimhen skoraði tvö mörk fyrir Napoli og Piotr Zielinski og Fabian skoruðu sitt markið hvor. Þá bjargaði Ciro Immobile stigi fyrir Lazio með marki af vítapunktinum í uppbótartíma eftir að liðið hafði lent 1-0 undir gegn Torino. Marko Pjaca skoraði mark Torino þremur mínútum eftir að hann kom inn á sem varamaður.
Fótbolti Ítalski boltinn Mest lesið Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Sport „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Enski boltinn „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ Enski boltinn Geir fer aftur í Vesturbæinn Íslenski boltinn Enn erfiðara að komast á heimsleikana í CrossFit á næsta ári Sport Tólf leikmenn komnir til KR Íslenski boltinn Tímabært að breyta til Handbolti Blóðug hlaupaferð hjá Guðlaugu Eddu Sport Heimsklassa afgreiðsla hjá Sveindísi um helgina Fótbolti Ekkert lið með meiri forystu síðan Cantona var upp á sitt besta Enski boltinn Fleiri fréttir Vinícius Júnior missir af leiknum á móti Liverpool Ekkert lið með meiri forystu síðan Cantona var upp á sitt besta Tólf leikmenn komnir til KR Segist enn ekki hafa fengið samningstilboð frá Liverpool Geir fer aftur í Vesturbæinn Heimsklassa afgreiðsla hjá Sveindísi um helgina Dagur Dan og félagar í undanúrslit eftir sigur á liðinu sem stoppaði Messi „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ FH-ingar kynntu Birki og Braga „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Atli og Eiður í KR Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Steve Cooper látinn taka pokann sinn hjá Leicester Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Hákon mættur aftur til leiks Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Jafnað í blálokin í uppgjöri Keflvíkinga í Hollandi Amanda lagði upp í dýrmætum sigri og Kolbeinn nær toppnum Framarar sótt fjóra bita í næstu deild „Hefurðu enga sómakennd?“ Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Celta sótti jafntefli gegn tíu Börsungum Haraldur Árni áfram með Grindavík Sveindís funheit inn af bekknum og setti tvö Bodø/Glimt með langþráðan sigur Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Sjá meira