Að peppa upp dauðþreytt starfsfólk í desember Rakel Sveinsdóttir skrifar 9. desember 2022 07:00 Desember er mesti álagstími margra vinnustaða og þá er mikilvægt að stjórnendur gefi sér tíma fyrir starfsfólkið. En ekkert síður að stjórnendur séu sjálfir fyrirmynd. Líka í því að hvíla sig á milli vinnudaga eða vakta. Vísir/Vilhelm Á mörgum stöðum er desember stærsti sölumánuðurinn. Mesti álagstími ársins fyrir starfsfólk. Sem þó, til viðbótar við að vinna mikið, er líka að undirbúa sín jól. Með tilheyrandi stússi.
Það er því alveg eðlilegt að álagið reyni á. Sérstaklega þegar nær dregur jólum. Hér eru nokkur ráð fyrir stjórnendur að hafa í huga, til þess að peppa þreytt starfsfólk upp og efla nú þegar álagið er hvað mest. 1. Gefðu þér tíma í starfsfólkið Upplýsingamiðlun og góð samskipti við starfsfólk eru alltaf mikilvæg. En sjaldan eins mikilvæg og þegar álagið er mikið og starfsfólk er orðið þreytt. Skýringin á þessu er einfaldlega sú að með því að leggja áherslu á upplýsingamiðlun og góð samskipti og gefa sér sérstaklega tíma til þess að tala við starfsfólk þótt það sé mikið að gera, eru stjórnendur mögulega að sporna við ofþreytu eða jafnvel kulnun á síðari stigum. Þessum tíma er því vel varið. 2. Jafnvægi heimilis og vinnu: Hvað gætir þú gert eða boðið? Þótt opnunartímar séu víða lengri í desember og vinnudagar langir, eru stjórnendur hvattir til þess að gera það sem hægt er til þess að koma til móts við starfsfólk hvað varðar jafnvægi heimilis og vinnu. Ef það er til dæmis hægt að mynda einhvern sveigjanleika í mætingu, að skipta á milli sín hálfum eða heilum aukafrídögum eða eitthvað sem gerir fólki kleift að hvílast eða nýta tímann til að undirbúa sín jól, eru stjórnendur hvattir til bjóða þennan sveigjanleika, eða umbun í formi frís, fram. 3. Að virða fríið Flestir vinnustaðir eru litlir og meðalstórir og það á ekki síst við um þá vinnustaði þar sem álagið er hvað mest fyrir jólin. Þess vegna er stjórnendum bent á að virða vel frítímann sem starfsfólkið þó hefur á milli vakta eða vinnudaga. Ekki að senda Messenger skilaboð eða önnur skilaboð á kvöldin eða um helgar þegar það er frí og svo framvegis. Nema erindið sé þeim mun brýnna. 4. Að vera fyrirmynd Þá er það alltaf mjög gott ef stjórnendur eru meðvitaðir um að þeir eru mesta fyrirmyndin sjálf. Ef starfsfólki er ætlað að sinna viðskiptavinum með brosi á vör þrátt fyrir langa daga og mikið álag, er mælt með því að stjórnendur sýni í verki að þeir eru tilbúnir til að gera slíkt hið sama. Að sama skapi er mikilvægt að stjórnendur sýni að það að taka sér hvíld á milli vinnudaga eða vakta, er líka mjög mikilvægt. Algeng gryfja er til dæmis að á þessum tíma ársins, kveðji stjórnendur starfsfólk í lok dags en vinni sjálfir áfram fram eftir kvöldi. Frekar er mælt með því að stjórnendur séu fyrirmyndir í því líka, að hvíla sig á milli vinnudaga og of keyra sig ekki. Því ofkeyrsla í álagi gagnast engum og er líklegt til að bitna á því jákvæða dagsformi sem við erum frekar í þegar við erum betur hvíld. 5. Það sem léttir á álagi Allt sem mögulega getur létt á miklu álagi hjálpar. Þetta getur verið aukafólk sem kallað er til part úr degi eða á vissum dögum. En þetta getur líka verið útsjónarsemi og skipulag. Allt sem hægt er að gera í dag, bíður ekki til morguns og svo framvegis. Að dreifa álagi eins og kostur er, er því gott markmið. Hér má til dæmis minna á að þegar er orðið mjög þreytt, aukast líkurnar á að það geti orðið veikt og hér eru alltaf einhverjar flensur að ganga. Þótt það séu að koma jól.
Góðu ráðin Tengdar fréttir Að æfa þakklæti í vinnunni getur margborgað sig Rannsóknir til fjölda ára hafa sýnt mjög sterkt samband á milli þess að vera þakklát fyrir það sem við eigum og höfum og hamingju. Skiptir þá engu máli hvar eða hver við erum. Að lifa í þakklæti hefur hreinlega mjög jákvæð áhrif á það hvernig okkur líður. 25. nóvember 2022 07:01 Oft snúast kaup á vöru frekar um öryggistilfinningu en lægsta verðið „Mikilvægasta hlutverk vörumerkis er að fólk taki eftir því og muni eftir því. Það þýðir að vinnan við að byggja upp vörumerki þarf að vera löngu hafin áður en hin árlega auglýsingasturlun hefst í kringum jólin og allt það áreiti sem því fylgir,“ segir Kári Sævarsson, stofnandi TVIST auglýsingastofu um þær áherslur sem þurfa að vera hjá söluaðilum sem nú eru í óða önn að setja sig í stellingar til að selja sem mest fyrir jólin. 16. nóvember 2022 07:01 Þrennt sem virkar vel að bjóða starfsfólki annað en launahækkun Peningar eru ekki allt og peningar kaupa ekki hamingju. Sem auðvitað þýðir að í vinnunni okkar er svo margt annað sem getur talist til annað en launin sem við fáum greidd fyrir vinnuna. 14. nóvember 2022 07:00 Sóðarnir í vinnunni: Oft sama fólkið sem lætur ekki segjast Það heyrir nánast til undantekninga að sjá ekki einhverja hvatningu á vinnustöðum til starfsmanna um að ganga vel um. Til dæmis að ganga frá í eldhúsinu. 21. október 2022 07:00 Mest lesið „Stelpupabbarnir eru ósjálfrátt betur á verði“ Atvinnulíf Verðbólgan komin undir fimm prósent Viðskipti innlent Gengið frá kaupum Haga á færeyska verslanarisanum Viðskipti innlent Helena til Íslandssjóða Viðskipti innlent Þrjú fá kauprétt fyrir alls 277 milljónir Viðskipti innlent Steyptu fyrsta gullmolann Viðskipti innlent Ósætti með vinnubrögð Blackbox sem virðist á barmi gjaldþrots Viðskipti innlent EX90 sló í gegn á frumsýningu hjá Brimborg Samstarf Magga í Pfaff: „Ég man meira að segja hvar fyrsti kossinn var“ Atvinnulíf Driffjöður Vertonet: „Við erum að setja kjöt á beinin núna“ Atvinnulíf Fleiri fréttir „Stelpupabbarnir eru ósjálfrátt betur á verði“ Driffjöður Vertonet: „Við erum að setja kjöt á beinin núna“ Velgengni í New York: „Mér finnst ég ekkert hafa verið hér mjög lengi“ Magga í Pfaff: „Ég man meira að segja hvar fyrsti kossinn var“ Fær nokkuð jákvæð viðbrögð þegar hann vandar sig í eldhúsinu Dagatalsmenningin: Rosa töff að vera með yfirbókaða dagskrá Vogue og forsetafrúin kveiktu strax en íslenski vinnumarkaðurinn með hindranir Inngildingin: „Íslenska töluð með hreim er samt íslenska“ Dæmi: „Tvær konur geta ekki unnið saman því einu sinni áttu þær sama kærasta“ „Unglingsárin voru kannski ekki mín heppilegustu ár“ „Pólitíkin er dugleg í þessu en einkageirinn kann þetta ekki nógu vel“ Að byggja upp vinnustað sem hræðist ekki breytingar Stærðin skiptir ekki máli Ólafur Ingi: „Ég er kostuð eiginkona“ Einróma niðurstaða að Hörður sé eins og Kristján í Frozen „Reglugerðin tekur gildi hvort sem menn hafa þetta hugrekki eða ekki“ Allt í steik: Samtalið við yfirmanninn „Okkur langar til að búa til nýja tegund af bjórmenningu“ „Eitthvað við kvöldin og nóttina sem ég heillast af“ Dýrara að gera ekkert: „Erum öll að pissa í sömu laugina“ Úrelt kerfi: „Síðan kom bara einhver bíll og tæmdi allt“ Sorp: Fólk að hoppa niður plastið í tunnunum til að þjappa því „Ekkert ósvipaður leikur og menn léku í bönkunum fyrir bankahrun“ „Fyrsta verk er án gríns að fá mér lýsi og tékka á Vísi“ Kosningaspenna á vinnustöðum og rifrildi um pólitík Sif Jakobs: „Ekta demantar eru nú einfaldlega ræktaðir“ „Hörðustu samningaviðræðurnar voru við yngsta fólkið Eitraður starfsmaður og góð ráð „Enginn kvartað yfir því þegar ég hef skúrað“ Ekki trompast við fólk í vinnu eða á fundum Sjá meira
Að æfa þakklæti í vinnunni getur margborgað sig Rannsóknir til fjölda ára hafa sýnt mjög sterkt samband á milli þess að vera þakklát fyrir það sem við eigum og höfum og hamingju. Skiptir þá engu máli hvar eða hver við erum. Að lifa í þakklæti hefur hreinlega mjög jákvæð áhrif á það hvernig okkur líður. 25. nóvember 2022 07:01
Oft snúast kaup á vöru frekar um öryggistilfinningu en lægsta verðið „Mikilvægasta hlutverk vörumerkis er að fólk taki eftir því og muni eftir því. Það þýðir að vinnan við að byggja upp vörumerki þarf að vera löngu hafin áður en hin árlega auglýsingasturlun hefst í kringum jólin og allt það áreiti sem því fylgir,“ segir Kári Sævarsson, stofnandi TVIST auglýsingastofu um þær áherslur sem þurfa að vera hjá söluaðilum sem nú eru í óða önn að setja sig í stellingar til að selja sem mest fyrir jólin. 16. nóvember 2022 07:01
Þrennt sem virkar vel að bjóða starfsfólki annað en launahækkun Peningar eru ekki allt og peningar kaupa ekki hamingju. Sem auðvitað þýðir að í vinnunni okkar er svo margt annað sem getur talist til annað en launin sem við fáum greidd fyrir vinnuna. 14. nóvember 2022 07:00
Sóðarnir í vinnunni: Oft sama fólkið sem lætur ekki segjast Það heyrir nánast til undantekninga að sjá ekki einhverja hvatningu á vinnustöðum til starfsmanna um að ganga vel um. Til dæmis að ganga frá í eldhúsinu. 21. október 2022 07:00