„Átti að hafa borðað elskhuga í morgunmat því hún var komin með leið á honum“ Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 7. maí 2023 09:00 Berglind Rögnvalds er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst en hún gerði meðal annars listrænt og femínískt verkefni um Grýlu. Vísir/Vilhelm „Grýla hefur oft verið nefnd fyrsti femínisti Íslands. Hún var rosalega kraftmikil og lifandi og átti fullt af elskhugum. Þá byrjuðu þessar sögusagnir um hana,“ segir listakonan og ljósmyndarinn Berglind Rögnvalds, sem er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst. Berglind hefur meðal annars unnið listrænt verkefni um Grýlu, þar sem hún velti fyrir sér hvernig Grýla hefði verið ef hún hefði fengið að blómstra.
Hér má horfa á allt viðtalið við Berglindi í Kúnst: Sér persónulegu tenginguna eftir á Berglind segir áhugavert að sjá hvernig listin getur stundum verið á undan henni þegar það kemur að tilfinningum og erfiðum hlutum. „Þarna var ég ekki búin að fatta held ég að ég var í einhverjum pælingum með að skilja. Svo er ég að líkja mér við Grýlu, finnst ég ekki nógu góð mamma og var með eitthvað svona óöryggi. Ég ákveð að gera þetta verkefni um Grýlu til að finna eitthvað valdeflandi í því ferli. Hvernig hefði Grýla verið ef hún hefði bara fengið að vera hún sjálf og við hefðum ekki farið að gera þessa neikvæðu ímynd af henni? Ég fór í gegnum langt ferli og notaði sjálfa mig í verkefnið. Svo þremur árum seinna sé ég að ég var ekki búin að tengja afhverju ég gerði þetta verkefni. Maður sér það eftir á.“ Góð tenging mikilvæg Hún segir mikilvægt að vera í góðri tengingu við sjálfa sig og leyfa því að gerast sem kemur. Þannig verður listræna flæðið sem best. „Stundum er þetta rosa persónulegt og svo setur maður það í einhvern búning. Það er fyndið að hugsa til baka og sjá að maður var að tjá eitthvað án þess að vita það.“ Berglind Rögnvalds er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst.Vísir/Vilhelm Hvað ef Grýla hefði fengið að blómstra? Viðfangsefnið Grýla heillaði Berglindi en Grýla hefur verið nefnd fyrsti femínisti Íslands. „Hún var rosalega kraftmikil og lifandi og átti fullt af elskhugum. Þá byrjuðu þessar sögusagnir um hana. Hún átti að hafa borðað einhvern elskhuga í morgunmat því hún var komin með leið á honum, hún átti einhvern staf sem hún gat fryst jörð með og þar kemur þessi nornapæling,“ segir Berglind og á við að kraftmiklar og ákveðnar konur hafi í sögulegu samhengi oft verið kallaðar göldróttar nornir. „Samfélagið gaslýsir þær svona svolítið og gerir eitthvað úr þeim. Í dag er Grýla ímynd vondu stjúpunnar, birtingarmynd vondu móðurinnar í rauninni. Ég var með þessa pælingu um hvað ef hún hefði bara fengið að blómstra fyrir allt það sem hún var. Hún var örugglega alveg kúkú en bara mjög litríkur persónuleiki og ung, ákveðin kona.“ Þættirnir KÚNST með Dóru Júlíu rannsaka hinar ýmsu víddir listsköpunar, ólíka listmiðla og sköpunargleði hjá íslenskum samtíma listamönnum ásamt því að fá að skyggnast bak við tjöldin og heyra um persónulegt líf þeirra. Hér fyrir neðan má sjá fleiri þætti af KÚNST. Hildur Hákonardóttir er viðmælandi í þessum þætti af Kúnst. Hún hefur hefur haft mikil áhrif á íslenska listheiminn með einstökum og pólítískum verkum sínum. Fjöllistakonan Júlíanna Ósk Hafberg er hugfangin af mjúkri, berskjaldaðri og kvenlægri orku en vinnustofa hennar og verk endurspegla það með sanni. Í gegnum tíðina hefur Saga Sigurðardóttir verið þekkt fyrir tískuljósmyndir sínar en undanfarin ár hefur hún einnig vakið athygli fyrir abstrakt málverk sín. Við kíktum á Sögu á vinnustofu hennar en líkt og Berglind hefur Saga einnig unnið verkefni um Grýlu.
Kúnst Menning Myndlist Ljósmyndun Jafnréttismál Tengdar fréttir „Mig langaði bara að leyfa geirvörtunni að njóta sín“ „Ég var búin að upplifa það svolítið mikið hvað þetta var mikið tabú,“ segir ljósmyndarinn og listakonan Berglind Rögnvaldsdóttir, sem er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst. Berglind notast gjarnan við viðfangsefni á borð við kvenlíkamann og náttúruna og má segja að verk hennar séu femínísk og einkennist af kvennakrafti. Um þrítugt ákvað hún að skrá sig í ljósmyndanám í Osló og átti lífið í kjölfarið eftir að gjörbreytast í listræna og ævintýralega átt. 1. maí 2023 07:00 „Ég var stundum háskælandi að mála þessi verk“ „Ég dett bara í einhverja hugleiðslu og mála án þess að hugsa of mikið. Ég leyfi því að gerast sem vill gerast,“ segir listamaðurinn Baldur Helgason. Lífið tók óvænta og kærkomna stefnu hjá honum eftir að hann fékk tækifæri hjá galleríi í Chicago en síðan þá hefur hann verið að gera öfluga hluti í hinum stóra heimi myndlistarinnar. Baldur Helgason er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst. 22. apríl 2023 07:01 Ferillinn fór á flug eftir örlagaríka listasýningu vestanhafs „Ég fór úr því að vera einn í kjallara heima hjá mér að mála í einhverju ströggli og yfir í að geta allt í einu farið að lifa á því að gera myndlist, sem virðist hafa gerst á einni nóttu,“ segir listamaðurinn Baldur Helgason, sem hefur verið að gera góða hluti í hinum stóra heimi myndlistarinnar. Baldur fer eigin leiðir í listinni og er óhræddur við að kafa djúpt inn á við í sinni listsköpun en hann er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst. 17. apríl 2023 07:00 Draumurinn rættist þegar Netflix hringdi Ljósmyndarinn Benjamin Hardman hefur verið hugfanginn af Íslandi frá því hann kom hingað í fyrsta skipti árið 2013. Tveimur árum síðar flutti hann hingað og hefur síðan þá unnið hörðum höndum að því að láta draum sinn rætast um að vinna af fullum krafti við ljósmyndun og myndbandsgerð. Hann á að baki sér áhugaverða og einstaka sögu en Benjamin Hardman er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst. 10. apríl 2023 07:01 Flutti úlpulaus til Íslands en fann lykilinn að listsköpunni Benjamin Hardman flutti úlpulaus til Íslands frá Ástralíu fyrir rúmum sjö árum með um það bil þúsund fylgjendur á Instagram og draum um að geta unnið sem ljósmyndari. Hann er nú með um 725 þúsund fylgjendur þar sem hann deilir ævintýrum sínum og sinnir ástríðu sinni á ljósmyndun og myndbandsgerð af fullum krafti. Benjamin Hardman er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst, þar sem hann ræðir opinskátt um lífið, listina og mikilvægi þess að elta draumana sína. 7. apríl 2023 09:00 Fékk ljós að láni hjá Salvador Dali Myndlistarkonan Sigga Björg Sigurðardóttir er óhrædd við að nálgast óþægileg viðfangsefni í list sinni. Listasafn Reykjavíkur stendur fyrir sýningunni Andardráttur á glugga á Ásmundarsafni þar sem verk Siggu Bjargar eiga í samtali við verk Ásmundar Sveinssonar. Sigga Björg er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst, þar sem hún deilir sínum skapandi hugarheimi ásamt skemmtilegum sögum. 23. mars 2023 07:01 Brjóstin urðu fræg á augabragði Hildur Hákonardóttir hefur með sanni farið eigin leiðir og rutt brautina í listheiminum hérlendis en með listsköpun sinni segir hún gjarnan sögur og er þekkt fyrir pólitísk verk sín. Hildur er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst, þar sem hún veitir innsýn í sögurnar á bak við listaverkin á yfirlitssýningu verka hennar, Rauður þráður, á Kjarvalsstöðum. 8. mars 2023 06:01 Mest lesið Frumsýning á Vísi: Steindi og Saga rifja upp gamla takta í Draumahöllinni Bíó og sjónvarp Hvað eru konur í framboði að hlusta á? Lífið Frambjóðendur stigu trylltan dans með unga fólkinu Lífið Hraðfréttir verða Hlaðfréttir Lífið Krakkatían: Eyðimerkur, býflugur og kjólar Lífið Sjáðu Nínu Dögg sem Vigdísi í fyrstu stiklunni Bíó og sjónvarp Eins og að setja bensín á díselbíl Heilsa Eitt fallegasta hús landsins tilbúið Lífið Vilt þú taka þátt í nýjum þætti á Stöð 2? Lífið Óhugnanlegt neyðarlínusímtal: „Hann var bara dáinn“ Lífið Fleiri fréttir Leikstjóri Forrest Gump mættur til Reykjavíkur 52 ár á milli þeirra og þrjár bækur Ballettdansarinn Vladimir Shklyarov látinn Einar og Sigga á Grund gerð að heiðurslistamönnum Skaðlegt geðheilsunni að reyna að geðjast öðrum Leikfélag Hafnarfjarðar lagt niður Víkingur Heiðar tilnefndur til Grammy-verðlauna Frambjóðendur, sjónvarpsstjörnur og gamlir félagar fögnuðu með Geir Setja upp árekstur og hefja saman rekstur „Þetta eru mjög vondir samningar við Storytel“ Varpa ljósi á mikilvægi og gæði íslenskrar hönnunar „Við þurfum öll að halda í barnið innra með okkur“ Menningarritstjóri ráðinn framkvæmdastjóri Fullt út úr dyrum þegar Eiríkur Bergmann kynnti ferðafélagann Tínu Hvað gerist þegar Laddi hittir Eirík Fjalar, Skrám og Elsu Lund? „Alltaf að fylgja hjartanu í stað þess að velja einföldu leiðina“ Usli og glæsileiki á Kjarvalsstöðum Valgeir sár og Bubbi og Bó hneykslaðir Stappfullt á eina stærstu menningarhátíð ársins Sjóðheitt menningarrými á Baldursgötu Asifa Majid hlýtur Vigdísarverðlaunin 2024 Bjarni Ben fagnaði 140 ára afmæli Listasafns Íslands Han Kang hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? „Þetta er móðgun gegn Íslandi“ Henti listaverkinu í ruslið Kúltúrkettir landsins létu sig ekki vanta í Portið „Hrátt háþróað krass, langt leitt krot“ Bjóða landsmönnum nauðbeygð til messu Allt í banönum á Brút Sjá meira
„Mig langaði bara að leyfa geirvörtunni að njóta sín“ „Ég var búin að upplifa það svolítið mikið hvað þetta var mikið tabú,“ segir ljósmyndarinn og listakonan Berglind Rögnvaldsdóttir, sem er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst. Berglind notast gjarnan við viðfangsefni á borð við kvenlíkamann og náttúruna og má segja að verk hennar séu femínísk og einkennist af kvennakrafti. Um þrítugt ákvað hún að skrá sig í ljósmyndanám í Osló og átti lífið í kjölfarið eftir að gjörbreytast í listræna og ævintýralega átt. 1. maí 2023 07:00
„Ég var stundum háskælandi að mála þessi verk“ „Ég dett bara í einhverja hugleiðslu og mála án þess að hugsa of mikið. Ég leyfi því að gerast sem vill gerast,“ segir listamaðurinn Baldur Helgason. Lífið tók óvænta og kærkomna stefnu hjá honum eftir að hann fékk tækifæri hjá galleríi í Chicago en síðan þá hefur hann verið að gera öfluga hluti í hinum stóra heimi myndlistarinnar. Baldur Helgason er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst. 22. apríl 2023 07:01
Ferillinn fór á flug eftir örlagaríka listasýningu vestanhafs „Ég fór úr því að vera einn í kjallara heima hjá mér að mála í einhverju ströggli og yfir í að geta allt í einu farið að lifa á því að gera myndlist, sem virðist hafa gerst á einni nóttu,“ segir listamaðurinn Baldur Helgason, sem hefur verið að gera góða hluti í hinum stóra heimi myndlistarinnar. Baldur fer eigin leiðir í listinni og er óhræddur við að kafa djúpt inn á við í sinni listsköpun en hann er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst. 17. apríl 2023 07:00
Draumurinn rættist þegar Netflix hringdi Ljósmyndarinn Benjamin Hardman hefur verið hugfanginn af Íslandi frá því hann kom hingað í fyrsta skipti árið 2013. Tveimur árum síðar flutti hann hingað og hefur síðan þá unnið hörðum höndum að því að láta draum sinn rætast um að vinna af fullum krafti við ljósmyndun og myndbandsgerð. Hann á að baki sér áhugaverða og einstaka sögu en Benjamin Hardman er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst. 10. apríl 2023 07:01
Flutti úlpulaus til Íslands en fann lykilinn að listsköpunni Benjamin Hardman flutti úlpulaus til Íslands frá Ástralíu fyrir rúmum sjö árum með um það bil þúsund fylgjendur á Instagram og draum um að geta unnið sem ljósmyndari. Hann er nú með um 725 þúsund fylgjendur þar sem hann deilir ævintýrum sínum og sinnir ástríðu sinni á ljósmyndun og myndbandsgerð af fullum krafti. Benjamin Hardman er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst, þar sem hann ræðir opinskátt um lífið, listina og mikilvægi þess að elta draumana sína. 7. apríl 2023 09:00
Fékk ljós að láni hjá Salvador Dali Myndlistarkonan Sigga Björg Sigurðardóttir er óhrædd við að nálgast óþægileg viðfangsefni í list sinni. Listasafn Reykjavíkur stendur fyrir sýningunni Andardráttur á glugga á Ásmundarsafni þar sem verk Siggu Bjargar eiga í samtali við verk Ásmundar Sveinssonar. Sigga Björg er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst, þar sem hún deilir sínum skapandi hugarheimi ásamt skemmtilegum sögum. 23. mars 2023 07:01
Brjóstin urðu fræg á augabragði Hildur Hákonardóttir hefur með sanni farið eigin leiðir og rutt brautina í listheiminum hérlendis en með listsköpun sinni segir hún gjarnan sögur og er þekkt fyrir pólitísk verk sín. Hildur er viðmælandi í nýjasta þætti af Kúnst, þar sem hún veitir innsýn í sögurnar á bak við listaverkin á yfirlitssýningu verka hennar, Rauður þráður, á Kjarvalsstöðum. 8. mars 2023 06:01