Innlent

Boðum um að að­stoða björgunar­sveitir rignir yfir aðgerðarstjórn

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Íris segir björgunarsveitir þiggja matargjafir með þökkum.
Íris segir björgunarsveitir þiggja matargjafir með þökkum.

Beiðnum um að koma mat til björgunarsveita rignir yfir aðgerðarstjórn björgunarsveita í Grindavík. Aðgerðarstjórnin hefur því komið á fót sérstöku netfangi þar sem hægt er að láta björgunarsveitir vita ef viðkomandi vill leggja sitt af mörkum.

Íris Dögg Ásmundsdóttir, aðgerðarstjórnandi, segist í samtali við Vísi að um sé að ræða 40 til 60 manna hóp sem sinni gæslu í Grindavík en Íris stofnaði í dag netfangið [email protected]

„Þar geta þeir sem vilja, eða hafa tök á því að gefa okkur að drekka eða borða, eða gefa okkur nammi eða bara hvað sem er, haft samband og ég get þá úthlutað því til þeirra sem eru í aðgerðum. Þetta er allt fólk sem er að vinna í Grindavík,“ segir Íris.

Samkvæmt upplýsingum frá björgunarsveitum hefur beiðnum um að koma mat til björgunarsveita rignt yfir aðgerðarstjórnina. Fjölmargir vilji koma til aðstoðar. Vonast sé til að einfalda verklagið með því að koma á fót netfangi. 

Eins og fram hefur komið hafa Almannavarnir sent út fjöldaboð til allra björgunarsveita á landinu vegna aðgerða í Grindavík. Meiri mannskap þarf í verkefnið. Sagðist Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn, í samtali við fréttastofu í dag vonast til þess að vinnuveitendur taki tillit til þess þegar fólk með kunnáttu þurfi að hverfa frá vinnu.

„Þetta hefur bara tekið rosalega á alla og þetta hefur verið svakaleg vinna. Sem er ekki búin og ekki ljóst hvenær henni lýkur,“ segir Íris. Slysavarnardeildir skipti matarmálum á milli sín en miklu máli skiptir að fólk geti haft samband með einföldum hætti til að koma mat til aðgerðarstjórnar.

„Þetta var orðið pínu krísuástand, þannig að ég tók þetta í mínar hendur að skipuleggja þetta og reyna að koma þessu á rétt ról, af því að það er náttúrulega brjálað að gera hjá Slysavarnardeildinni að gera og græja.“

Fréttin hefur verið uppfærð með ábendingum björgunarsveita um að gríðarlegur fjöldi hafi viljað leggja sitt af mörkum í þágu sveitanna. Því sé verið að einfalda verklag að baki matargjafa með því að koma þeim í farveg á netfanginu [email protected]


Tengdar fréttir

Á meðan kvika er svo grunnt geti fólk ekki farið heim

Jarðeðlisfræðingur segir enn líklegast að gjósi nærri Hagafelli ef til eldgoss kemur. Ekki sé hægt að spá til um kvikuflæði fyrr en kvikan er komin upp. Hann segir íbúa ekki geta farið heim á meðan kvika mælist svo grunnt. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×