Skoðun

Hvert renna þín sóknar­gjöld?

Siggeir F. Ævarsson skrifar

Sóknargjöld eru sérkennilegur skattur. Frá þeim er engin undankoma, allir íslenskir skattgreiðendur borga þau óháð trúar- og lífsskoðunum en alls kostuðu trúmál íslenska ríkið tæpa 9 milljarða á þessu ári.

En þrátt fyrir að við borgum þau öll eru þau ekki á skattaskýrslunum okkar eins og t.d. nefskatturinn til RÚV eða gjald í framkvæmdasjóð aldraðra. Ríkið tekur einfaldlega ákveðna upphæð úr sameiginlegum sjóðum okkar ár hvert og greiðir til trúar- og lífsskoðunarfélaga miðað við félagafjölda þeirra 1. desember ár hvert.

Ríkið tók að sér innheimtu sóknargjalda á sínum tíma þar sem prestum þjóðkirkjunnar gekk bölvanlega að innheimta þau frá sóknarbörnum. Þetta skrítna kerfi hefur leitt af sér endalausan núning en undanfarin ár hefur verið gerð ítrekuð tilraun til að lækka sóknargjöldin í fjárlögum sem ríkiskirkjan mótmælir af krafti og fær sínu framgengt ár eftir ár.

Fjárreiður margra sókna Íslands eru í algjörum ólestri en tugir safnaða ríkiskirkjunnar eru tæknilega gjaldþrota. Því skal haldið til haga að sóknargjöldin greiða ekki laun presta þjóðkirkjunnar. Þeir eru ríkisstarfsmenn (en samt ekki). Sóknargjöldin okkar greiða fyrir allskonar hluti eins og orgel, sunnudagaskólann, viðhald á byggingum og margt fleira. Bókhaldið er oft hvorki gegnsætt né aðgengilegt og sum af stóru félögunum virðast eiga í stökustu vandræðum með að reka sig réttu megin við núllið þrátt fyrir að fá milljónir í sóknargjöld.

Eitt af litlu félögunum er DíaMat, félag um díalektíska efnishyggju, með 199 skráða meðlimi þegar þetta er skrifað. Sóknargjöld félagsins renna að stórum hluta í góðgerðamál og til valdeflingar þeirra sem eiga undir högg að sækja enda söfnum við okkur ekki fjársjóðum á jörðu þar sem mölur og ryð eyðir. Félagið hefur m.a. styrkt Píeta samtökin, Félagið Ísland Palestína og Rétt barna á flótta, svo einhver dæmi séu nefnd.

Að lokum er vert að nefna að stór hluti Íslendinga stendur utan trúfélaga. Ríkið reiknar engin sóknargjöld á þá einstaklinga en þeir borga þau nú samt. Eini munurinn er sá að þeir einstaklingar hafa ekkert um það að segja hvert þau renna eða hvernig þeim er ráðstafað. Það er lífsseig mýta að sóknargjöld þeirra sem standa utan trúfélaga renni til Háskóla Íslands en það fyrirkomulag var afnumið 2009.

Þú getur haft áhrif á það hvert þín sóknargjöld renna og ég hvet þig til að taka upplýsta ákvörðun um það. Ef þú skráir þig í DíaMat getur þú haft bein áhrif á hvert okkar sóknargjöld renna á næsta ári. Þú getur breytt skráningunni þinni í dag á einfaldan hátt á vefsíðu Þjóðskrár, www.skra.is.

Höfundur er skattpíndur trúleysingi og gjaldkeri DíaMat.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×