Erlent

Ævin­týra­leg björgun Ís­lendings í lífs­hættu

Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar
Fram kemur í fréttatilkynningu að björgunaraðgerðir ítölsku Landhelgisgæslunnar hafi verið „meistaraverk samræmis og hugrekkis.“
Fram kemur í fréttatilkynningu að björgunaraðgerðir ítölsku Landhelgisgæslunnar hafi verið „meistaraverk samræmis og hugrekkis.“ Skjáskot

Neyðartilvik kom upp um borð í ítalska skemmtiferðskipinu Costa Smeralda síðastliðinn miðvikudag þegar Íslendingur um borð veiktist lífshættulega. Þökk sé þyrlusveit Landhelgisgæslunnar á Ítalíu var honum bjargað naumlega.

Greint er frá björguninni á fjölmörgum ítölskum vefmiðlum en meðfylgjandi myndskeið var tekið þegar björgunaraðgerðirnar fóru fram.

Klippa: Íslendingi bjargað um borð í Costa Smeralda

Himninum breytt í sjúkrastofu

Í fréttatilkynningu kemur fram að síðdegis þann 10. janúar síðastliðinn hafi komið upp neyðartilvik um borð í skemmtiferðaskipinu Costa Smeralda þegar 79 ára Íslendingur veiktist. Skipið var á leiðinni frá Palma de Mallorca á Spáni til Palermo á Ítalíu.

Íslendingurinn reyndist vera með bráðakransæðastíflu. Um er að ræða lífshættulegt ástand og dánartíðnin er hæst fyrstu klukkustundirnar eftir að stífluna ber að höndum.

Tilkynning barst til Landhelgisgæslunnar í Decimomannu, þar sem skipið var statt 10 mílur suðvestur af Capo Teulada á Sardiníu. Í kjölfarið var þyrla Landhelgisgæslunnar send frá borginni Cagliari.

Með hjálp frá áhöfninni um borð var Íslendingurinn fluttur um borð í þyrluna á sérúbúnum börum, en fram kemur í frétt Gazzetta Sarda að slík tilfærsla sé vandasöm og krefjist „leikni listflugmanns.“ Himninum hafi verið breytt í „sjúkrastofu á milli öldu og skýja.“

Ævintýrasaga með góðum endi

Íslendingurinn var þvínæst fluttur með hraði á Brotzu sjúkrahúsið í Cagliari og komst undir læknishendur í tæka tíð.

Fram kemur að sagan hefði getað endað með harmleik, ef ekki hefði verið fyrir skjót viðbrögð Landhelgisgæslunnar. Fram kemur að björgunaraðgerðin hafi verið „meistaraverk samræmis og hugrekkis.“

Í frétt ítalska vefmiðilsins Alghero er atburðarásinni líkt við ævintýrasögu.

„Þetta er kröftug áminning um að á tímum örra tæknibreytinga og mikils hraða má ennþá finna sögur um hugrekki, mannúð og von. Sögur af körlum og konum sem standa keik gangvart miskunnarlausum náttúruöflum og fjandsamlegum örlögum. Landhelgisgæslan í Cagliari hefur enn og aftur skrifað glæsilegan kafla í sögu björgunar á sjó, sem sýnir okkur að jafnvel í harkalegustu aðstæðunum deyja vonin og hugrekkið aldrei.“


Veistu meira um málið? Vísir tekur við öllum ábendingum á netfangið [email protected] eða í tölvupósti á einstaka blaðamenn. Fullum trúnaði er heitið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×