Innlent

Lög­reglan vill ná tali af manni

Árni Sæberg skrifar
Lögreglan vill tala við þennan mann.
Lögreglan vill tala við þennan mann. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur lýst eftir manni sem hún vill ná tali af.

Í tilkynningu frá lögreglu þess efnis segir að maðurinn, sem sjá má á meðfylgjandi myndum, sé vinsamlegast beðinn um að hafa samband við lögreglustöðina á Hverfisgötu 113-115 í Reykjavík í síma 444 1000.

Þá eru þeir sem þekkja til mannsins, eða vita hvar hann er niðurkominn, beðnir um að að hringja í lögregluna. Upplýsingum megi jafnframt koma á framfæri í tölvupósti á netfangið [email protected]




Fleiri fréttir

Sjá meira


×