Skoðun

300 milljónir á dag

Aðalsteinn Leifsson skrifar

Spjallið við eldhúsborðið ætti að vera um sumarfrí og framtíðaráform fremur en vexti og hallann á heimilisbókhaldinu. Eitt mikilvægt framlag ríkisins í baráttunni við verðbólguna er að hafa jafnvægi í ríkisfjármálum. Hvernig hefur það gengið hjá ríkisstjórn síðustu sjö ára? Í frumvarpi til fjáraukalaga sem nú liggur fyrir Alþingi er mesta útgjaldaaukningin vegna vaxtagjalda ríkissjóðs sem hækka úr 99 milljörðum í 114 milljarða, sem þýðir að ríkið greiðir yfir 300 milljónir í vaxtagreiðslur á hverjum degi. Það eru vextirnir, þá er höfuðstóllinn eftir. Afborganir lána er fjórði stærsti úgjaldaliður ríkisins. Semsagt, það gæti gengið talsvert betur.

Forgangsmál að ríkið geri sitt

Við þurfum nýja ríkisstjórn sem setur í forgang að ná jafnvægi í ríkisfjármálum og greiða niður skuldir ríkissjóðs og gera þannig sitt til að ná niður verðbólgu og vöxtum fyrir heimili og fyrirtæki. Raunverulegur sparnaður næst ekki með því að skera flatt niður um 2% eða 10% heldur þegar mótuð er skýr sýn á það sem skiptir mestu máli. Það felur í sér að sumt fær aukin framlög en öðru er frestað eða því einfaldlega sleppt. Þetta þekki ég vel m.a. úr störfum mínum sem einn „ópólitískra fagmanna“ sem kom inn í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur til að snúa við rekstri OR eftir óhóflegar lántökur og fjárfestingapartý áranna á undan. Það tókst í samstarfi við frábært starfsfólk. Ég þekki það líka vel að marka skýra stefnu, taka erfiðar ákvarðanir og fylgja þeim eftir m.a. eftir stjórnarformennsku í Fjármálaeftirlitinu eftir fjármálahrunið.

Biðlistar barna burt

Það er hægt að ná fram jafnvægi og á sama tíma setja enn sterkari fókus á það sem skiptir mestu máli fyrir líðan fólks. Biðlistar barna og unglinga eftir þjónustu sem þau þurfa nauðsynlega á að halda til að líða vel og ganga vel verður að vinna niður. Það má kosta, því það kostar mikið meira að gera ekkert og ef við eigum ekki peninga og orku til að hjálpa börnum okkar, til hvers er þá af stað farið?

Viðreisn setur ábyrg fjármál, líðan fólks og frelsi til að taka ákvarðanir um hvernig hvert og eitt vill lifa lífi sínu fremst. Meðal annars þess vegna er ég í framboði fyrir Viðreisn.

Höfundur er fyrrverandi ríkissáttasemjari og er í 3. sæti á lista Viðreisnar í Reykjavíkurkjördæmi suður.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×