Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar
1 2 3 4 5 6 … 37 ›
Sjálfstæðisflokkurinn hafi lagt til niðurskurð á hverju ári Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, segist ekki treysta Sjálfstæðisflokknum til að fjárfesta í menntakerfinu. Hann segir flokkinn hafa barist gegn fjárveitingum til málaflokksins og lagt til niðurskurð á hverju ári. Innlent 23.11.2024 20:51
Ísland virðir handtökuskipan á hendur Netanjahú Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra segir Ísland virða sjálfstæði og ákvarðanir Alþjóðlega sakamáladómstólsins í Haag sama hver eigi í hlut. Dómstóllinn gaf í fyrradag út handtökuskipanir á hendur Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísrael, Yoav Gallant fyrrverandi varnarmálaráðherra landsins, og þremur leiðtogum Hamas, sem allir eru taldir látnir. Innlent 23.11.2024 18:10
Hildur hnýtir í Sigurð og sakar hann um ýkjur Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins hnýtir í Sigurð Inga Jóhannsson, formann Framsóknarflokksins í færslu á Facebook og segir það ekkert nema eðlilegt að þingmenn taki „snúning“ og greiði atkvæði eftir eigin sannfæringu gagnvart málum frá ríkisstjórninni. Hún segir staðhæfingar formannsins miklar ýkjur. Innlent 23.11.2024 16:44
Hlutverk flokksforingja stórlega ofmetið í kosningabaráttunni Ólafur Þ. Harðarson prófessor emiritus í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands segir hlutverk leiðtoga stjórnmálaflokkanna í öflun vinsælda flokkanna stórlega ofmetið. Sjálfstæðisflokkurinn og Miðflokkurinn bítist nú á um 30 prósenta fylgi hægriflokka á Íslandi en nái ekki út fyrir þann bergmálshelli. Innlent 23.11.2024 08:03
Hörð viðbrögð við vaxtahækkunum Þrátt fyrir stýrivaxtalækkun Seðlabankans í vikunni hefur stór hluti fjármálastofnanna hækkað vexti á verðtryggðum íbúðalánum og vísar til hárra raunvaxta. ASÍ fordæmir vaxtahækkanirnar og forsætisráðherra furðar sig á þeim. Innlent 22.11.2024 19:01
Ekki þörf enn á að stækka varnargarða við Bláa lónið Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra segir allt kapp lagt á það að vernda innviði á Reykjanesi. Fyllt hafi verið í skarð í varnargarð við Bláa lónið í gær en enn sé ekki þörf á að stækka varnargarðinn, það verði metið síðar. Einnig er unnið að því að skoða hvort hægt sé að gera nýjar akstursleiðir að Bláa lóninu og Northern Light inn en vegirnir að því eru undir hrauni. Innlent 22.11.2024 11:09
Loftslagsáætlun Íslands sögð ómarkviss og bjartsýn úr hófi fram Aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum er ómarkviss, margar aðgerðanna eru ófjármagnaðar og ávinningur þeirra hefur ekki verið metinn, að dómi Loftslagsráðs. Árangursmat áætlunarinnar eru einnig sagt afar bjartsýnt af þessum sökum. Innlent 21.11.2024 10:39
Kjósum Vinstri græn til áhrifa Kosningarnar 30. nóvember næstkomandi snúast um hugmyndafræði. Þær snúast um hvert samfélagið velur að stefna næstu fjögur ár. Hvort kjósendur velja hægri flokka sem setja aukin ójöfnuð á dagskrá, með niðurskurðarstefnu og einkavæðingu eða hvort kjósendur velja vinstriflokka sem vilja vinna að auknum jöfnuði, öflugri samneyslu og bættu velferðarkerfi. Skoðun 21.11.2024 07:30
Á réttri leið Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands lækkaði nú í morgun vexti um 50 punkta. Vextir hafa þannig lækkað um 75 punkta á skömmum tíma. Þetta er í mjög góðum takti við það sem bæði við í Framsókn og aðrir sem leggja mat á stöðu efnahagsmála á Íslandi hafa verið að segja. Skoðun 20.11.2024 15:01
Krefst undanbragðalausra skýringa á því hversvegna Vestfirðir voru snuðaðir Einar K. Guðfinnsson, fyrrverandi ráðherra og alþingismaður Vestfjarða og Norðvesturkjördæmis, krefst þess að samgönguyfirvöld skýri það undanbragðalaust fyrir komandi alþingiskosningar hversvegna vegaframkvæmdir í Gufudalssveit og á Dynjandisheiði stöðvuðust og hvort fjármunir, sem Alþingi hafði ráðstafað í verkin, hafi verið fluttir í Hornafjarðarfljót. Innlent 20.11.2024 11:50
Ógildu lögin gætu bakað ríkinu skaðabótaskyldu Prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík segir ekki hægt að útiloka að íslenska ríkið hafi bakað sér mögulega skaðabótaskyldu gagnvart kjötafurðarstöðvum með því að samþykkja breytingu á búvörulögum sem voru dæmd ógild fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Innlent 19.11.2024 21:44
Fern ný jarðgöng undirbúin meðan Fjarðarheiðin bíður Fern ný jarðgöng verða undirbúin, Fossvogsbrú sett af stað og lykilvegir byggðir upp á Vestfjörðum og á Norðausturlandi. Breikkun Vesturlandsvegar á Kjalarnesi frestast hins vegar, samkvæmt samgönguáætlun næsta árs, sem kynnt var í dag. Innlent 19.11.2024 21:21
„Klassískt dæmi“ um sérhagsmunagæslu Framsóknar og Sjálfstæðisflokks Samkeppniseftirlitið hefur skipað afurðastöðvum að stöðva aðgerðir, sem geta farið gegn samkeppnislögum. Stjórnarandstöðuþingmenn segja lögin dæmi um þá sérhagsmunagæslu sem hafi tíðkast undir stjórn Framsóknar og Sjálfstæðisflokks. Innlent 19.11.2024 18:32
Eftirlitið skipar afurðastöðvum að stöðva aðgerðir tafarlaust Samkeppniseftirlitið hefur ritað kjötafurðastöðvum og samtökum þeirra bréf vegna dóms Héraðsdóms Reykjavíkur sem kveðinn var upp í gær. Í því er kjötafurðastöðvum meðal annars skipað að stöðva þegar í stað hvers konar aðgerðir eða háttsemi sem farið geta gegn samkeppnislögum og stofnast hefur til á grundvelli undanþáguheimilda búvörulaga. Innlent 19.11.2024 15:28
Óheppilegt að setja Jón í ráðuneytið Óheppilegt var að koma Jóni Gunnarssyni fyrir í matvælaráðuneytinu að mati Gísla Freys Valdórssonar, stjórnanda hlaðvarpsins Þjóðmála. Þetta kom fram í Pallborðinu á Vísi í gær. Innlent 19.11.2024 15:00
Sautján mál urðu að lögum og tvær þingsályktanir samþykktar Alls voru 17 lagafrumvörp og tvær þingsályktanir samþykktar á Alþingi á nýliðnum þingvetri sem hófst 10. september og lauk í gær. Það er ekki nema lítið brot af þeim málum sem lágu fyrir þinginu, en alls lágu fyrir 151 frumvörp og 111 þingsályktunartillögur. Þingfundadagar voru hins vegar aðeins 23 enda var stjórnarsamstarfi slitið og boðað til kosninga fyrr en gert var ráð fyrir. Alls voru 337 þingmál til meðferðar hjá Alþingi og prentuð þingskjöl 416. Innlent 19.11.2024 13:48
Minnisblað þvert á niðurstöðu dómsins Í minnisblaði skrifstofu Alþingis til sviðsstjóra nefnda- og greiningarsviðs Alþingis er komist að þeirri niðurstöðu að breytingar atvinnuveganefndar á frumvarpi um búvörulög hafi ekki gengið gegn stjórnarskrá. Héraðsdómur Reykjavíkur komst að gagnstæðri niðurstöðu í gær. Innlent 19.11.2024 12:36
Lögfræðingar þingsins lögðu til að nýtt frumvarp yrði lagt fram Lögfræðingar hjá nefnda- og greiningarsviði Alþingis lögðu til við formann atvinnuveganefndar að nýtt frumvarp um breytingar á búvörulögum yrði lagt fram þar sem breytingartillögur nefndarinnar gengju of langt. Þeir töldu breytingarnar þó ekki stríða gegn 44. grein stjórnarskrár. Innlent 19.11.2024 11:26
Sexfalda greiðslur í fyrstu tæknifrjóvgun og tæknisæðing telur Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, hefur birt í samráðsgátt drög að nýrri reglugerð um þátttöku sjúkratrygginga í kostnaði við tæknifrjóvganir, sem veittar eru án samnings við Sjúkratryggingar Íslands. Innlent 19.11.2024 10:32
Bein útsending: Tillögur um tækifæri til viðskipta með kolefniseiningar Starfshópur um stöðu og tækifæri til viðskipta með kolefniseiningar hér á landi mun halda kynningu á niðurstöðum sínum í dag klukkan 10:40. Viðskipti innlent 19.11.2024 10:01
Sjálfstæðisflokkurinn hafi misnotað aðstöðu sína í aðdraganda kosninga Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingkona Pírata segir Sjálfstæðisflokkinn, og dómsmálaráðherra, hafa misnotað aðstöðu sína í starfsstjórn þegar kynnt var ný landamærastefna fyrir helgi. Guðrún Hafsteinsdóttir, dómsmálaráðherra, vísar þessu alfarið á bug. Innlent 19.11.2024 09:32
Fimm ástæður fyrir að vextirnir eru á réttri leið Í of langan tíma hafa heimili og fyrirtæki þurft að þola óásættanlegt vaxtastig. Ástæðurnar eru vel þekktar. Seðlabankinn þurfti fyrst að bregðast við alþjóðlegum verðbólguskell og svo með frekari vaxtahækkunum þegar launahækkanir og mikill kraftur í hagkerfinu héldu glæðum lengur í verðbólgunni. Skoðun 19.11.2024 08:32
Sérhagsmunagæsla Sjálfstæðisflokks, Framsóknar, VG og Miðflokks dæmd ólögleg Það má ekki brjóta lög við lagasetningu á Alþingi. Þetta er nokkuð sem flestir skilja. Skoðun 19.11.2024 07:46
Endanleg fjárlög 2025: Hallinn jókst um 18 milljarða vegna kólnunar Fjárlagafrumvarps ársins 2025 var í dag samþykkt sem lög frá Alþingi. Í fjárlögum er gert ráð fyrir 59 milljarða króna halla á afkomu ríkissjóðs, sem er 18 milljörðum meira en Sigurður Ingi Jóhannesson fjármálaráðherra lagði upp með við framlagningu frumvarpsins í september. Það er vegna hárra stýrivaxta sem hafa leitt til kólnunar hagkerfisins. Innlent 18.11.2024 22:43
Fyrsta skóflustunga tekin þótt enn eigi eftir að hanna brúna Ein stærsta fréttin frá lokadegi Alþingis í dag er að smíði nýrrar Ölfusárbrúar var tryggð, verkefni sem áætlað er að kosti 17,9 milljarða króna. Skrifað verður undir verksamning á miðvikudag og drifið í að taka fyrstu skóflustungu, þótt enn eigi eftir að hanna brúna og langt sé í upphaf jarðsvegsvinnu. Innlent 18.11.2024 21:43
Þinginu til „ævarandi skammar“ að hafa samþykkt búvörulög Formaður Neytendasamtakanna segir það þingmönnum til ævarandi skammar að hafa samþykkt búvörulög, sem héraðsdómur dæmdi ólögmæt í morgun. Formaður atvinnuvegandefndar segist ósammála niðurstöðunni og væntir þess að málið fari fyrir öll þrjú dómsstig. Innlent 18.11.2024 21:26
Bjarni sér ekki eftir að hafa endurnýjað stjórnarsamstarfið Fjárlög næsta árs voru í dag afgreidd með ríflega 58 milljarða halla á síðasta þingfundi fyrir kosningar. Forsætisráðherra sér ekki eftir að hafa endurnýjað stjórnarsamstarfið eftir síðustu kosningar en segir lýðræðislegt að boða til kosninga þegar samstarfið hafi ekki gengið lengur upp. Innlent 18.11.2024 19:20
Markmið og tilgangur laganna hafi aldrei breyst Þórarinn Ingi Pétursson þingmaður Framsóknar og formaður atvinnuveganefndar segir að markmið með búvörulögum hafi ekki breyst við meðferð nefndarinnar. Hann var sakaður um sérhagsmunagæslu þegar málið stóð sem hæst á þingi. Innlent 18.11.2024 19:08
Þörf á efnisreglum eftir fordæmalausan dóm Stjórnsýslufræðingur, sem varað hefur við vinnubrögðum Alþingis, segir dóm héraðsdóms um breytingu á búvörulögum sennilega fordæmalausan. Hann segir dóminn réttan og kallar eftir skýrari efnisreglum hjá Alþingi um framkvæmd reglunnar um þrjár umræður. Innlent 18.11.2024 17:07
„Áfellisdómur yfir vinnubrögðum Alþingis“ Dómari við héraðsdóm Reykjavíkur hefur slegið því föstu að breytingarnar sem gerðar voru á búvörulögum í mars síðastliðnum hafi strítt gegn stjórnarskrá landsins og að breytingin hafi því ekkert gildi að lögum. Afurðastöðvar voru með breytingunum undanþegnar samkeppnislögum. Innlent 18.11.2024 15:41