Chantel Jones valin best í Pepsi-deild kvenna Chantel Nicole Jones, markvörður Íslandsmeistara Þór/KA, var valin besti leikmaður Pepsi-deildar kvenna af leikmönnum deildarinnar. Valið var tilkynnt í sérstakri athöfn í Silfurbergi í Hörpu í kvöld en hátíðin var einnig í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Íslenski boltinn 1. október 2012 17:57
Löng bið loksins á enda Þó svo að tímabilinu í Pepsi-deild kvenna hafi lokið fyrir næstum þremur vikum síðan hafa leikmenn Stjörnunnar þurft að halda sér á tánum. Liðið mætir í kvöld rússneska félaginu Zorky Krasnogorsk á heimavelli sínum í Garðabæ en þetta verður fyrsti Evrópuleikur félagsins frá upphafi. Íslenski boltinn 26. september 2012 07:00
Ragna Lóa tekur við kvennaliði Fylkis Ragna Lóa Stefánsdóttir hefur verið ráðinn sem nýr þjálfari meistaraflokks kvenna. Aðstoðarmaður hennar verður Kjartan Stefánsson sem stýrði liðinu í síðustu sex leikjum liðsins á síðustu leiktíð. Íslenski boltinn 25. september 2012 21:49
Förum til Noregs til þess að vinna Ísland vann um helgina virkilega mikilvægan sigur, 2-0, á Norður-Írum í undankeppni Evrópumótsins í knattspyrnu kvenna sem fram fer árið 2013 í Svíþjóð. Íslenski boltinn 17. september 2012 08:00
Umfjöllun og viðtöl: Ísland - Norður-Írland 2-0 Ísland vann virkilega mikilvægan sigur, 2-0, á Norður-Írum í undankeppni Evrópumótsins í knattspyrnu kvenna sem fram fer árið 2013 í Svíþjóð. Íslenska liðið er því í efsta sæti riðilsins fyrir lokaleikinn gegn Norðmönnum sem fram fer á miðvikudaginn og dugar liðinu eitt stig í þeim leik til að tryggja sig á mótið. Fótbolti 15. september 2012 00:01
Margrét Lára verður með eftir allt saman Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari kvenna, hefur tekið markaskorarann Margréti Láru Viðarsdóttur inn í landsliðshópinn fyrir leikina gegn Norður-Írum og Noregi. Íslenski boltinn 11. september 2012 14:39
Grimsley valin best í Pepsi-deild kvenna Kayle Grimsley í Íslandsmeistaraliði Þórs/KA var í dag valin besti leikmaður umferða 10 til 18 í Pepsi-deild kvenna. Þjálfari Þórs/KA, Jóhann Kristinn Gunnarsson, var þess utan valinn besti þjálfarinn. Íslenski boltinn 11. september 2012 12:30
Elín Metta og Sandra María bættu met Margrétar Láru Elín Metta Jensen og Sandra María Jessen tryggðu sér um helgina markadrottningartitilinn í Pepsi-deild kvenna og settu um leið nýtt met því aldrei hafa yngri leikmenn orðið markahæstar í efstu deild kvenna. Íslenski boltinn 11. september 2012 07:00
Þróttarar báru sigur úr býtum í 1. deild kvenna Þróttur er Íslandsmeistari kvenna í 1. deild en liðið hafði betur gegn HK/Víkingi í úrslitaleik deildarinnar, 1-0. Íslenski boltinn 8. september 2012 22:30
Elín Metta tryggði sér gullskóinn á færri mínútum spiluðum Valskonan Elín Metta Jensen skoraði tvívegis í 4-4 jafntefli gegn Aftureldingu í lokaumferð Pepsi-deildar kvenna í dag. Mörkin tryggðu Elínu Mettu gullskóinn. Íslenski boltinn 8. september 2012 16:24
Tvær 17 ára berjast við Hörpu um gullskóinn í Pepsi-deild kvenna í dag Lokaumferð Pepsi-deildar kvenna fer fram í dag. Þór/KA er þegar búið að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn en það verður barist um gullskóinn og þá kemur í ljós hvaða félag fylgir KR niður í 1. deildina. Íslenski boltinn 8. september 2012 13:10
HK/Víkingur og Þróttur í Pepsi-deild kvenna Þróttur og HK/Víkingur tryggðu sér í gærkvöldi sæti í Pepsi-deild kvenna. Hvorugt liðanna vann sinn riðil í 1. deild kvenna. Íslenski boltinn 5. september 2012 09:31
Þór/KA Íslandsmeistari - myndir Það var sögulegt kvöld á Akureyri er Þór/KA tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í knattspyrnu kvenna með 9-0 sigri á Selfoss. Íslenski boltinn 4. september 2012 22:01
Selfoss hélt sæti sínu í efstu deild þrátt fyrir hrakspár Þrátt fyrir 9-0 tap fyrir Þór/KA í kvöld gátu Selfyssingar fagnað í leikslok. Sigur FH á Fylki í Hafnarfirði þýddi að liðið hélt sæti sínu í deildinni þvert á allar spár. Íslenski boltinn 4. september 2012 21:54
Jóhann Kristinn: Við erum eins og leiðinlegt skordýr "Ég fór inn í þetta mót til að keppa við stór og sterk lið eins og Stjörnuna, Val, Breiðablik og ÍBV. Við vildum troða okkur inn í þennan pakka,“ sagði Jóhann Kristinn Gunnarsson sigurreifur þjálfari Þórs/KA um hver markmið liðsins voru fyrir sumarið. Íslenski boltinn 4. september 2012 21:45
KR fallið úr efstu deild kvenna | Öll úrslit kvöldsins KR féll úr efstu deild kvenna í kvöld en liðið hafði verið samfleytt í deild þeirra bestu frá árinu 1981. ÍBV náði svo öðru sætinu af Stjörnunni. Íslenski boltinn 4. september 2012 19:58
Kayle Grimsley: Ætlum að sýna að allir á Íslandi höfðu rangt fyrir sér Kayle Grimsley, einn besti leikmaður Þór/KA í Pepsi-deild kvenna í fótbolta í sumar var í viðtali á heimasíðu Þórs fyrir leikinn á móti Selfossi í kvöld en með sigri verða norðankonur Íslandsmeistarar í fyrsta sinn. Íslenski boltinn 4. september 2012 15:30
Umfjöllun: Þór/KA-Selfoss 9-0 | Þór/KA Íslandsmeistari í fyrsta sinn Þór/KA er Íslandsmeistari kvenna í fótbolta í fyrsta skipti eftir 9-0 stórsigur á Selfossi á Akureyri í 17. umferð Pepsi-deildar kvenna í kvöld. Þór/KA-liðið skoraði þrjú mörk í fyrri hálfleik og raðaði síðan inn mörkum í seinni hálfleiknum. Sandra María Jessen og Katrín Ásbjörnsdóttir voru báðar með þrennu fyrir Þór/KA í kvöld og Kayle Grimsley lagði upp fimm af mörkum liðsins. Íslenski boltinn 4. september 2012 13:56
Verður Þór/KA Íslandsmeistari? | Akureyringum boðið á völlinn Þór/KA getur orðið Íslandsmeistari í knattspyrnu kvenna þegar liðið tekur á móti Selfossi í 17. umferð Pepsi-deildar kvenna í kvöld. Með sigri tryggir félagið sér sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í meistaraflokki. Íslenski boltinn 4. september 2012 12:15
Það rennur ekki blóðið í þjálfaranum okkar Lið Þórs/KA getur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í fyrsta skipti með sigri á Selfossi á Akureyri í Pepsi-deild kvenna í kvöld. Norðankonur hafa spilað frábærlega í sumar og eru með fjögurra stiga forskot á Stjörnuna þegar aðeins tvær umferðir eru eftir af deildinni. Íslenski boltinn 4. september 2012 07:00
Stjarnan minnkaði forystu Þór/KA | Spenna á botninum 16. umferð Pepsi-deildar kvenna fór fram í kvöld og ljóst að það er spennandi barátta fram undan í lokaumferðum deildarinnar. Íslenski boltinn 29. ágúst 2012 20:36
Arna Sif: Þurfum líka aðeins að hefna okkar Kvennalið Þór/KA getur orðið Íslandsmeistari í fótbolta í kvöld þegar liðið heimsækir ÍBV í Eyjum en fyrsti Íslandsmeistaratitilinn mun fara norður vinni þær leikinn á sama tíma og Stjarnan tapar stigum í Mosfellsbænum. Íslenski boltinn 29. ágúst 2012 16:00
Umfjöllun og viðtöl: ÍBV - Þór/KA 1-1 | Titillinn þarf að bíða Þór/KA náði ekki að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn í kvöld þar sem að liðið gerði 1-1 jafntefli við ÍBV á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum í kvöld. Íslenski boltinn 29. ágúst 2012 13:29
Þór/KA getur orðið Íslandsmeistari í kvöld Sjö félög hafa orðið Íslandsmeistarar í knattspyrnu kvenna en það gæti breyst eftir 16. umferð Pepsi-deildar kvenna í kvöld. Lið Þór/KA á nefnilega möguleika á því að verða Íslandsmeistari í Vestmannaeyjum í kvöld. Íslenski boltinn 29. ágúst 2012 10:15
Stjörnugleði í Laugardal - myndir Stjörnustúlkur tryggðu sér sigur í bikarkeppni KSÍ í dag með góðum 1-0 sigri. Það var fyrirliðinn Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir sem tryggði liðinu sigur með glæsilegu marki. Íslenski boltinn 25. ágúst 2012 20:36
Harpa: Spilaðist eins og við vildum "Þetta er frábært, það var frábært að vinna. Þær eru með gott lið og við vissum að við kæmum hingað í hörkuleik, sem varð raunin. Við fórum varfærnislega inn í fyrri hálfleik og áttum seinni hálfleikinn og allar þeirra sóknaraðgerðir. Þetta spilaðist eins og við vildum," sagði Harpa Þorsteinsdóttir framherji Stjörnunnar í leikslok. Íslenski boltinn 25. ágúst 2012 20:28
Valskonur búnar að vinna fjórtán bikarleiki í röð Valskonur geta unnið bikarinn fjórða árið í röð í dag þegar þær mæta Stjörnunni í úrslitaleik á Laugardalsvellinum. Valsliðið er búið að vinna 14 síðustu bikarleiki sína eða alla bikarleiki síðan liðið steinlá 0-4 á móti KR í bikarúrslitaleiknum 2008. Íslenski boltinn 25. ágúst 2012 10:00
Nýtt nafn ritað á bikarinn í dag? Valur og Stjarnan eigast við í úrslitaleik Borgunarbikarkeppni kvenna á Laugardalsvellinum í dag. Valur hefur langoftast unnið bikarinn, alls þrettán sinnum, en Stjörnukonur eiga í dag möguleika á að vinna þessa keppni í fyrsta sinn. Íslenski boltinn 25. ágúst 2012 08:00
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Valur 1-0 | Stjarnan bikarmeistari Stjarnan varð í dag bikarmeistari kvenna í knattspyrnu í fyrsta sinn með 1-0 sigri á Val í úrslitaleiknum á Laugardalsvelli. Fyrirliðinn Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir tryggði sigurinn með ótrúlegu marki af 30 metra færi níu mínútum fyrir leikslok. Íslenski boltinn 25. ágúst 2012 00:01
Gunnar Jarl dæmir úrslitaleikinn Það kemur í hlut Gunnars Jarls Jónssonar að dæma úrslitaleik Borgunarbikars kvenna á Laugardalsvelli á morgun. Honum til halds og trausts verða Halldór Breiðfjörð Jóhannsson og Jóhann Óskar Þórólfsson. Íslenski boltinn 24. ágúst 2012 16:30